10.03.1932
Neðri deild: 25. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1144 í C-deild Alþingistíðinda. (4141)

118. mál, húsnæði í Reykjavík

Einar Arnórsson [óyfirl.]:

Það er að eins stutt aths., ég ris væntanlega upp við 2. umr. málsins. Hv. flm. virtist, eins og stundum kemur fyrir menn í bardagahita, að hann sannaði of mikið, en sá, sem sannar of mikið, sannar ekki neitt. Annað var um olíuhringinn, en hitt um lögleigu. Lögleigudæmið sannaði einungis mitt mál. Ef við, hv. flm. og ég, eigum sína kúna hvor, og ég hefi keypt mína fyrir ærna peninga, en hann fengið sína að gjöf, þá verður lögleigan jöfn eftir báðar kýrnar. Hann hefir jafnmikinn rétt til þess að taka jafnmikla leigu og ég. Í þessu tilfelli er alls ekki hægt að taka tillit til þess, með hvaða kjörum við vorum að skepnunum komnir. Þetta dæmi sýnir því, að hv. flm. hefir gersamlega mistekizt. Okkur kemur saman um það, að brunabóta- og fasteignamatsvirðing sé sitt hvað af sömu eigninni. því að brunabótavirðingin tekur mikið tillit til lóðarinnar. Þetta er svo mjög, að mikið ósamræmi hlýzt af í hvívetna.

Við hv. flm. getum vitanlega talað um það nánar, hvort hægt sé að koma þar samræmi á milli. En við getum ekki gert út um það mál, því við ráðum ekki störfum skattstjórnarinnar hér í Reykjavík.

Ég geri ráð fyrir því, að við fáum tækifæri til að leiða saman hesta okkar af nýju við 2. umr. þessa máls.