29.03.1932
Neðri deild: 37. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í C-deild Alþingistíðinda. (4359)

154. mál, eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum

Magnús Guðmundsson:

Ég þakka hv. 2. þm. Rang. fyrir þann vitnisburð, að ég sé vandaður og skýr. Fyrst hann hefir það álit á mér, ætti hann ekki að hafa áhyggjur út af afstöðu minni í þessu máli. Það, sem fyrir mér vakir, er, að jafnt gangi yfir alla, og það eru engin hrossakaup.