29.03.1932
Neðri deild: 37. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í C-deild Alþingistíðinda. (4349)

154. mál, eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum

Ólafur Thors:

Hv. 2. þm. Rang. færði það úr lagi, sem ég sagði um þetta mál. ég benti á, að á undanförnum árum hefði flokkur sá, er hann tilheyrir, lagt mikla ástundun á að ná yfirráðum yfir bönkunum. Og ég benti á það, að það væri illa til fallið nú, þegar hann er búinn að ná þessum yfirráðum, að þá komi frv. frá mönnum innan flokksins, þó að það séu kannske ekki ráðandi menn í flokknum, þar sem lagt er til, að afnumið sé eftirlit með gerðum þess meiri hl., sem framsóknarmenn hafa í stj. bankanna.

Hv. þm. þótti ósamræmi í því, að ég gat um það, að atvikin hefðu hér lagt þeim lið. Ég meinti, að stöðvun Íslandsbanka hefði gert þeim létta gönguna að þessu marki. Í orðum mínum lá ekkert annað.

Þá sagði hv. þm., að ég hefði fullyrt, að það væru engin rök í þessu máli, þó að sannað væri, að eftirlitið hefði að engu liði komið. Ég hefi ekki sagt neitt í þessa átt; þetta er algerður uppspuni. ég sagði, að það væru engin rök, þó að þeir, sem líta ætti eftir, kærðu sig ekkert um eftirlitið. Ég sagði þetta í sambandi við það, að hv. 1. flm. sagði, að ef ganga ætti úr skugga um, hvort embættið væri nauðsynlegt, þá væri bezt að spyrja þá, sem lita ætti eftir.

Ég vænti, að hv. þó m. séu mér sammála um það, að þetta embætti er ekki stofnað fyrir banka- og sparisjóðsstjórnir, heldur sé það vegna almenningsheilla, að verið er að líta eftir því, sem fram fer í þessum stofnunum.

Hv. þm. sagði, að hann teldi líklegt, að þetta kæmi að liði, ef starfið væri vel rækt. Ég vil í því sambandi taka undir það, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði, að þá á ekki að leggja embættið niður, heldur tryggja það, að starfið sé vel innt af hendi. Með þessum ummælum sínum játar því hv. þm., að það frv., sem hann sjálfur flytur, sé ekki eingöngu gagnslaust, heldur beinlínis skaðlegt.

Ég er ekki viss um, að hann hafi gert sér fulla grein fyrir, hvert er eðli þessa eftirlits. Hann virðist halda, að eitt það mikilvægasta í starfinu sé það, að eftirlitsmaðurinn geti gefið upplýsingar um það, í hve miklum ábyrgðum hver einstaklingur væri. Ég held, að þetta sé algert aukaatriði, en hitt aðalatriðið, sem hæstv. fjmrh. gat um, að eftirlitsmaðurinn geti á hverjum tíma gefið fjmrn. þær upplýsingar, sem það þarf að fá um þessi mál. Hæstv. fjmrh. sagði ekki meira en ég gat af honum vænzt, en það ætti samt að vera nóg til að sannfæra flokksbræður hans um það, að þetta frv. þeirra er ekkert nema vitleysa. Hæstv. ráðh. sagði, að hann hefði skamma stund unnið með eftirlitsmanninum, en þó nógu lengi til þess, að hann hefði á umsögn hans getað byggt afstöðu sína í því mikilvægasta fjármálaatriði, sem komið hefir fyrir þingið. Hann sagðist hafa snúið sér til hans og beðið hann um upplýsingar um Útvegsbankann, og á þeirri greinagóðu skýrslu, eins og hann orðaði það, hefði hann svo byggt afstöðu sína. Og hæstv. ráðh. sagði meira. Hann sagðist telja ágæti þessa embættis liggja í því, að eftirlitsmaðurinn gæti á hverjum tíma gefið fjmrn. mikilvægar upplýsingar, sem ekki væri hægt að vera án, eins og hann orðaði það. — Hann sagðist ekki vita, hvernig þessi maður hefði reynzt fyrirrennurum sínum, en þeir hefðu þó látið hann sitja í embætti. Ég veit ekki, hvernig á að leiða sterkari að því, að þetta frv. er staðleysa, heldur en gert er með þessari hlutdrægnislausu umsögn hæstv. fjmrh. Og rökin eru þessi: Í fyrsta lagi, að fyrirrennarar hans hafi látið eftirlitsmanninn sitja í embætti, í öðru lagi, að hann hafi, jafnvel þótt hann hafi skamma stund með honum unnið, fengið hjá honum greinagóðar skýrslur, sem hafi orðið honum að miklu gagni, og í þriðja lagi segir hann, að eftirlitsmaðurinn geti á hverjum tíma gefið upplýsingar, sem fjmrn. geti ekki verið án. Mér virðist engin þörf á sterkari rökum fyrir því, að embættið hafi verið rækt það vel, að engin ástæða sé til að kvarta undan. (Forseti: Þetta er aðeins stutt aths.). Það hefir nú svo mikið verið á mig deilt og ég hefi talað svo lítið á þessu þingi, að ég vona, að ég fái að tala í fáeinar mínútur ennþá, því að ég á eftir að svara hv. 1. þm. Skagf. Hann sagði, að ég hefði rangfært orð sín, en það er ekki rétt; ég fór rétt með þau. Hann sagðist játa það, að hann væri ekki svo bankafróður maður, að hann hefði vit á, hvort embættið væri nauðsynlegt, en það væri almennt lítið svo á; að það væri ekki neitt gagn í því. En það er nú ekki mikil von til þess, að almenningur hafi mikið vit á málinu, fyrst aðalflm. játar, að hann hafi ekki vit á því.

Þá vildi hv. þm. færa fram líkur fyrir því, að embættið hefði verið illa rækt, og tilfærði þar þau rök, að embættismaðurinn hefði undir vissum kringumstæðum ekki komið með viðvaranir í tæka tíð. Ég veit ekki, hvort hv. þm. veit það, en mér er kunnugt um það, eins og líka hæstv. ráðh. tók fram, að hann hefir gefið upplýsingar, sem hafa komið að miklu liði. (SvbH: Hvenær sagði hann það?). Hann sagði, að hann hefði gefið greinagóða skýrslu, sem hefði verið þess valdandi, að hæstv. ráðh. gat tekið afstöðu til málsins.

Þá fór hv. m. að tala um, að engar upplýsingar hefðu verið gefnar í tæka tíð, þegar Íslandsbanka var lokað 1930. Hv. þm. hefir auðsjáanlega ekki attað sig á því, að það, sem Framsóknarmenn álitu ótækt að gera þá, var álitið sjálfsagt að gera nú. Annars er það svo með þessi mál, að það er ekki hægt að útræða það á heilum mánuði, hvort eigi að taka ábyrgð á innstæðufé eða ekki. Slíkt verður annaðhvort að gera undir eins, eða það er gagnslaust, því að ef farið er að ræða um það, hvort eigi að veita bankanum slíka ábyrgð, þá taka menn auðvitað fé sitt úr honum, svo að bankanum verður að loka. Menn verða að skilja, ef þeir vilja dæma málið af sanngirni, að það er meira en lítið vandaverk að dæma um fjárhag bankanna á hverjum tíma. Íslenzku atvinnulífi er þannig háttað, að margir atvinnurekendur geta orðið gjaldþrota eða því sem næst, ef misæri skellur á, þó að í góðæri geti þeir staðið straum af skuldum sínum. En bankarnir eru ekkert annað en samnefnari af afkomu manna, og því ærið margs að gæta, þegar dæma skal um afkomu þeirra. Það má því ekki krefjast meira af eftirlitsmanninum en þess, sem hægt er með sanngirni að heimta af honum.

Hv. 2. þm. Rang. bauðst til að rétta mér hönd, ef ég vildi koma með sparnaðartillögur, og hv. 1. þm. Skagf. sagði, að þegar slík hreyfing væri svo sterk meðal þjóðarinnar, þá skammaðist hann sín ekki fyrir að bera þetta mál fram hér á þingi.

Hvaða hreyfing er það, sem er að magnast meðal þjóðarinnar? Halda þessir hv. þm., að íslendingar séu svo vitgrannir, að þeir áliti, að hag ríkissjóðs sé borgið með því að afnema þetta eina embætti? Nei, sú hreyfing, sem magnast meðal þjóðarinnar, er, að niður falli sú spilling, sem átt hefir sér stað á undanförnum árum í bitlingaveitingum stj. Það er sú hreyfing, að afnumin verði sem flest af þeim nýju embættum, sem stofnuð hafa verið eins og gýligjafir örlátrar stjórnar til fylgispakra flokksmanna.