17.03.1932
Neðri deild: 31. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í C-deild Alþingistíðinda. (4308)

152. mál, stóríbúðaskattur

Flm. (Jónas Þorbergsson):

Hv. þm. Seyðf. var mjög glaður yfir hugarfarsbreytingu sjálfstæðismanna í kjördæmamálinu. En hversu glaðir mega þeir þá ekki vera aftur yfir hugarfarsbreytingu Alþýðuflokksmanna að því er snertir afstöðu þeirra til eignarréttarins, því að harðvítugri vorn fyrir eignarréttinum getur varla en þeir hafa háð hér í dag. Þeir hafa tileinkað sér hugsanir manna, hvað þá annað, og er þá lengra gengið en ég og aðrir hv. þm. munu telja sæmilegt.

Hv. 2. þm. Reykv. fór út í einstök atriði málsins. Honum þótti t. d. upphæð sú, sem skatturinn er miðaður við, of lag. En eins og ég gat um í framsöguræðu minni, get ég vel fallizt á, að svo sé. Við flm. eggjum enga megináherzlu á, hvar takmörk upphæðarinnar eru sett. Það teljum við hlutverk n. þeirrar, er málið fær til meðferðar, að athuga. Það, sem við leggjum aðaláherzluna á, er það, að frv. megi verða sem sanngjarnast og réttlátast fyrir hagsmuni þjóðarinnar.

Að því er snertir ákvæði 3. gr. frv., um að skattstofan í Rvík skuli ákveða skattinn, vil ég taka það fram, að okkur flm. virtist það það réttasta, en jafnframt er gert ráð fyrir, að fjmrn. setji reglugerð um allt það, er varðar framkvæmd álagningarinnar.

Annars sé ég ekki ástæðu til að ræða mikið um einstök atriði frv. á þessu stigi. ég býst við, að n., sem fær það til meðferðar, athugi það eins vel og hún hefir tók á og færi það til betri vegar, því mér dettur ekki í hug að halda því fram, að í því geti ekki verið einhver atriði, sem betur mættu fara.