25.05.1932
Sameinað þing: 11. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 416 í D-deild Alþingistíðinda. (4377)
714. mál, atkvæðagreiðsla alþingiskjósenda um áfengislöggjöfina
Flm. (Bergur Jónsson):
Meiri hl. af ræðu hv. þm. Seyðf. snerist um það, hve erfiðar fjárhagsástæður við ættum við að búa. Get ég þó ekki séð sambandið milli þessa máls, sem hér er um að ræða, og þess, þótt atvinnuástandið sé illt í landinu, lítið um opinberar framkvæmdir, innflutningshöft á erlendum vörum o. s. frv. Ég get ekki séð, að það sé ósæmilegt af þingi eða þjóð að taka afstöðu til þess, hvort haldast skuli áfram það ástand í áfengismálunum, sem nú ríkir, né að það geti í sjálfu sér verið sett í samband við fjárhagsástæður þjóðarinnar.
Það er vitanlegt, að eins og nú er, er heimilaður innflutningur á léttum vinum, — hinum svokölluðu Spánarvínum —, og er þó vitanlegt, að þau eru ekki hættuminni hvað það snertir að draga menn út í drykkjuskap heldur en hinir sterkari drykkir. Má og hiklaust fullyrða það, að Spánarvínin eru aðalorsökin til þess, að drykkjuskapur meðal kvenfólksins hefir aukizt svo mjög sem raun ber vitni frá því, sem áður var, því að Spánarvínin eru sú tegund víns, sem kvenfólk helzt lærir að drekka á. Í öðru lagi verða menn eins ölvaðir af þeim og af sterkari drykkjum, og engu betur drukknir, nema hvað vera má, að menn e. t. v. þurfi meira „kvantum“ til að drekka sig fulla í Spánarvínum, en menn munu veita sér það jafnt fyrir því. Að því er fjáhagshliðina snertir, þá er mjög vafasamt, hvort inn verður flutt meira verðmæti peningalega, enda þótt leyfður væri innflutningur á sterkum drykkjum, svo að það verður ekki fullyrt, að þjóðin mundi tapa á þessu peningalega. Það er vitanlegt, að þeir, sem fremur vilja njóta áhrifa hinna sterkari drykkja, leita í þeim efnum til hinna innlendu bruggara, sem eru að rísa upp um land allt, einkum þó til sveita. Það má að vísu vera, að bannlögin hafi gert nokkurt gagn í sveitum landsins til að byrja með og dregið úr drykkjuskap manna þar, meðan menn þar höfðu enn ekki lært að brugga, en síðan þekkingin á bruggun fór að breiðast út er vitanlegt — og þýðir ekki að vera að reyna að breiða yfir það —, að drykkjuskapur til sveita hefir aukizt svo mikið, að hann er nú e. t. v. meiri en hann var áður en bannlögin komu til sögunnar. Ég fyrir mitt leyti er og sannfærður um það, að þótt áfengisbannl. væru afnumin, mundi það ekki auka drykkjuskapinn agnar ögn; munurinn yrði aðeins sá, að allir hinir sæmilegri menn af þeim, sem víns neyta, mundu fremur kjósa að kaupa það löglega af áfengisverzlun ríkisins en að vera að eltast við að ná í það hjá bruggurum og smyglurum. Það er og ekki vafi á því, að það er siðferðislega hliðin á bannlögunum, sem orðið hefir þeim til falls, sú spilling, sem í því er fólgin fyrir þjóðina, þegar sérstök l. eru brotin daglega af miklum þorra manna, eins og reynslan hefir verið um bannlögin. Afleiðingin er ekki eingöngu sú, að þessi l. verða þýðingarlítil, heldur dregur þetta þann dilk á eftir sér, að menn leiðast út í að verða lögbrjótar einnig á öðrum sviðum. Er mér það kunnugt frá starfi mínu sem fulltrúi lögreglustjórans hér í Rvík, að þeir, sem gerðu það að atvinnu sinni að selja ólöglega drykki, komust einnig undir það að fremja almenna glæpi. Þegar menn venjast við það daglega að eiga í höggi við lögreglu og löggæzlumenn og finna það, að litið er á þá sem afbrotamenn, enda þótt þeir falli ekki undir almenna glæpi hegningarl., leiðir slíkt til þess, að menn verða kærulausari á öðrum sviðum og komast undir það að vera almennir glæpamenn. Veit ég um mörg dæmi til þessa, þótt ég hirði ekki að færa þau hér til.
Mikill hl. af ræðu hv. þm. Seyðf. fjallaði um frv. það, sem ég ásamt 5 öðrum þm. hefi borið fram í Nd. til afnáms á áfengisbannlögunum. Liggur það frv. að vísu ekki fyrir við þessar umr., en ég get sagt það, að ég ber ekki kinnroða fyrir að hafa borið það fram, og að því leyti er ég ekki smeykur við það, þó að um það sé rætt. En ég álít þó ekki rétt við þessar umr. að fara að ræða áfengismálin almennt, því að hér er aðeins um það að ræða, hvort gefa eigi þjóðinni kost á að játa uppi úrskurð sinn í málinu eða ekki.
Hv. þm. Seyðf. viðurkenndi það, að 2. liður þeirrar brtt., sem hann ber fram, væri settur fram í agitationstilgangi, og verð ég að segja það, að ég álít það ekki viðeigandi á þessu stigi málsins að vera að halda agitationsræður eða bera fram agitationstill. Var þeim mjög tíðrætt um það, hv. þm. Seyðf. og hv. 2. þm. S.-M., að 1. liður till. okkar væri ekki nægilega ákveðinn, þar sem spurt er, „hvort kjósandi telji rétt að nema úr 1. bann það, er nú gildir um innflutning áfengra drykkja“. Get ég ekki séð, að þetta geti verið skýrara eða ákveðnara, þar sem þannig beinlínis er að því spurt, hvað löggjafinn eigi að gera í þessu máli. Auk þess er það miklu einfaldara að spyrja þannig eingöngu um það, hvort kjósandinn vill una við það fyrirkomulag, sem nú er í þessum efnum, og miklu flóknara, ef spurt væri, hvort kjósandinn vildi leyfa innflutning á ákveðnum víntegundum o. s. frv., eins og till. þessara hv. þm. ganga út á. Vita og allir, hvað eru 1. í landinu í þessum efnum og hvernig það núv. fyrirkomulag er, og spurningin á ekki að snúast um annað.
Að því er 2. lið till. okkar snertir, þá skal ég játa það, að ekki skiptir miklu máli, hvort hann verður samþ. eða ekki, því að ég býst við, að því mundi verða játað af öllum þorra manna, að þeir teldu rétt að setja reglur um meðferð og innflutning áfengis, til þess að koma í veg fyrir misbrúkun á því. Ég get því fallizt á, að það sé aukaatriði, hvort þessi spurning verður lögð fyrir þjóðina eða ekki.
Hv. 2. þm. Reykv. fór allýtarlega út í 1. lið brtt. á þskj. 748, sem hv. 2. þm. S.-M. er aðalflm. að, og benti hann réttilega á það, að það getur verið hættulegt að leggja þessa spurningu þannig lagaða fyrir þjóðina, því að Spánverjar kynnu að geta litið svo á, að verið væri að greiða atkv. um það, hvort halda ætti gerða samninga við þá eða ekki. Get ég og ekki séð, að það sé neitt vit í því að leggja slíka „teoretiska“ spurningu fyrir þjóðina, hvort hún sé með eða móti banni. Þótt ég sé á móti áfengisbannl. eins og þau eru, þar sem vitanlegt er, að allir, sem vilja drekka á annað borð, geta náð í eins mikið vín og þá lystir, er ég ekki á móti sjálfu bannprincipinu og mundi þvert á móti telja það mikla gæfu fyrir þjóðina, ef hægt væri að búa svo um, að ekkert vín flyttist inn í landið. En það hefir sýnt sig fyrr og síðar, bæði fyrir og eftir Spánarundanþáguna, að ekki er hægt að framfylgja þessum l. og að þau því hafa ekki náð tilgangi sínum. Þetta er og viðurkennt af miklum þorra þeirra manna, sem stóðu með l. í upphafi. Ef því spurt væri einungis um það, hvort menn vildu hann eða ekki, gæti ég frekast búizt við því, að það yrði samþ.; en þar sem við getum ekki losnað við Spánarundanþáguna, eins og stendur a. m. k., mundi slíkt enga þýðingu hafa. Áfengisbannið, sem nú er, er ekkert hann, heldur aðeins kák, annarsvegar hann gegn innflutningi ákveðinna víntegunda, og hinsvegar vernd fyrir ólöglega áfengissölu og áfengistilbúning í landinu. Ef þjóðin því kemst að þeirri niðurstöðu, að ekki sé unandi við núv. ástand í þessum efnum, er rétt að þvo þennan smánarblett af þjóðinni og afnema þessi 1. Slíkt kemur ekkert við fjárhagsástandinu í landinu, eins og ég sýndi fram í upphafi ræðu minnar, heldur er hér aðeins um siðferðislegt mál að ræða, hvort menn telja sæmandi fyrir þjóðina að halda slíkum 1. við lýði, eftir þá raun, sem þau hafa gefið. Hinsvegar er sjálfsagt að styðja heilbrigða bindindisstarfsemi svo sem unnt er, því að það er vitanlegt, að bindindisstarfsemin fyrir bannið var næstum búin að útrýma öllum drykkjuskap, þegar bannl. komu. (IP: Bannlögin drógu enn meira úr drykkjuskapnum). Það má vera, að svo hafi verið meðan menn voru að læra aðferðirnar til að brjóta l., og síðan hefir ástandið alltaf farið versnandi, og þó einkum eftir að Spánarundanþágan kom til sögunnar. Þetta er og einnig viðurkennt, jafnvel af bannmönnnm, enda verður ekki utan um það komizt, að þetta eru aðeins pappírslög og hlægilegt að vera að halda í þau, þegar vitanlegt er, að hver sá, sem vill vera fullur, getur verið fullur hvenær sem hann vill.