15.03.1932
Neðri deild: 29. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í B-deild Alþingistíðinda. (435)
6. mál, gengisviðauki
Frsm. meiri hl. (Halldór Stefánsson):
Það er einfalt mál fyrir hv. þd. að taka afstöðu til þessa frv., eins og málið, sem afgr. var nú síðast, verðtollsfrv. Lögin um gengisviðauka eiga að falla úr gildi við lok þessa árs, en hinsvegar er í fjárlfrv. því, sem nú liggur fyrir þinginu, gert ráð fyrir, að tekjur af gengisviðauka haldist. Og ef þetta frv. verður ekki samþ., þá veldur það röskun á fjárlfrv.
Gengisviðaukinn hvílir nú aðeins á innflutningsgjaldi á vörum samkv. tolllögum, að undanskildu kaffi og sykri, en það er vín, tóbak og aðrar minni háttar tollvörur, svo sem súkkulaði, brjóstsykur o. fl. Samkv. því, sem tekjur eru áætlaðar af þessum vörum í fjárlfrv. fyrir næsta ár, má áætla gengisviðaukann 350 þús. kr. Ef þingið vill ekki framlengja gengisviðaukann, þá verður það vitanlega að sjá ríkissjóði fyrir tilsvarandi tekjum á annan hátt. Hygg ég, að ekki verði auðvelt að benda á auðveldari eða réttlátari leið til þess. Meiri hl. fjhn. mælir með þessu frv., en minni hl. tók enga afstöðu gagnvart því í n., en gerði ráð fyrir að gera það annaðhvort í sérstöku nál. eða við umr. Sérstakt nál. hefir ekki komið, og ég sé, að hvorugur minnihlnm. er hér viðstaddur. Hinsvegar mun afstaða minni hl. vera sú, sem lýst var við umr. hér í d. um næsta dagskrármálið á undan þessu, verðtollsfrv., og vísa ég til þess. Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta frekar að sinni.