17.03.1932
Neðri deild: 31. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1198 í C-deild Alþingistíðinda. (4307)

152. mál, stóríbúðaskattur

Ólafur Thors:

Mér þótti vænt um að heyra játningu hv. flm., að það væri rétt hjá mér, að frv. þetta, ef að lögum yrði, gæti orðið til þess að draga úr byggingum, en hann bætti því við, að það myndi einnig draga úr þörfinni fyrir byggingar.

Hið fyrra er rétt hjá hv. flm., en hið síðara rangt, því að eins og ég benti á, er ekki hægt að setja lagafyrirmæli um það, að þeir, sem hafa stórar íbúðir, skuli minnka við sig. Húsunum er mörgum þannig fyrir komið, að það er beinlínis ekki hægt að leigja þau út.

Ég tel það mikilsvert atriði, að hv. 1. flm. skyldi játa, að frv. gæti orðið til þess að draga úr byggingum. Mér er því óskiljanlegt, að hann, sem viðurkennir þörfina á auknum byggingum, skuli bera fram frv., sem dregur úr þeim.

Hv. flm. sagði, að ég hefði talið mig samþykkan stefnu frv., en það er ekki rétt. Ég sagðist vera fylgjandi þeirri stefnu, að ríkið aflaði sem mest tekna með sköttum af eyðslu manna, en ég er fyrst og fremst á móti frv. af því, að ég er á móti því að veita núv. stj. nýja tekjustofna, og í öðru lagi af því, að mér er það ljóst, að það mun draga úr byggingum og verða að því leyti til þess að hækka húsaleigu og auka dýrtíðina, en í þriðja lagi er ég á móti því af því, að því er beinlínis stefnt á Rvík eina. Ég tel því ástæðu til þess að athuga, hvort ekki sé rétt að geyma þennan tekjustofn bænum til handa.

Ég ætla ekki að fjölyrða um ræðu hv. þm. Seyðf. Það fór fyrir honum í síðustu ræðu hans eins og fyrr. Hann ætlaði að hnýta í Framsókn, en sá ekkert nema Sjálfstæðisflokkinn og réðist að honum með offorsi. En það vil ég segja þessum hv. þm., að hann þarf ekki að hvessa augun á mig. Ég hefi ekki „stolið“ till. hans um kosningarrétt sveitarlimanna. Ég veit ekki betur en ég hafi frá því fyrsta, er ég kom á þing, verið því fylgjandi að fella niður þau ákvæði 29. gr. stjskr., sem svipta þá menn kosningarrétti, sem þegið hafa sveitarstyrk. Ég hefi bæði talað með því og greitt með því atkv. Hv. þm. þarf ekki heldur að bera mér á brýn, að ég hafi hnuplað frá honum till. um það, að atkvæðisréttur allra kjósenda í landinu skuli vera jafn. Ég hefi alltaf fylgt því. Í einu orði sagt, hann þarf ekki að búast við því að finna nokkurn af sínum krögum í mínu bæli. En hitt þarf engan að undra, þótt einhver þeirra finnist í bæli Framsóknar eftir 5 ára hjónaband.