29.03.1932
Neðri deild: 37. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1211 í C-deild Alþingistíðinda. (4339)

154. mál, eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum

Einar Arnórsson:

Ég ætla ekki að blanda mér í deilur þær, sem hér hafa orðið, en vil aðeins gera nokkrar almennar aths. við þetta mál.

Eins og sjálfsagt mörgum hv. þdm. er kunnugt, þá eru víða skipaðir eftirlitsmenn með bönkum og sparisjóðum. Svo mun það vera í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. Ástæðan fyrir því, að það er gert, er hin sama og hér, að rétt þykir, að ríkisstj. skipi óvilhallan fastan starfsmann, sem vit hefir á bönkum og bankastarfsemi, til þess að gæta að rekstri og framkvæma rannsókn á bönkum og sparisjóðum. Þeir ferðast um til að framkvæma þetta eftirlit, athuga þessi fyrirtæki, gefa leiðbeiningar og safna skýrslum um þau. Ég er því miður ekki kunnugur erindisbréfum þessara manna, og ekki veit ég heldur, hvort bankaeftirlitsmaðurinn hér hefir fengið nokkurt erindisbréf. En þessi hugsun, sem ég nú hefi lýst, er lögð til grundvallar fyrir starfi þessara manna, og í nágrannalöndunum þykir starf þetta nauðsynlegt, enda hafa engar raddir komið fram þar um að leggja það niður. Þessir menn starfa víst eftir erindisbréfi og framkvæma vissar rannsóknir eftir sérstökum skipunum. Ég geri ráð fyrir því, að líkt hafi verið farið að hér. Ég geri líka ráð fyrir því, að bankastarfsemi sé ekki rekin hér á landi með meiri ráðdeild, fyrirhyggju og samvizkusemi en í þessum löndum, sem telja þó nauðsynlegt að hafa slíkan eftirlitsmann. Að vísu fékk Landsbankinn hér bankaráð 1928 og Útvegsbankinn 1930. Hafa þau rétt til eftirlits með framkvæmd og starfsemi bankanna. En bankaráðin eru ekkert sérstakt fyrirbrigði hér á landi. Þau eru til við flesta eða alla banka á Norðurlöndum, skipuð líkt og hér og ætlað líkt starfsvið. En þessi bankaráð hafa yfirleitt gert lítið gagn. Nægir í því efni að vísa til reynslu Dana. Bankaráðsmennirnir hafa lítið annað gert en að halda fundi endrum og eins, t. d. einu sinni á mánuði eða svo, og hirða laun sín. Þegar svo banki hefir hallazt, þá hefir komið í ljós, að bankaráðsmennirnir hafa rekið starf sitt slælega og jafnvel — unnið að því með samþykktum sínum, fleiri eða færri, að þeir hafa gert bankanum óleik, þar sem bankastj. hefir kvatt þá til ráða.

Nú er ekki víst, að þetta gangi svo til hér, en bankaráðin eru þó engan veginn næg trygging fyrir því, að almenningur og stjórn geti fengið sannar og greinilegar skýrslur um hag bankanna hvenær sem er. Og þótt gengið væri nú út frá því, að bankaráð væri næg trygging fyrir þessu, þá er á það að lita, að sú trygging nær þá aðeins til tveggja bankanna, en ekki lengra. Við þriðja bankann og sparisjóðina alla eru engin slík bankarað. Þar er ekkert nema stjórn þeirra, sem venjulega er líka framkvæmdarstjórn sparisjóðanna. Þarf ekki annað en minna á sparisjóðinn á Eyrarbakka, sællar minningar. — Ég geri ráð fyrir því, að þetta starf eigi að koma að notum og muni líka gera það. Vona ég því, að málið verði vel athugað í þeirri n., sem við því tekur, og leiti upplýsinga um málið hjá þeim mönnum, er bezt til þekkja og hún nær til.