21.03.1932
Sameinað þing: 6. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 333 í D-deild Alþingistíðinda. (4196)

91. mál, niðurfærsla á útgjöldum ríkisins

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Mér hefir skilizt á hæstv. forseta, að mikill vafi myndi leika á því, hvort þessi till. gæti komið hér að, vegna þess að hún færi í bága við 35. gr. stjskr. Þegar till. var borin fram hér í Sþ., vissum við, sem að henni stöndum, að fordæmi var fyrir því, að svipuð n. hafi verið skipuð af Sþ. Á ég hér við þá n., er skipuð var á þingi 1922, og hæstv. núv. forseti var einn af flm. að þeirri n.-skipun. Ástæður flm. fyrir nefndarskipuninni 1922 voru líkar eða nærfellt þær sömu og nú. Nú eru samt miklu fleiri stofnanir, sem ríkið rekur, en þá voru. Þetta veldur því, að slík nefndarskipun sem þessi er miklu brýnni nú en hún var 1922. Það er að vísu svo, að í till. frá 1922 er ekki farið fram á að krefja embættismenn um skýrslur, en nú má segja, að það sé nauðsynlegt, ef athuga á, hvar helzt eigi að koma fram sparnaðinum fyrir þjóðarbúskapinn. Þá verður einnig að vera hægt að ná til ríkisstofnananna eða þeirra fyrirtækja, sem rekin eru á ríkisins ábyrgð og kostnað, eins og til sjálfra ríkissjóðsútgjaldanna. Hæstv. forseti hefir sagt mér, að það leiki vafi á, hvort till. þessi komi ekki í bága við 35. gr. stjskr. En skipun n. eftir þeirri grein er allt annars eðlis en sú nefndarskipun, sem till. okkar gerir ráð fyrir. Gr. gerir ráð fyrir, að n., sem samkv. henni er skipuð, geti farið inn á verksvið opinbers rannsóknarréttar, þar sem hún fær heimild til þess að heimta skýrslur, ekki aðeins af embættismönnum, heldur einnig af einstökum mönnum. Hér er ekki um neitt slíkt að ræða, heldur er aðeins farið fram á, að embættismenn og forstöðumenn ríkisstofnana láti n. í té upplýsingar, er varða embætti þeirra eða stofnunar þeirrar, er þeir vinna við. Starfsvið hennar er því algerlega almenns eðlis. En ákvæði 35. gr. stjskr. gerir ráð fyrir n. með miklu víðtækari rannsóknarheimild en þessi till. Annars virðist það stríða á móti heilbrigðri skynsemi, ef sameinað Alþingi má ekki fara fram á við starfsmenn ríkisstofnananna, að þeir gefi skýrslur um hag stofnana þeirra, er þeir veita forstöðu, en hinsvegar geti hvor deild fyrir sig gert þetta. Það er líka þeim mun undarlegra, þegar hæstv. fjmrh. hefir lýst yfir því, að það sé því ekkert til hindrunar, að embættismenn séu látnir gefa skýrslur þær, er hér um ræðir. Ég vil því vona í lengstu lög, að hæstv. forseti sjái sér fært að láta till. okkar koma undir atkv.

Þegar fundi var frestað síðast, hafði ég ekki haft tækifæri til þess að svara því, er að mér hafði verið beint út af frumræðu minni.

Hv. 2. landsk. lét í ljós, að hann væri í raun og veru samþykkur því, að fram færi rannsókn eins og till. okkar fer fram á. En að öðru leyti var ræða hans nokkuð óljós og haltrandi til beggja hliða, ef átt hefði að skoða hana sem stuðning með till. Datt mér því í hug, þegar ég hafði hlýtt á hana, vísuhelmingurinn: Báðum fylgdi á sóknarsvið séra Einar hálfur“. Annars voru nokkur atriði í ræðu hv. þm., er ég þarf að leiðrétta. Hann var að tala um, að ég hefði verið að skamma ríkisgjaldanefndina, sem Framsókn setti á stofn. En það er annaðhvort misskilningur eða misheyrn hjá hv. þm. Ég nefndi n. þessa aðeins til þess að sýna fram á, hve lítil alvara hefði legið bak við skipun hennar hjá hæstv. stjórn. Hún mun hafa kostað ekki allfáar þús. króna, en stj. hefir ekki sýnt í verkum sínum, að hún hafi gefið eitt einasta nýtilegt ráð til þess að spara, þar sem hún hefir gert allt í öfuga átt við það, sem vinnast hefði átt með starfi n.

Þá vildi hv. þm. bera á móti því, að Alþýðuhlaðið væri stjórnarblað. En ég held, að hver sem hefir lesið það að undanförnu, þurfi ekki að ganga í grafgötur um, hvert það hefir stefnt. Það hefir ekki verið að halla á stjórnina, heldur stöðugt mælt henni bót, og í flestum tilfellum má segja, að það hafi verið sama efni í því og Tímanum, að undanskildu yfirskinsnarti, sem skrifað hefir verið til að blekkja fáfróða lesendur. Enda eru þetta gæðingar stjórnarinnar og hafa alltaf verið, þeir sem að blaðinu standa, þar á meðal þessi hv. þm., sem hér á hlut að máli.

Viðvíkjandi aths. hv. þm. um launakjör einstakra manna, þá hefir hv. 1. landsk. bent honum á, að hann sem bankastjóri hafi manna bezt tækifæri til þess að kynna sér þau. Þá gerði hann lítið úr þeim áskorunum, sem stæðu í þingmálafundagerðunum. Taldi þær nú sem fyrr ósamhljóða, þar sem önnur krafan kæmi úr austri en hin úr vestri. En ég hefi veitt því eftirtekt, að einmitt nú eru miklu háværari kröfur en verið hafa áður um það, að þing og stjórn gæti hins ýtrasta sparnaðar á landsfénu, og það eru mjög fáar kröfur um fjárframlög til einstakra héraða. Á þessu er því mikill mismunur frá því, sem verið hefir áður. Þetta er því vottur þess, að þjóðin er farin að skilja það betur en verið hefir, að ekki verður til langframa haldið áfram á þeirri braut, sem að undanförnu hefir verið farin að því er snertir eyðslu á ríkisfénu.

Ég hefi orðið þess var, að ýmsum af fylgismönnum stj. hefir þótt ég vera með óþarfa ádeilur á fjárreiður hennar í sambandi við þetta mál. Hæstv. fjmrh. sagði, að það kæmi úr hörðustu átt, að ég skyldi vera að deila á stj. fyrir það, hve landhelgigæzlan væri dýr, þar sem ég hefði fylgt því manna fastast fram, að nýtt skip yrði keypt í stað Þórs, er hann strandaði. Það er alveg rétt, að ég hefi jafnan verið fylgismaður þess að fá landhelgivarnirnar sem beztar og öruggastar, en það fylgir ekki með, að ég og þeir, sem mér hafa fylgt að málum um það, megum ekki láta í ljós óánægju okkar yfir því, þegar kostnaðurinn við þær fer langt úr hófi fram, langt fram úr því, sem þarft er og ríkið hefir efni á. En nú er svo komið, eins og kunnugt er, að ýmislegt er sett í samband við útgerð varðskipanna, sem ekki er nauðsynlegt eða landhelgigæzlunni viðkomandi, en eykur þó mjög á kostnaðinn. Misnotkun varðskipanna í ýmiskonar snattferðir er sem sagt öllum kunn. Þá er það heldur ekki til þess að draga úr kostnaðinum við varðskipin, eins og gengið hefir til nú að undanförnu, að 2–3 yfirmenn af þeim hafa gengið í landi á fullum launum, og orðið hefir að fá aðra menn til þess að vinna þeirra störf.

Þá má minna á það, að eyðslan í sambandi við björgunarstarfsemi Ægis er komin í það óefni, að hreint og beint er gengið fram af stj. Hefir hún því snúið sér til sjútvn. þingsins og beðið þær að koma á skipulagi að því er snertir greiðslur á björgunarlaunum til skipshafnarinnar. Um það hefir verið farið eftir öðrum reglum en tíðkast hjá nágrannaþjóðunum, þar sem um er að ræða björgunarlaun til manna á björgunarskipum. Þetta og fleira ýmisl. færir fram kostnaðinn eða minnkar arðinn af landhelgigæzlunni. Er því ekki hægt að koma ábyrgðinni á eyðslunni yfir á okkur stjórnarandstæðinga, sem engu ráðum um það, hvernig rekstri skipanna er stjórnað.

Hæstv. fjmrh. lét það skína í gegn í fyrstu ræðu sinni, að ég hefði ekki verið með réttu hugarfari, er ég talaði hér fyrst fyrir till. þessari, en hann viðurkenndi þó, að till. færi í rétta átt og að nauðsyn bæri til að stöðva skriðuna og koma lagfæringu á það ástand, sem komið væri á fjármálin, á svipaðan hátt og gert er ráð fyrir í till. Mér þykir því nokkuð hart, ef þingmenn í umr. um þetta mál teljast ekki með réttu hugarfari, þó að þeir leyfi sér að benda á nokkrar staðreyndir um það, hversu fé landsins hefir verið eytt í óþarfa. Ég taldi aðeins fá dæmi og held, að ég hafi farið rétt með. Hæstv. ráðh. fann og engin atriði, er hann teldi, að mótmæla þyrfti sem röngum, að því er virtist af svarræðu hans. Þó fann hæstv. ráðh. ástæðu til þess að átelja mig fyrir að hafa ekki verið með rétt hugarfar. Þvílíkur siðapostuli mun eiga sér fáa líka.

Nú er það upplýst, að frá hans hendi hafa engar till. komið fram, er miða að því að stöðva eyðsluna í verulegum atriðum. Þvert á móti fara flest frv. hans og hæstv. stj. fram á áframhaldandi aukin útgjöld ofan á það, sem áður er komið. Hæstv. ráðh. gat þess fyrir nokkru undir umr., að till. hans til sparnaðar lægju fyrir í fjárlagafrv. því, er hann hefði lagt fyrir þingið, en þær eru í því fólgnar að klípa örlítið af fjárveitingum til einstakra héraða. Þar er um enga stefnubreyt. að ræða, heldur áframhaldandi viðleitni til þess að auka útgjöldin, eins og alltaf hefir átt sér stað síðan núv. stj. tók við völdum. Ég veit ekki, hve aðrir hv. þm. treysta sér til þess að hefla seglin mikið þegar þeir koma í námunda við hæstv. stj. og fara að ræða við hana um meðferð fjármálanna undanfarið. Hvað mig snertir, þá tel ég þess enga nauðsyn, og það jafnvel ekki, þó að hæstv. fjmrh. tali um, að ég deili of hart á hana, og þar að auki ekki með réttu hugarfari. Ég held, að hæstv. ráðh. geti ekki haldið því fram, ef hann vill líta með sanngirni á málið, að þm. hafi ekki réttindi og skyldur til þess að benda stj. á galla þá, sem bersýnilegir eru á stjórnarfarinu, og ef nokkursstaðar er til sá rétti vettvangur til þess, þá er hann hér á Alþingi.

Hæstv. ráðh. vitnar oft í ræðum sínum til þeirra venja, sem tíðkast í Englandi. Það má vel vera, að það tíðkist þar, að stj. skipi slíkar n. sem þessa og að allt fari þó vel. En það gilda líka ýmsar aðrar venjur í Englandi, sem menn virðast ekki fara mikið eftir hér á Íslandi. Má þar t. d. nefna siðferði í opinberum málum, sem ennþá vantar mikið á, að við náum til nokkurs samjafnaðar við Breta.

Þá vil ég leyfa mér að minna hæstv. fjmrh. á það, að þar sem hann hefir alltaf verið mikils ráðandi maður innan síns flokks og síðan setzt í ráðuneytið, hefir hann tekið á sig nokkra ábyrgð á öllu því, sem gerzt hefir síðan núv. stj. tók við völdum. Ég hefi áður bent honum á það, að af hálfu stj. hefir ekkert verið gert, er bendir í þá átt, að nokkur hugarfarsbreyting sé hjá henni að því er snertir meðferð fjármálanna. Ef bera á saman aðferð hinna ensku stjórnmálamanna, sem hæstv. fjmrh. og hæstv. forsrh. helzt látast vilja taka sér til fyrirmyndar, verður mismunurinn sorglega mikill. Hvað var það, er gerðist hjá jafnaðarmannastjórninni á Englandi á undan síðustu kosningum þar í landi? Tveir helztu ráðherrarnir sjá það, að stefna flokks þeirra er að fara með fjárhag ríkisins í ógöngur, að atvinnuleysi vex hröðum skrefum í landinu og fjárhagurinn versnar með degi hverjum. Hvað gera þeir þá? Streitast þeir við að halda í völd í skjóli flokks síns og sitja í trássi við þjóðarviljann? Nei. Allri veröldinni er kunnugt um, hvað þeir Mac Donald og Snowden gerðu, er þeir sáu, að allt stefndi til hruns. Þeir brutu af sér öll flokksbönd og tóku höndum saman við alla þá, er vildu vinna að alhliða viðreisn ríkisins. Ég býst við, að flestir séu sammála um, að þeir hafi gert rétt. En hvenær skyldum við sjá fram á það, að íslenzka stjórnin afsali sér því að vera bara flokksstjórn og reyni að verða þjóðstjórn? Það er vitanlegt, hver varð árangurinn af föðurlandsást og stjórnmálalegum þroska þessara tveggja ensku þjóðmálaskörunga. Þeir, sem vinna vildu að fjárhagslegri viðreisn ríkisins, unnu stórkostlegan sigur við kosningarnar, og öll umbótaviðleitni stj. hefir þegar borið glæsilegan árangur, svo búizt er við, að sparnaðurinn við ríkisbúskapinn nemi fleiri millj. punda.

Íslenzka þjóðin sér nú fram á tímamót. Það ástand, sem hjá henni hefir ríkt að undanförnu að því er stjórn á fjármálum ríkisins snertir, er að verða henni um megn. Hún getur ekki búið lengur við þá ofureyðslu á fé ríkisins, er hún hefir orðið að búa við nú hin síðustu ár, og hún þolir ekki á þessum tímum, að lagðir séu á hana þungbærir viðbótarskattar á skatta ofan. Þjóðin hefir sjálf krafizt þess, að sú leið yrði farin, sem túlkuð er í, till. á þskj. 91, þ. e. að þingið geri skyldu sína um niðurfærslu á rekstrarkostnaði við þjóðarbúið og ráðist þá fyrst á þá eyðslu, sem þjóðin getur án verið. Býst ég við því, að meðal almennings séu nú helzt þær kröfur gerðar til þingsins, að mannréttindamálum sé sinnt að fullu og að gerðar séu ráðstafanir til að draga úr kreppunni og óhóflegri eyðslu ríkissjóðs; sem verið hefir. Þar sem ekki hafa komið fram ákveðnar till. um þetta annarsstaðar frá, þá finnum við stj.andstæðingar okkur knúða til að bera fram þessa till. Um örlög hennar fer svo sem meiri hluti þingsins vill; við ráðum ekki yfir því nema að nokkru leyti.