17.03.1932
Neðri deild: 31. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1189 í C-deild Alþingistíðinda. (4302)

152. mál, stóríbúðaskattur

Héðinn Valdimarsson:

Það er ekki í fyrsta sinni, sem frv., sem borin hafa verið fram af Alþýðuflokknum, eru tekin upp af Framsóknarflokknum, breytt eitthvað, og oftast til hins verra, og borin svo fram í allt öðru skyni heldur en ætlazt var til upphaflega. Það eru nú hvorki meira né minna en 3 frv., sem þessi armi Framsóknarflokkur hefir tekið upp úr frv., sem við þm. Alþýðuflokksins fluttum hér á fyrra þingi, og ber þau nú fram, eftir að hafa snúið þeim upp í tekjuöflunarfrv. fyrir ríkissjóð.

Þessi málaþjófnaður er orðinn svo algengur, að það veitti ekki af, að við Alþýðuflokksmenn létum, þegar við flytjum frv., prenta á þau: Öll réttindi áskilin. — Við komum í fyrra með þetta frv. sem einn hluta af kreppufrv. því, sem við fluttum, þar sem við lögðum til, að til atvinnubóta væri lagður á háleiguskattur og stóríbúðaskattur. En eins og flm. koma nú með þetta frv., eiga tekjurnar af þessum skatti að renna til almennra ríkissjóðsþarfa. Og þá er allt öðru máli að gegna um það, hvort við Alþýðuflokksmenn sjáum okkur fært að fylgja því. Ég vil þó geta þess, að við munum ekki leggjast á móti því, að frv. gangi til n., en munum flytja við það þá brtt., að tekjur af því renni einungis til að byggja verkamannabústaði í kaupstöðum. því til hvers annars væri þeim betur varið en að reisa fyrir þær íbúðir fyrir fátækari hluta íbúa í bæjunum? Það er sanngjarnt, en engin ástæða til að fara að taka þennan skatt af kaupstaðabúum og verja honum svo til allt annars, e. t. v. til framkvæmda í sveitunum.