19.03.1932
Neðri deild: 33. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í C-deild Alþingistíðinda. (4244)

149. mál, verðhækkunarskattur

Jón Auðunn Jónsson:

Hv. flm. gaf mér ekki svar við mínum fyrirspurnum, fyrst og fremst þeirri, hvort veðréttur ætti að víkja fyrir skattinum. Í öðru lagi, hvort honum fyndist sanngjarnt að taka verðhækkunarskatt, ef krónan væri komin niður í 10 gullaura, þótt menn seldu fyrir tvöfalt verð frá því 1914. Hinsvegar er víst, að fasteignamatið, sem framkvæmt var frá 1916–1918, var um 25% hærra en verðlag 1914. Sumstaðar hefir þetta talsvert lækkað. Ég þekki t. d. heila sýslu, þar sem fasteignamatið var ekki nema 8–10% hærra eftir fasteignamati en verðið frá 1914. Þá hygg ég það nokkurn vanda að dæma um, hvort um sé að ræða „pro forma“sölu eða raunverulega. Ég veit, að sumir líta svo á, að í fasteignamatinu, sem nú á að ganga í gildi um næstu áramót og framkvæmt hefir verið af fasteignamatsnefndum úti um land, hafi verðið verið sett svo hátt, að óhugsandi sé, að jarðirnar seljist við því verði. Ekki mun vera hægt að fá hina venjulegu jarðrentu, 4% af matinu, upp úr jörðunum. Og ég þekki mörg dæmi þess, að ekki er hægt að fá jarðrentu miðað við það mat. (HStef: Þá þarf ekki að óttast verðhækkun). Það getur farið svo samt, ef krónan felli niður í 10 gullaura. Þá myndi söluverðið hækka. (HG: Og söluverðið þurrkast út um leið). Flestir skulda, þótt það sé oft minni hlutinn, sem betur fer. Annars væri illa komið.

Ég verð að segja það, að þessi hugmynd eins og hún kemur fram, að skatturinn fari ekki eftir raunverulegu verði, heldur eftir pappírsverði, er alveg fráleit, að minni hyggju.