29.03.1932
Neðri deild: 37. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1208 í C-deild Alþingistíðinda. (4331)

154. mál, eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum

Flm. (Steingrímur Steinþórsson):

Ég þarf ekki langa ræðu til að svara hv. þm. G.-K. Meginræða hans var um það, að stj. væri að leitast við að ná fullu einveldi yfir bönkunum og að eftirlitsmaðurinn myndaði mótvægi gegn því, án þess að ég viðurkenni, að hv. þm. fari hér rétt með mál, þá get ég samt bent honum á það, sem hann líka veit, að hver stjórnmálaflokkur sem er, eða stjórn hans, veitir þær stöður, er til falla, þeim einum mönnum, er hann treystir bezt, og þá einkum þeim mönnum, sem eru svipaðrar skoðunar. Þegar t. d. flokkur hv. þm. G.-K. sat við völd, þá var hann svo sem ekki að taka tillit til minni hl. eða afsala sér neinum réttindum til hans. Annars kom þetta ekki því máli við, sem hér er til umr., og er því tómt gaspur, en engin rök. Ég benti á það í fyrri ræðu minni, að það væri dómur alls almennings í landinu, að eftirlitsmaðurinn hefði ekki komið að neinum notum. Ég taldi sjálfan mig ekki svo bankafróðan, að ég gæti fullnaðardóm á þetta lagt. Ég benti því á, að eðlilegt væri, að þetta yrði rannsakað af n., sem m. a. leitaði sér umsagnar bankaráðanna. Bankaráðin eru einkum sett til eftirlits og yfirstjórnar með bönkunum. Þau ættu því að vilja hafa sem bezta tryggingu fyrir því, að störf bankanna séu vel unnin. Umsögn þeirra um nytsemi þessa starfs ætti því að gefa góða bendingu.

Hv. þm. G.-K. sagði, að eftirlitsmaðurinn væri gagnkunnugur öllum sparisjóðum landsins. Mér þykir nú hv. þm. setja sig á nokkuð háan hest, ef hann vill fá hv. þd. til að trúa því, að svo sé. Hann er áreiðanlega ekki kunnugur þeim. Hann hefir máske einu sinni komið í þá alla, en langt er nú um liðið síðan það var. Forstöðumenn sparisjóða hafa tjáð mér, að hið eina, sem þeir verði varir við, að eftirlitsmaður sé til, er það, að þeir verða að senda nokkrar krónur til greiðslu á launum hans einu sinni á ári. ég veit, að þetta er satt, þó hv. þm. G.-K. lýsi yfir því, að eftirlitsmaðurinn sé gerkunnugur sparisjóðum. Með frv. þessu er farið fram á það eitt, að athugað sé, hvort þetta starf hefir náð tilgangi sínum. Um nytsemi þess hefir nú fengizt alllangur reynslutími, svo nú ætti að vera hægt að fá um þetta nægileg rök. Ég veit, að allur fjöldi landsmanna telur, að þetta sé humbugsstarf, og óskir hafa borizt úr allmörgum kjördæmum, líka úr kjördæmum, þar sem flokksmenn hv. þm. G.-K. hafa öll ráð, um að starf þetta væri lagt niður. Er því rétt, að þetta sé athugað af n. og að hún leiti upplýsinga hjá bankaráðum hér og sparisjóðum úti um land. Það er hreinasti misskilningur að halda, að bankastofnanirnar eða forstöðumenn sparisjóða mundu hafa nokkuð á móti þessu eftirliti, ef það væri álítið að vera til gagns eða tryggingar því, að peningastofnunum væri betur stjórnað. Hv. þm. G.-K. sannfærir engan um, að svo sé, enda þótt hann orði það á sinn venjulega kurteisa hátt. Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta nú. Að vísu gaf hv. þm. G.-K. fullt tilefni til þess, að farið væri að segja bankasögu síðustu ára og sýna í sambandi við hana, hvers virði starf eftirlitsmannsins hefir verið. En út í það fer ég þó ekki nú, nema fyllra tilefni gefist.