10.03.1932
Neðri deild: 25. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1134 í C-deild Alþingistíðinda. (4135)
118. mál, húsnæði í Reykjavík
Einar Arnórsson [óyfirl.]:
Það mun ekki þörf á að lengja mikið umr. um þetta mál. Það kemur sennilega til 2. umr., og gefst þá tækifæri til að athuga það nánar. Vil ég aðeins svara nokkrum atriðum í ræðu hv. 1. þm. Árn.
Áskoranir hv. þm. til okkar andstæðinga frv. um það að koma með önnur ráð betri til að koma í veg fyrir háa húsaleigu í Reykjavík hefir þegar verið svarað. Eins og hv. 4. þm. Reykv. benti á, er eina raunverulega ráðið til þess, að leigan verði alstaðar sanngjörn, að örva menn til húsabygginga. Öll önnur ráð eru ekki annað en hrossalæknigar. Kostnaðurinn, óvildin og óþægindin, sem leiða mundi af framkvæmd frv., mundi fyllilega vega á móti lækkun á húsaleigu, sem n. e. t. v. kæmi til leiðar í einstökum tilfellum. Hagurinn af því mundi því verða afskaplega lítill.
Við munum eftir gömlu húsaleigunefndinni; hagurinn af þeim ráðstöfunum var tvísýnn. Þó stóðu þannig sakir þá, á árunum 1917–1920, að það mátti heita alveg ómögulegt að byggja. Byggingarefnið var svo dýrt, að ekki var kleift mennskum mönnum að kaupa það. Sementið var þá t. d. á 60 kr. tunnan hér á höfn. Þá var því útilokuð sú leið að auka byggingar. Nú eru sem betur fer ekki slíkar ástæður fyrir hendi. Verð á byggingarvorum má heita skaplegt. Verð á sementi er t. d. komið niður í 11 til 12 kr. tunnan. Þegar byggingar hófust aftur, sýndi það sig, að húsaleigunefndin var óþörf, enda var hún þá afnumin.
Eitt atriði var það eða röksemd í ræðu hv. þm., sem getur látið nógu vel í eyrum manna, en við nánari athugun fær illa staðizt. Hann sagði, að þeir, sem ekki þyrftu að taka háa húsaleigu, ættu ekki að fá að gera það í skjóli hinna, sem þess þurfa. Ég skil vel, hvað hv. þm. á við með þessu. Hann á við, að maður, sem t. d. byggir nú eða á þeim tíma, sem dýrtíðin var enn meiri, þurfi að fá hærri húsaleigu heldur en maður, sem byggt hefir á ódýrari tíma.
Þetta lætur vel í eyrum til að byrja með, að lægra eigi að leigja gömul hús heldur en ný. En skoði maður húsnæði sem hverja aðra markaðsvöru, kemur fram, hvað þessi röksemd er haldlítil. Við skulum hugsa okkur, að hv. þm. fengi eitt sumar ódýrari kaupamann heldur en nágrannar hans. Ekki færi hann að selja afurðir sínar fyrir minna verð fyrir það. Ekki færi hann að selja okkur mjólk eða dilka fyrir lægra verð en aðrir bændur, þó hann notaði ódýrari vinnukraft og þyrfti þar af leiðandi að kosta minnu til framleiðslunnar. Það verður hver að hafa happ sem hlýtur hvað þetta snertir. Sá, sem byggir óeðlilega dýrt hús, hlýtur að hafa skaða af því, hvort sem hann selur það eða leigir það út. Eins verður sá maður, sem er svo heppinn að komast yfir eitthvert verðmæti á ódýran hatt, sjálfur að hagnast á því. Ef einhver, sem byggt hefir fyrir stríðið, getur veitt jafngóða íbúð í húsi sínu eins og í nýju húsi væri, hygg ég, að engin nefnd tæki fullt tillit til þess við ákvörðun húsaleigu, að hann þurfti minna að kosta til hússins en þeir, sem nú byggja, enda væri það ekki rétt.
Það hefir verið minnzt á að ósamræmi væri í því, að skattaálagning er miðuð við brunabótaverð, en samkv. frv. á að miða húsaleigu við fasteignarnat. Það er alveg rétt, að í þessu væri hið mesta ósamræmi. Ég þekki hús, sem er metið á 70 þús. kr. eftir brunabótavirðingu. Samkv. því er leiga eftir það metin 7000 krónur við framtal til tekjuskatts. En fasteignamatsverð á sama húsi er 40 þús. kr. Ef það væri leigt fyrir þá hámarksleigu, sem gert er ráð fyrir í frv., yrðu það 6000 kr. Eigandi hússins verður m. ö. o., ef hann vill sjálfur búa í húsinu, að reikna sér 7000 kr. leigu, en ef hann leigir það öðrum, má leigan ekki fara fram úr 6000 kr. Vitanlega vex verðmæti hússins ekkert við það, þó eigandinn búi í því sjálfur. Ef farið væri að bera saman brunabótavirðingu og fasteignamat, hygg ég, að ekki yrðu fá dæmi svipuð þessu.
Hv. 1. þm. Árn. talaði um, að bankarnir hefðu lagt mikið fé í svonefndar villubyggingar. Sannleikurinn er sá, að bankarnir eiga mjög lítið fé í slíkum byggingum, sem byggðar hafa verið á seinni árum, þó óbeinlínis hafi þeir lagt fram fé til þeirra. Veðdeildin hefir verið svo að segja lokuð síðustu arin og mjög lítið verið lánað út á fyrsta veðrétt. En menn hafa tekið út sparifé sitt og fengið lánað sparifé hjá öðrum til þess að byggja fyrir. Það hefir því ekki verið með vilja bankanna, að þessar „villur“ hafa verið byggðar; en þeir hafa orðið að þola, að tekið væri út fé til þeirra, og hafa þannig tapað því, sem munar á sparisjóðsvöxtum og útlánsvöxtum, við það að lána ekki. Þessar byggingar eru yfirleitt nokkuð dýrar, en þó hygg ég, að meira orð hafi verið gert á því en ástæða er til. Það er ekki nema gott, að menn geti reist sæmilega vönduð hús, og þau eru bæjarprýði.
Flest húsin, sem undir þessu heiti ganga, eru þannig byggð, að eigandinn skaffar fleirum húsnæði, leigir öðrum undir sinni íbúð eða með sér, jafnvel meiri hlutann af húsinu. Það eru ekki margar af þessum „villum„ sem eru einstrengdar við það að vera eins manns íbúðir.
Annars býst ég við, að það hafi verið fremur hv. samþm. minn, 3. þm. Reykv., en ég, sem þessum skeytum um villubyggingar var beint til, því ég hefi aldrei verið svo heppinn að eignast „villu“.
Ég get rifjað það upp fyrir hv. þm., sent nokkuð var talað um í sumar, að húsaleigulög sem þessi verka á fleiri en einn hátt í þá átt að draga úr húsabyggingum. Það var algengt meðan gömlu húsaleigulögin voru í gildi, að menn, sem höfðu efni á að byggja, sátu í leiguíbúð í skjóli þeirra. Þeim þótti það búhnykkur, vegna þess hvað dýrt var að byggja. Í sömu átt verka lögin gagnvart þeim, sem byggja hús handa öðrum. Ég talaði við marga efnaða ,menn meðan gömlu lögin giltu, sem ekki þótti borga sig að byggja yfir sig sjálfa eða aðra. Eins mundi fara nú. Ýmsir, sem ekki hafa enn byggt yfir sig, en gætu þó gert það, mundu ekki gera það vegna þess, að þeir gætu sætt betri kjörum með því að leigja.
Ég gæti hugsað mér aðrar leiðir til að lækka húsaleigu, þar sem hún er of há, heldur en þá, sem frv. gerir. ráð fyrir, og það hægari leiðir. T. d. mætti stinga upp á að leggja sérstakan aukaskatt til bæjarins á þá húsaleigu, sem bersýnilega væri of há.
Hv. flm. má ekki halda, að við þm. Reykv., sem andmælt höfum þessu frv., skoðum okkur sem talsmenn þeirra, sem leigja út húsnæði, húsaleiguokraranna, sem hv. þm. kallar. (JörB: Ég held maður heyri tóninn). Við viljum þvert á móti stuðla að því að koma í veg fyrir of háa húsaleigu, en við álitum það ekki beztu leiðina að samþ. frv. hv. 1. þm. Árn.