21.03.1932
Sameinað þing: 6. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í D-deild Alþingistíðinda. (4197)
91. mál, niðurfærsla á útgjöldum ríkisins
Jón Baldvinsson:
Langt er nú síðan mál þetta var hér fyrst til umr., og er ég búinn að gleyma ýmsu, sem ég hefði annars tekið til athugunar.
Hv. 1. landsk. véfengdi, að það væri rétt hjá mér, að tveir stóru flokkarnir hefðu verið ófúsir á það að endurskoða launalöggjöfina. Vildi hann a. m. k. þvo þetta af sjálfum sér og sínum flokki. Þóttist hann geta skjalsannað þetta. Má vel vera, að eitthvað slíkt sé bókað í fundargerðum þingnefnda um afstöðu hans og einstakra flokksmanna hans, en lítið hefir komið fram í umr. á Alþingi í þessa átt. Hafa báðir flokkarnir verið sammála um það að draga málið á langinn, og hafa þeir viljað hafa grunnlaunin lág með dýrtíðaruppbót, eins og verið hefir bæði í stjórnartíð Íhalds og Framsóknar.
Annað, sem hv. 1. landsk. vék að, var rekstur einkafyrirtækja, sem ég drap á. Ég taldi það þýðingarmikið, að slík n. fengi það mál til athugunar, og féllst hann á, að það gæti verið gott til samanburðar. En ég álít einnig, að þetta sé mál, sem þingið geti líka látið sig varða, því að óþarfa eyðsla einkafyrirtækja er skaðleg fyrir þjóðina á jafnerfiðum tímum og nú eru og við slíkan skort á erl. gjaldeyri sem nú er. Spurði ég því hv. flm. till., hvernig þeir myndu taka í slíka breyt., og fékk það svar, að þetta væri verk bankanna. Vék hv. 1. landsk. því til mín, að ég myndi hafa aðstöðu til að hafa áhrif í þá átt. Er þetta rétt, og hefir það e. t. v. verið gert að nokkru, en þetta er þó aðeins hægt um þau fyrirtæki, sem svo eru upp á lánsstofnanirnar komin, að þau verði að sitja og standa sem þær vilja. En þessi n. gæti gert mikið. Hún gæti t. d. birt skýrslur um launagreiðslur einkafyrirtækja og sýnt fram á, hversu skaðlegt sé, að einkafyrirtæki greiði svo há laun, að ríkið sé ekki fært um að keppa við þau um starfsmenn nema það grímuklæði launagreiðslur sínar. — Hafa báðir flm. tekið þessari till. illa, þótt auðséð sé af þessum ástæðum, að vel er þess vert, að málið sé nánar athugað. (JJós: Bankarnir eru einfærir um að gera þetta).
Hv. 1. landsk. gerði ráð fyrir því, að n. þessi myndi starfa á þinginu, en í þinglok mætti svo athuga, hvort heppilegt væri, að hún starfaði lengur. Skildist mér hann ætlast til, að n. starfaði lengur en um þingtímann, enda eru flestir sammála um það, að n. myndi lítið starfa um þingtímann, er þm. eru öðrum störfum hlaðnir. Hafði ég því búizt við, eftir þessum ummælum hv. 1. landsk., að n. gæti starfað áfram eftir að þing er hætt, sem maður veit ekki, hvenær verða muni; ganga um það ýmsar sögur, og er ekki víst, að svo langt verði þangað til.
Hv. flm. hafa sem sé tekið heldur óliðlega í till. mínar, en þó vil ég ekki vera að koma fram með brtt., og mun ég og flokkur minn greiða till. atkv., eins og ég lýsti yfir á dögunum.
Ef litið er á þessa n.skipun frá sjónarmiði flokkanna, þá er aðgengilegra fyrir þann flokk, sem ekki gæti annars komið að manni, að skipuð væri þriggja manna n., og tilnefndu flokkarnir hver sinn manninn. Gætu þá allir flokkarnir haft þarna fulltrúa, en Alþýðuflokkurinn gæti annars ekki komið að manni í þriggja manna n., nema með samþykki hinna flokkanna.
Aðalflm., hv. þm. Vestm., hefir tekið illa upp ummæli mín hér á fyrra fundi um rökstuðning hans á till. Þótti honum stuðningur minn við till. óljós. Játaði hann þó, að við jafnaðarmenn ætluðum að greiða henni atkv. Sé ég nú ekki, hver stuðningur er ljósari og betri en þessi, að fylgja till. við atkvgr. Hitt er satt, að rökstuðningur okkar á þessu máli er ólíkur, eins og öðrum. Hv. þm. veit vel um muninn á stefnuskrá Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Þeir eru þar á öndverðum meiði, en aftur eru sjálfstæðismenn og Framsókn á sama máli. Eru þeir flokkar miklu nær hvor öðrum en Alþýðuflokkurinn hvorum þeirra. Er það t. d. eins og dómsmrh. og þm. G.-K. hafi svarizt í fóstbræðralag um það að koma fyrir kattarnef öllum till. jafnaðarmanna um þjóðnýtingu. Virðist ofmetnaðurinn vera svo ofarlega í huga hv. þm. Vestm., að hann heimti, að allir, sem greiða atkv. eins og hann, hafi einnig sama hugarfar og hann sjálfur. Benti ég á veilur í röksemdafærslu hans, t. d. þá, að lesa upp aðeins aðra hliðina á þingmálafundargerðum. Hitti það hann víst ónotalega, því að það fannst á, að móður var í honum, er hann tók til máls til andsvara.
Held ég ekki, að ég þurfi að hafa þessi orð fleiri. Hefi ég gert grein fyrir afstöðu okkar og eins því, að til hennar liggja ekki sömu rök og hinna flokkanna. Kann það að vera, að við séum sammála sjálfstæðismönnum um ýms mál, jafnvel líka stundum um rökin, en svo er ekki í þessu máli. Erum við ekki trúaðir á þessa n. Hefir áður verið til slík n., og varð þó árangurinn lítill. Íhald og Framsókn virðast vera sammála um launagreiðslufyrirkomulag opinberra starfsmanna, og hafa þar hvorugir viljað neinu breyta. Aftur hafa hvorirtveggja verið sammála í því að lækka kaup verkafólks þess, sem starfar hjá því opinbera.