02.05.1932
Neðri deild: 65. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í D-deild Alþingistíðinda. (4227)

150. mál, landvist erlendra hljómlistarmanna og um skemmtanaleyfi til handa úlendingum

Jónas Þorbergsson:

Þegar hv. þm. Borgf. bar fram till. þessa hér í hv. deild, kom mér í hug að afla upplýsinga um það, hvernig slíku væri háttað í nágrannalöndunum. Var því sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn sent skeyti, þar sem spurt var um þetta og óskað upplýsinga. Vil ég lesa svarskeyti hans upp, með leyfi hæstv. forseta:

„Út af fyrirspurn óskast tjáð Jónasi Þorbergssyni: Skemmtanaskattur nágrannalöndum sami fyrir erlenda og innlenda. Samkv. gildandi lögum í Danmörku um útlendinga þurfa útlendingar leyfi til stunda atvinnu hér. Þetta nær einnig til hljómlistarmanna. Leyfum oft neitað seinni tíð. Venjulega neitað, ef um atvinnu ræða, en ekki, ef einstaka hljómleika. Atvinna talin, ef menn gefa hljómleikaröð, Í eða fleiri stöðum. Greinarmunur gerður sönnum listamönnum og atvinnuhljómleikurum. Lík ákvæði nágrannalöndum. Danmörku praksis neita ekki Norðmönnum, Svíum umrædda atvinnu. Líkt Svíþjóð, Dani, Norðmenn. Noregi nokkuð óvissari praksis þessu atriði.

Sendiherra“.

Þannig hljóðar skeyti sendiherra. Verð ég að segja, að þótt ég sé í raun og veru sammála hv. þm. Borgf. um efni og tilgang till. hans, þá finnst mér ekki hyggilegt, að deildin samþ. hana án þess að n. athugi áður. Legg ég því til, að henni verði vísað til n. Þótt ástandið nú geri nauðsynlegar mjög óvanalegar ráðstafanir, þá væri það þó hastarlegt að neita öllum erlendum hljómlistarmönnum um landsvist hér. Getur það verið skynsamlegt stundum, en kemur ekki til mála, að svo verði alltaf. Afleiðing af því yrði, að Ísland færi á mis við margt af því bezta á þessu sviði.