18.03.1932
Neðri deild: 32. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1203 í C-deild Alþingistíðinda. (4315)
153. mál, háleiguskattur
Flm. (Steingrímur Steinþórsson):
Ég hefi leyft mér ásamt þremur öðrum hv. þm. að bera þetta frv. fram. Á þessu stigi málsins ætla ég ekki að segja um það nema örfá orð.
Eins og allir vita, hafa fasteignir hækkað úr hófi fram á síðustu tímum, og þessi almenna verðhækkun fasteigna hefir kreppt meira að öllum almenningi en flestir aðrir þættir þeirrar miklu dýrtíðar, sem menn eiga nú við að búa. Það er í raun og veru svo, að atvinnurekendum er það til alveg eins mikils. skaðræðis, að verð á fasteignum sé of hátt eins og bóndanum eða útgerðarmanninum að þurfa að kaupa tæki til atvinnurekstrar síns of dýru verði.
Ég lít svo á, að almennur verðhækkunarskattur sé sjálfsagður til þess að hafa áhrif á þá óeðlilegu verðhækkun, sem iðulega á sér stað, — ekki svo mjög til að fá þessar tekjur, heldur fyrst og fremst til að halda fasteignum í hæfilegu verði, vera hemill á þeirri óeðlilegu verðhækkun, sem oft á sér stað um fasteignir og sem oft stafar af braski einstakra manna; veldur það öllum almenningi miklu tjóni, en kemur bröskurunum einum að gagni. Út í þetta mál ætla ég ekki að fara nánar nú, en það er þó náskylt því máli, sem hér er til umræðu.
Það hefir farið svo um þessa hækkun fasteigna, að mörg gömul hús, bæði í Reykjavík og öðrum kaupstöðum hér á landi, hafa verið leigð gegn óhæfilega hárri leigu, og þá, einkum þau hús, sem hafa verið í eign sama manns frá því 1914, þegar verðhækkunin byrjaði. Slík hús hafa verið leigð svo haft, að eins árs leiga hefir jafnvel numið því upphaflega verði hússins. hér er því um óhæfilega háa húsaleigu að ræða.
Í þessu sambandi vil ég nefna eitt einstakt dæmi, sem ég þekki, þó að það eitt sanni auðvitað ekkert sem almenna reglu. Ég kom í eitt slíkt hús hér í borginni nú fyrir fáum dögum til lítillar fjölskyldu, sem hafði litla íbúð, og þar var mér sagt, að sú íbúð hefði fyrir stríð verið leigð fyrir 10–12 kr., en nú 70–80 kr. Húsið hafði alltaf verið á sömu hönd, svo að ekki var kaupum og sölu um að kenna. Þar sem slíkur munur verður á húsaleigu að ástæðulausu, þá er auðséð, að leigan er langt úr hofi fram. Dæmi svipuð þessu eru til ekki svo fá. Þetta á að skattleggja; það er enginn minnsti vafi á því, og ekki sízt á tímum eins og nú, þegar margir eiga erfitt uppdráttar. Hér er réttlatur tekjustofn, þar sem svona miklar tekjur fást af eignunum.
Ég lít svo á, að þetta geti haft þau áhrif, að húsaleigan lækki, og það er í mínum augum miklu mikilsverðara en það, að þarna sé hægt að fá nýjan tekjustofn. Vitanlega vilja menn, að hver tekjustofn gefi sem mest. En ég óska þess, að ef einhver háleiguskattur verður lagður á slíkur sem þessi, þá yrði hann til þess, að húsaleigan mætti lækka og tekjur af þessum skattstofni þá um leið litlar.
Íbúðir í gömlu húsunum eru nú oft leigðar fyrir svipað verð og í nýbyggðum húsum, og þó vantar í mörg þeirra öll nýtízku þægindi, svo sem bað og miðstöð. Það er því ekki eingöngu svo, að eigendur slíkra húsa fái hlutfallslega miklu hærri leigu en þeir, sem leigja út ný hús, heldur er líka húsnæðið oft miklu verra.
Tillögur um slíkan skatt sem þennan hafa áður komið fram. Eins og tekið er fram í grg., var háleiguskatturinn einn liðurinn í frv. jafnaðarmanna á síðasta þingi í sambandi við atvinnukreppuna, og má því vænta þess, að þeir ljái þessu máli fylgi sitt nú. Og þegar húsaleigufrv. var hér til umr., þá sagði hv. 2. þm. Reykv., að sér fyndist rétt að leggja skatt á óhæfilega háa húsaleigu. Þetta bendir til þess, að einnig megi vænta stuðnings frá sjálfstæðismönnum til að koma þessu máli áfram. Það virðist því svo, að menn séu farnir að sjá, að hér má vinna tvennt í einu, fá tekjur í ríkissjóð og svo hitt, sem er aðalatriðið, stuðla að því, að húsaleiga lækki. Áhrif þessa skatts mundu vitanlega einkum koma fram í Reykjavík, nokkuð annarsstaðar á landinu, en auðvitað í miklu smærri stíl.
Ég álít, að á þessu stigi málsins sé ekki ástæða til að ræða einstök atriði frv. Ég vil aðeins taka það fram, að við flm. munum mjög fúsir til að ganga inn á breyt. á einstökum atriðum frv. T. d. skal ég ekkert um það segja, hvort sá skattstigi er réttur, sem stungið er upp á í frv., og geri ég ráð fyrir, að við getum til samkomulags gengið inn á einhverjar breyt. á því.
Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um frv. á þessu stigi málsins, en ég legg til, að samkv. eðli málsins verði frv. vísað til fjhn. að umr. lokinni.