16.03.1932
Sameinað þing: 5. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í D-deild Alþingistíðinda. (4181)

91. mál, niðurfærsla á útgjöldum ríkisins

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Þessi till. er nú að vísu fram komin öllu seinna en ég og hv. meðflm. minn höfðum ætlazt til. Þetta mál hefir að vísu einu sinni verið tekið á dagskrá áður, en var þá tekið út af dagskrá og umr. frestað.

Það þarf engum hv. alþm. að koma á óvart, þó till. komi fram í þessa átt, þar sem það er vitað, að ástandið meðal landsmanna — hið efnahagslega ástand landsmanna — er í flestum tilfellum af óviðráðanlegum orsökum miklu verra nú en það hefir verið undanfarin ár, um langt skeið.

Ég þarf ekki að lýsa því fyrir hv. alþm. né öðrum, hvaða áhrif hið geysimikla verðfall á íslenzkum afurðum hefir haft og hvernig það kemur niður á atvinnurekendur og atvinnuþiggjendur, yfir höfuð á atvinnulífið í landinu. Það hefir svo oft verið drepið á þau áhrif og þá örðugleika við umr. ýmsra mála, að ég þykist vita, að ég þurfi ekki að eyða tíma í að færa hv. Alþ. sönnur á það, að nú þurfi einhverra tilþrifa til að rétta hag ríkissjóðs og landsmanna.

Þegar maður lítur yfir þær raddir, sem þinginu hafa borizt frá ýmsum landsmönnum, og á ég þar við samþykktir þingmálafundargerða á síðustu tímum, þá getur maður ekki komizt hjá að sjá það, að víðsvegar um landið finnur þjóðin, í hvílíkt óefni er komið ástand fjármálanna í landinu. Það er því ekkert ofmælt, þótt ég segi, að það sé eindregin ósk þjóðarinnar, að þetta þing láti nú til sín taka um að draga úr hinni ofboðslegu eyðslu og þeim óhæfilega kostnaði, sem verið hefir í þjóðarbúskapnum á undanförnum árum.

Ég vil nú, til að færa sönnur á þetta atriði máls míns, gefa hv. Alþ. kost á að heyra nokkrar þær raddir, sem berast frá þjóðinni í þessu efni, og vil ég því, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp nokkrar samþykktir frá þingmálafundum víðsvegar úti um landið upp á það síðasta.

Í Dalasýslu var samþ. svo hljóðandi till.:

Fjárhagsmál: „a. Fundurinn skorar á þingmann kjördæmisins að beita sér fyrir því, að starfsmannalaun ríkisins verði betur samræmd og lækkuð hin hærri laun, annaðhvort með afnámi dýrtíðaruppbótar eða með einfaldri launalækkun þeirra, er ekki njóta dýrtíðaruppbótar, og fækkað verði starfsmönnum þar, sem tiltækilegt þykir. (Samþ. í e. hlj.).

b. Fundurinn vill alvarlega brýna fyrir þingi og stjórn að gæta allrar varúðar í fjármálum. (Samþ. með öllum atkv.)“.

Í sömu sýslu var samþ. till., sem snertir menntamál:

„Fundurinn skorar á þing og stjórn að leggja niður námstjóraembættin, þar sem ekki verður komið auga á, að embætti þessi séu til raunverulegra umbóta, en útgjalda fyrir ríkissjóð. (Samþ. með 10:1)“.

Svalbarði í Norður-Þingeyjarsýslu var samþ. svo hljóðandi till.: „Fundurinn álítur, að spara beri ríkisfé til hins ýtrasta, og leyfir sér í því efni að benda á: Að afnema dýrtíðaruppbót embættismanna. Að lækka laun embættismanna, einkum þeirra, sem hæst laun hafa. Að afnema óþörf og gagnslítil embætti. Að segja upp fólki við opinber störf, svo sem fært þykir.

Og meðan á kreppunni stendur: Að kosta ekki til bygginga af ríkisfé. Að kosta sem minnstu fé til fræðslu og skólahalds. Að veita sem minnsta styrki í fjárlögum“.

Snartarstöðum í Norður-Þingeyjarsýslu hefir verið samþ. svo hljóðandi áskorun:

„Fundurinn skorar á Alþingi að gæta ýtrustu varfærni við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1933, þannig, að tryggt sé, að þau verði ekki afgreidd með tekjuhalla.

Fundurinn telur, að yfirstandandi viðskipta- og fjármálakreppa skapi þá alþjóðarnauðsyn, að allar stéttir þjóðfélagsins lækki sinn lífeyri, og skorar hann, í sambandi við það álit, á Alþingi að afnema á næsta þingi lög um dýrtíðaruppbót af launum embættismanna og annara starfsmanna ríkisins, ef unnt er“.

Fundargerð úr Snæfellsnessýslu; þar segir svo:

„Fundurinn skorar á ríkisstjórnina og Alþingi að draga úr starfsmannahaldi ríkisins, afnema lítt þörf og óþörf embætti og stöður, afnema dýrtíðaruppbót og lækka laun hálaunaðra embættismanna og starfsmanna ríkisins, og yfir höfuð að gæta meiri sparnaðar í meðferð ríkisfjár en átt hefir sér stað undanfarin ár“.

Og svona heldur þetta áfram í hinum ýmsu sýslum landsins. Í Austur-Húnavatnssýslu er t. d. samþ. svo hljóðandi till.:

„Fundurinn skorar á þing og stjórn að gæta sérstakrar varfærni í meðferð fjármála á þessum erfiðu tímum. Í þessu sambandi vill hann benda á:

a. að óumflýjanlegt muni verða fyrst um sinn að fresta sem flestum eða öllum opinberum framkvæmdum, er heimta útlent efni.

b. að fundurinn er algerlega mótfallinn öllum atvinnuleysisstyrkjum.

c. að mjög æskilegt sé, vegna atvinnu kauptúnafólks, að halda að einhverju leyti þeim ríkisframkvæmdum, er lítils útlends efnis þarfnast, svo sem vegagerð, enda sé þess þá stranglega gætt, að þeim sé hagað þannig um kaupgjald, að á engan hátt dragi úr framleiðslu eða framkvæmdum einstaklinga“.

Ennfremur var samþykkt: að draga úr kostnaði við ríkisstjórnina, að afnema óþarfa embætti, að hætta óþarfri bókaútgáfu, að takmarka veizluhöld á ríkiskostnað.

Þetta var úr Austur-Húnavatnssýslu. Á Seyðisfirði var samþ. till., sem í almennum orðum felur í sér samskonar áskorun og þær, sem samþ. hafa verið í hinum kjördæmunum. Hún hljóðar þannig:

„Með tilliti til yfirstandandi fjárhagskreppu og hins erfiða hags ríkissjóðs skorar fundurinn á Alþingi að gæta meiri varúðar við afgreiðslu fjárlaganna en undanfarin ár hefir verið gert, og að binda hendur ríkisstjórnarinnar svo, að hún geti ekki framvegis sóað árlega milljónum króna fram yfir fjárveitingar fjárlaga“.

Svipuð áskorun var samþ. á Akranesi og í Vestmannaeyjum. Ennfremur var samþ. í Vestur-Húnavatnssýslu svo hljóðandi:

„1. Fundurinn skorar á þing og stjórn að gæta fyllstu varfærni í afgreiðslu fjárlaga. Jafnframt skarar fundurinn á þingið að lækka laun hálaunamanna, eftir því sem við verður komið.

2. Fundurinn skorar á Alþingi að fyrirbyggja svo sem unnt er, að ríkisstjórnin greiði svo nokkru nemi meira úr ríkissjóði en fjárlög heimila, nema því aðeins, að um lögboðin gjöld sé að ræða“.

Í Suður-Þingeyjarsýslu var samþ. svo hljóðandi:

„a. Fundurinn skorar á Alþingi að gera nú þegar róttækar ákvarðanir til þess að lækka fjárfúlgu þá, sem fer til embættismanna og starfsmanna ríkisins, og gera það með því: að fækka embættum og leita hagkvæmari skipunar á opinberum störfum; að afnema dýrtíðaruppbótina, og að lækka laun í hærri launaflokkum launalaganna“.

Í Norður-Múlasýslu er samþ. svo hljóðandi:

„a. Að engar frekari ábyrgðir verði teknar á ríkissjóð en þegar er orðið.

b. Að tekjur verði varlega áætlaðar og fjárlög afgreidd tekjuhallalaus“.

Og ennfremur:

„Að alþýðuskólum sveitanna verði breytt í vinnuhæli, þar sem atvinnulaust fólk geti stundað garðrækt og jarðrækt að sumri, en notið fræðslu á vetrum“.

Það er úr Norður-Múlasýslu, að þessi till. kemur.

Ég hefi af handahófi gripið þessar þingmálafundagerðir til að sýna lítið dæmi þess, hvað til hv. Alþingis berst af röddum þjóðarinnar um sparnað á ríkisfé. Ég veit, að þessar þingmálafundagerðir eru mjög mislitar að efni. En það má þó segja, að sá rauði þráður, sem gengur gegnum þær allar, sé það, að skora á stj. að hætta þeirri óhóflegu eyðslu, sem hefir átt sér stað undanfarið.

Það er nú staðreynd orðin, er ekki verður hrakin, að á árunum 1928–1930 hafði ríkisstj. með höndum um 15 millj. króna fram yfir það, sem þingið hafði gert ráð fyrir. Og eftir þeim upplýsingum, sem komu fram í þeirri ræðu, sem hæstv. fjmrh. hélt hér fyrir nokkru um fjárl., er það sýnt, að árið 1931 hafði ríkisstj. enn haft um 2 millj. kr. fram yfir þá áætlun, sem þingið hafði gert. Þessir peningar hafa allir orðið eyðslueyrir hjá stj. Og þar að auki hafa skuldir ríkissjóðs, sem vitað og viðurkennt er, að voru rúmar 11 millj. kr. árið 1927, vaxið svo, að í árslok 1930 voru skuldir ríkissjóðs, þrátt fyrir þessar miklu tekjur fram yfir það, sem þingið hafði til ætlazt, orðnar á milli 24 og 25 millj. Það þýðir það, að ekki aðeins allar umfram tekjur hinna góðu ára eru nú sokknar í skuldafen stj., heldur er nú einnig komin skuld þar, sem vera hefði átt innieign. Og þetta er þeim mun sorglegra, þegar þess er gætt, að atvinnuvegir landsmanna eru nú að sligast vegna þess, að hvorki bankarnir né ríkissjóður geta veitt þeim neina stoð. Úr mínu kjördæmi, þar sem nú er aflað af öllu kappi, hafa borizt bænarskrár til þingsins, stj. og bankanna um einhvern fjárhagslegan stuðning, þar sem undanfarnar vikur hefir varla verið hægt að halda útgerðinni þar gangandi. En þetta hefir ekki nokkra áheyrn fengið neinstaðar, hvorki hjá ríkisstj., þinginu né hjá bönkunum, enn sem komið er, svo ég viti.

Ég tek þetta dæmi til að sýna, hversu óskaplega févana ríkisstj. og bankarnir hljóta að vera, þegar stærstu framleiðsluplássin í landinu verða ef til vill að stöðva atvinnurekstur sinn vegna skorts á rekstrarfé.

Það sagði einn ferðamaður útlendur, sem var hér í sumar, að við Íslendingar værum léttúðugir í fjármálum. Hann benti á ýmsar byggingar, ýms stórhýsi, sem þá var verið að koma hér upp, þar á meðal sumum á ríkisins kostnað. Og hann sagðist ekki skilja, hvernig við gætum hugsað okkur, með svo litlum efnum, sem við hefðum yfir að ráða, að koma þessu öllu í framkvæmd á svo skömmum tíma.

Þetta mun láta nærri að vera satt. Hér hefir á undanförnum árum ríkt fullkomið ráðleysi um byggingar af hálfu hins opinbera. Það hefir verið lagt í þann kostnað, að enginn ráðdeildarsamur einstaklingur hefði látið sér detta í hug að gera það, sem ríkisstj. hefir gert allt frá 1927 til þessa dags. Skólar hafa verið byggðir í sveitum, stórar kastalabyggingar uppi í afdölum, sem kostað hafa óskaplegt fé. Það má vera, að þetta sé fallegt og geti fullnægt löngun þeirra manna, sem gaman hafa af að horfa á fallegar byggingar. En það kostar meira en fátæk þjóð getur borið. T. d. er bygging Laugarvatnsskólans eitt af þeim allra stærstu fjármálahneykslum, sem núv. hæstv. stj. hefir framið. Svo var nú víst heldur engin þörf á því, að byggður væri Reykholtsskólinn og lagður niður annar skóli, Hvítárbakkaskólinn, sem var alveg sambærileg stofnun þar rétt hjá. Það er ef til vill nógu gott, að það sé byggður kastali uppi í Reykholtsdal, og getur verið skemmtilegt að horfa á hann, en hitt hefði áreiðanlega verið happadrýgra, að þeir peningar, sem til þess fóru, væru nú í ríkissjóðnum, en ekki í þessari byggingu. Og svo er nú skólinn á Laugum, sem mér er sagt, að standi nú hálftómur þarna á heiðunum norður í Þingeyjarsýslu. Í Hrútafirði hefir líka verið byggð dýr skólabygging. Einn Múlsýslungur sagði mér það um Eiðaskólann, að hann væri nú svo illa sóttur, að hver nemandi þar myndi nú kosta landið um 1000 krónur yfir skólatímann.

En auk þess hafa þessir rándýru héraðsskólar verið bygðir að langmestu leyti í heimildarleysi, eða þar, sem heimild hefir verið til þess að byggja þá, hafa þær verið fyrir miklu lægri upphæðum en notaðar hafa verið.

Til viðbótar því, sem ég minntist á áðan um aðsóknina að þessum skólum, vil ég geta þess, að húsmæðraskólarnir á Laugum, Hallormsstað og Staðarfelli standa nú því nær tómir. T. d. sagði maður mér, að á Staðarfelli mundu nú vera annaðhvort 5 eða 7 námsmeyjar.

Þegar núv. hæstv. ríkisstj. komst að völdum, þá var það einskonar heróp hjá henni að breyta — að breyta. Hún ætlaði að afnema allt það gamla og koma svo fram fyrir hv. kjósendur og segja: Sjá, allt er orðið nýtt. — En breytingagirni ríkisstj. hefir kostað landslýðinn mikil fjárútlát, en fæst af því, sem hún hefir breytt, verið til bóta. Og hæstv. núv. dómsmrh. lét þess getið í blaðagrein fljótlega eftir að hann hafði komizt til valda, að framsóknarstjórnin hefði komið að landinu eins og nýyrki, tekið við því óyrktu og óbyggðu. Þetta gerði hæstv. ráðh. úr þeim átökum, sem hinar horfnu kynslóðir höfðu lagt á sig til þess að viðhalda þjóð og þjóðerni. Já, honum fannst landið ónumið og allt ógert, þegar hann tók við stjórnartaumunum. Þetta má til sanns vegar færast að einu leyti. Sá möguleiki var nefnil. fyrir hendi að stofna hér ótal embætti og starfa, til þess að skapa sér með pólitískt fylgi bitlingamanna. Það hefir líka verið ósleitilega gert allt fram á þennan dag. Að þessu leyti var landið ónumið, því að við höfðum átt því láni að fagna, að allt fram að þeim tíma, er núv. stjórn tók við völdum, höfðu engar stjórnir gert slíkt sér til framdráttar. En nú eru menn hættir að fylgjast með öllum þeim sandi af bitlingamönnum, sem landið úir og grúir af. Þó að allir bitlingarnir hafi að sjálfsögðu kostað landið stórfé, þá sé ég ekki svo mjög eftir peningunum; hitt er verra og alvarlegra, að þessar bitlingasnapir manna og austur stjórnarinnar hefir spillt svo mjög hugsunarhætti og siðferðistilfinningu fjölda manna, að þjóðin biður þess seint bætur. Um þetta var sögð skrítla hér á dögunum. Ég sel hana ekki dýrari en ég keypti, en öllu gamni fylgir þó einhver alvara, og því hefir skrítlan orðið til. Það er talið, að maður nokkur, sem sennilega hefir verið atvinnulaus, hafi sagt: Ég fer bara og geri eitthvað af mér, gerist svo Jónasarmaður og fæ bitling; þarf ég svo ekki að kvíða úr því. — Gaman þetta má að sjálfsögðu skilja á ýmsa vegu, en það hefir gengið svo til undanfarin ár, að margir þeir menn, er lítið hafa treyst á sjálfa sig, hafa leikið það að ganga á mála hjá stj., fengið hjá henni bitling og lifað svo áhyggjulausu lífi úr því.

Þá hefir höfuðstaðurinn ekki farið varhluta af stórhýsum stj. Eitt af því, sem breyta þurfti, var að fá skrifstofur ríkisins á einn stað, hætta að hafa þær á við og dreif. Ég skal fúslega játa, að það er þægilegra að hafa þær sem mest á einum stað, en allt má kaupa of dýru verði, og svo er um þessi þægindi. Hinn frægi Arnarhváll fór langt fram úr því, sem hann var áætlaður, og bezta sönnun þess, hve lítill sparnaður fyrir ríkissjóð hefir orðið að þeirri byggingu, er það, að nú alveg nýlega er búið að hækka leiguna fyrir þær skrifstofur, sem þar eru, svo skrifstofukostnaður þeirra ríkisstofnana, sem þær nota, er nú miklu hærri en hann hefir nokkurn tíma verið áður.

Þá er símastöðin nýja. Það er sama um hana að segja og Arnarhvál. Hún hefir farið langt fram úr áætlun, svo langt, að talið er víst, að hún muni kosta fullbúin hart nær 2 millj. króna. Ég býst nú við, að allt hefði gengið áfram á þessu landi og við verið jafnbrynjaðir til þess að mæta kreppunni, þó að Arnarhváll hefði ekki verið byggður og frestað hefði verið svo sem hálfan áratug að byggja símastöðina nýju. Það eru þessar breytingar, þessa miklu „tilþrif“ hjá hæstv. stj., sem hafa fært lítil gæði, en haft í för með sér stórkostlega aukin útgjöld fyrir ríkissjóðinn og landsfólkið, útgjöld, sem alla ætla að sliga, unga sem gamla, ríka jafnt sem fátæka, og er það sízt að undra, því að það er ekki aðeins kostnaður við framkvæmdir ríkisins sjálfs, sem hér er um að ræða, heldur hefir á hverju þingi undanfarið verið tekið meira og minna af atvinnurekstri, sem einstaklingar hafa annazt áður, og færður undir beinan ríkisrekstur, og má því til sönnunar benda á, að nú rekur ríkið verzlun, mikla skipaútgerð, viðgerðaverkstæði, prentsmiðju, síldarbræðslustöð, útvarp og síðast en ekki sízt brauðgerðarhúsið, sem nýlega var sett á stofn. Allar þessar stofnanir útheimta mikinn mannafla og mikla peninga og er því engu síður nauðsynlegt fyrir þingið að fylgjast vel með rekstri þeirra heldur en reksti ríkissjóðsins sjálfs, úr því að farið hefir verið inn á þá braut að reka þær á kostnað ríkisins.

Frá því hefir verið skýrt af núv. valdhöfum, að það hafi ekki verið svo lítill búhnykkur að setja ríkisútgerðina á stofn. Eimskipafélag Íslands hafði annazt útgerð Esju þangað til fyrir ákveðna fjárfúlgu árlega. Nú skyldi maður ætla, að reynt hefði verið að semja við Eimskipafélagið um að hafa áfram á hendi afgreiðslu strandferðaskipanna fyrir lægra gjald, en svo var ekki. Þetta stóra útgerðarbákn var sett á stofn án minnstu tilraunar um slíka samninga, og nú mun svo komið, að tap ríkissjóðs á hvoru strandferðaskipinu fyrir sig mun hafa numið 200 þús. kr. síðastl. ár, eða 400 þús. á þeim báðum. Í þessari upphæð kann að felast einhver viðgerðarkostnaður á Súðinni, sem ekki er nema eðlilegur, þar sem um er að ræða 40 ára gamalt skip, sem að sjálfsögðu þarf stöðugt mikið árlegt viðhald.

Þá er að nefna landhelgigæzluna. Hún er komin í þær ógöngur, að varðskipunum er lagt upp á víxl, og kostnaðurinn við hana komst árið sem leið upp í 800 þús. kr. Það ræður af líkum, að ekki hefði þurft að eyða þvílíkri fjárhæð til varðskipanna á einu ári, ef réttilega hefði verið að farið. En það virðist hafa verið eitt af stærstu áhugamálum stj. að misnota varðskipin eins og frekast var unnt, senda þau í eina snattferðina eftir aðra, oftast nær með pólitíska gæðinga sína. Í þessu sambandi er fróðlegt að minnast þess, sem ég las í dönsku blaði í fyrra. Tveir danskir stjórnmálamenn, er farið höfðu til Grænlands, höfðu fengið danska varðskipið Hvidbjörnen til þess að skjóta sér hingað til Íslands í veg fyrir skip þau, er héðan ganga til Danmerkur. Danska blaðið tók afarhart á þessu, taldi slíka misnotkun varðskipanna hreinustu ósvinnu. Hér kveður dálítið við annan tón í stjórnarblöðunum, Alþýðublaðinu og Tímanum. Þau eru ekki að hneykslast yfir því, þó að gerður sé leikur að því að misnota varðskipin, og það herfilega. Útgerðarkostnaður þeirra verður við það miklu hærri en hann annars þyrfti að vera, og landhelgigæzlan jafnframt svo lítilfjörleg, að hún má ekki aumari vera. Þó samþykkt væru jafnvel 5 ömmufrumvörp á ári, vegur það ekkert á móti því tjóni, sem landhelgigæzlan bíður vegna misnotkunar núv. stj. á varðskipunum. Afleiðing snattferðanna hefir og m. a. komið fram á landhelgisjóðnum. Hann hefir stöðugt gengið til þurrðar, og nú mun stj. orðið kunnugt um, að hann þolir ekki mikil álög frá því, sem nú er komið, því að í fjárlagafrv. fyrir 1933 er gert ráð fyrir að færa meira af kostnaðinum við landhelgigæzluna yfir á herðar almennings en verið hefir, þar sem lagt er til, að hlutar hans greiðist úr ríkissjóði á móti 2/5 úr landhelgisjóði, en áður greiddu hvorir fyrir sig, landhelgisjóður og ríkissjóður, helming hvor.

Þegar málefni síldarútgerðarinnar voru mest til umr. hér í þinginu, var svo að segja í öllum atriðum, er máli skiptu, stöðugt stríð milli Sjálfstæðisflokksmanna annarsvegar og stjórnarflokkanna hinsvegar um það, hvernig þessum málum yrði bezt skipað. Stjórnarflokkarnir sigruðu og komu sínum till. fram, en nú hefir tíminn leitt hið sanna í ljós (ekki blaðið Tíminn, því að hann leiðir sjaldan neitt satt í ljós), að tillögur þeirra voru til mestu vandræða og hafa komið þessum atvinnuvegi út í hreinustu ógöngur. Hefði því sennilega farið betur, ef svo mikil vitglóra hefði verið hjá þessum sameinuðu flokkum, Framsókn og jafnaðarmönnum, að þeir hefðu tekið þó ekki hefði verið nema lítið brot af till. andstæðinga sinna til greina. Má þá vel vera, að stj. hefði ekki neyðzt til þess að skera þetta afkvæmi sitt niður við trog, eins og nú er komið á daginn.

Um síldarbræðsluverksmiðjuna stóðu svipaðar deilur og um síldareinkasöluna. Hún var áætluð 1 millj. kr., og það var jafnvel gefið í skyn, að fyrir þá upphæð yrði hægt að byggja fleiri en eina verksmiðju, því alltaf var talað um, að fé þetta ætti að vera til byggingar síldarbræðslustöðva. En þessi eina stöð kostaði 1½ millj. kr. Sem dæmi um sparnaðinn við byggingu hennar, og jafnframt um það, hversu núv. stj. gengur langt í því að láta af hendi fé til stuðningsmanna sinna, má geta þess, að þegar lóð var fengin undir bygginguna á Siglufirði, voru fengnir 2 flokksmenn stj. til þess að meta lóðina. Þeim voru greiddar 4000 kr. fyrir ómakið, en er til átti að taka, kom það í ljós, að landið sjálft átti lóðina. Þetta er aðeins lítið sýnishorn af mörgum um meðferð fjármálanna hjá framsóknarstjórninni á undanförnum árum, en þó sláandi og henni einni líkt.

Þegar núv. stj. tók við völdum, setti hún fljótlega á laggirnar nefnd, sem nefndi sig ríkisgjaldanefnd. N. þessi kostaði að sjálfsögðu ærið fé. Hún gaf út stóra skýrslu, sem hafði inni að halda mikið af mannanöfnum og mikið af tölum. Skýrsla þessi var prentuð og útbýtt meðal ýmsra gæðinga stj. Maður skyldi nú ætla, að stj. hefði lært eitthvað af skýrslu þessari og tekið sig á um að draga úr gjöldum ríkissjóðs, en reynslan sýndi það gagnstæða, því að eyðsla hennar og bitlingaaustur náði fyrst hámarki sínu eftir útkomu þessa merkilega plaggs. Lítur því helzt út fyrir, að stj. hafi lesið út úr plagginu, að útgjöld ríkissjóðs væru allt of lítil og bitlingarnir allt of fáir. N. þessi varð því ekkert annað en ein af hinum mörgu eyðslunefndum stjórnarinnar, því vitaskuld kostaði hún stórfé. Á frv. þeim, er hæstv. stj. hefir lagt fyrir þetta þing, verður ekki séð, að hún í neinu víki af þeirri braut, sem hún hefir verið á. Ennþá gerir hún ráð fyrir nýjum nefndum og nýjum starfsmönnum, samhliða auknum útgjöldum fyrir ríkissjóðinn. Síðasta afrek hæstv. dómsmrh. hefi ég heyrt, að væri það, að setja löggæzlumann einhversstaðar austur á veginn til þess að standa þar á krossgötum og handa „Höskuldi“ heim í Árnessýslu. Annars hefir áfengislöggjöfin reynzt hentug fyrir hæstv. dómsmrh. til þess að unga út bitlingum, því að í skjóli hennar hefir hann sent út alla hina fjölmennu þefarastétt, sem farið hefir með síðustu sneplana af virðingu þjóðarinnar fyrir bannlögunum.

Nú standa sakir þannig hjá okkur, að heimskreppan er dunin yfir, útlit er fyrir, að tekjur ríkissjóðs rýrni að miklum mun, gróði góðæranna er eyddur og í stað hans eru komnar skuldir, en þjóðin dregst með heilan her bitlingamanna, bæði utan þings og innan, því að varla er hægt að benda á nokkurn nafnkenndan fylgismann stj., a. m. k. ekki innan þings, sem ekki hefir einhverntíma fengið hjá henni launað starf eða önnur fríðindi. Þannig er nú ástandið, þegar litið er á það eins og það er í raun og veru, og ekki verður séð, að stj. geri hið minnsta til þess að bæta úr því. En fylgismenn stj. stinga saman nefjum og leggja höfuð sín í bleyti til þess að finna einhver bjargráð, enda fæðast þau líka smátt og smátt. Í gær voru t. d. ekki færri en 7 ný skattafrv. á dagskrá. Bjargráðin verða því aðeins þau að íþyngja þjóðinni með nýjum álögum, til þess að þurfa ekki að stugga við bitlingahernum né dýrum ríkisstofnunum. En þjóðin mótmælir þessum aðförum. Það þarf meira til þess að vinna bug á kreppunni og hinu gálausa framferði núv. stj. heldur en bera fram frv. um háleiguskatt, stóríbúðaskatt o. s. frv. Það þýðir ekki að bera fram ný skattalög ofan á sligaða atvinnuvegi og félausa banka. Eina leiðin er að draga úr útgjöldunum við ríkisbúskapinn, og því er till. þessi fram komin, að við, er hana flytjum, viljum, að strax sé lagt á þá leið. Við álítum, að það þurfi að vera höfuðverkefni Alþingis í þetta sinn að draga úr kostnaði við ríkisbúskapinn og ríkisstofnanir, við ríkisútgerð, verzlun, útvarp o. þ. h. Eru fleiri slíkar stofnanir eign ríkisins, og kemur gróði þeirra eða tap á herðar gjaldenda landsins.

Þessi greinargerð mín er e. t. v. orðin nokkuð löng, en ég vildi aðeins rekja í stórum dráttum ástæðurnar fyrir þáltill. þessari, því að öllum er ljóst, að ekki má lengur svo búið standa um fjáraustur sem undanfarin ár. Vona ég, að Alþingi sjái sér fært að samþ. till. og verða við kröfum þjóðarinnar um niðurfærslu á gjöldum ríkisins. Þessi niðurfærsla er eina leiðin, sem nokkurn veginn er fær. Við ráðum ekki við afl heimskreppunnar og ekki heldur ráðum við því, hvaða verð fæst fyrir íslenzkar vörur á erlendum markaði, en hitt ráðum við miklu um, hvernig við höldum á fjármunum ríkisins.