06.04.1932
Neðri deild: 44. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1257 í C-deild Alþingistíðinda. (4430)

162. mál, sala þjóðjarða og kirkjugarða

Bernharð Stefánsson:

Það er nú búið að taka fram í umr. flest af því, sem ég ætlaði að segja um þetta mál, þegar ég kvaddi mér hljóðs. Mér kemur það undarlega fyrir, hvílíkt ofurkapp sumir hv. þó m. virðast leggja á að sporna við því, að þetta frv. komist til 2. umr. og n. Það er sjaldan lagt mikið kapp á að fella frv. frá 2. umr. og n.

Hæstv. forsrh. talaði um, að það væri illa varið tíma þingsins, ef þetta frv. væri látið ganga til n. En ég álít, að hann og hv. þm. Borgf: o. fl. hafi með þessum umr. tafið tíma þingsins engu siður heldur en þó að frv. hefði verið lofað að fara umræðulítið til n. og án verulegrar mótstöðu. Ég hygg, að hv. þm. Borgf. hafi líka tekizt að tefja tíma þingsins með löngum og óþörfum ræðum í öðrum málum. (Forsrh.: Á hv. þm. við bjórinn?). Hefir hæstv. forsrh. ekki áhuga á öðrum málum en því? Það hefir ekki komið fram í ræðum hv. þm., að hér á landi væri nema um tvennskonar ábúð að ræða, sjálfsábúð og ábúð á jarðeignum ríkisins, en þeir hafa gengið framhjá að minnast á ábúð leiguliða á jarðeignum einstakra manna. Hv. 2. þm. Skagf. talaði um, að fyrir 20–30 árum, þegar ríkið átti miklu fleiri jarðir í landinu en nú, þá hefðu þjóðjarðirnar skorið sig úr að því leyti, hvað þær voru illa setnar og húsakynni þar hrörleg. Ég er nú að vísu nokkru yngri en hann, en þrátt fyrir það man ég svo langt, að ég fullyrði, að það er ekki rétt, að þjóðjarðirnar hafi skorið sig úr; það voru leigujarðir einstakra manna, sem skáru sig úr fyrir það, hvað þær voru illa setnar.

Því hefir verið haldið fram af hæstv. forsrh., hv. 2. þm. Skagf. og fleiri þdm., að það megi þakka þjóðjarðasölulögunum framfarir í búnaði á síðari árum, jarðrækt og húsabótum á einstökum jörðum. Ég vil nú enganveginn neita því, að fjörkippur hafi orðið í húsa- og jarðabótum fyrstu arin eftir að þjóðjarðasölulögin voru sett. Ég get líka verið sammála þeim að því leyti, að sjálfsábúð sé bezta aðferðin til þess að tryggja það, að jarðirnar séu vel setnar. En á þjóðjarðasölulögunum var sá mikli galli, að þó að ábúendum væru að vísu seldar jarðirnar upphaflega, þá var í lögunum engin hindrun sett gegn því, að jarðirnar gengju aftur úr sjálfsábúð eða yrðu seldar öðrum, jafnskjótt og ríkið hafði látið þær af hendi. Ég þekki mörg dæmi þess, að þjóðjarðir hafi gengið úr sjálfsábúð og verið seldar öðrum, og efast ég ekki um, að fleiri þó m. kannist við það. — Þegar athugaðar eru þessar þrjár tegundir ábúðar, þá tel ég sjálfsábúð bezta, en ábúð á opinberum jarðeignum í annari röð, og miklu betri en leiguábúð á jörðum einstakra manna. Þess vegna álít ég, að við eigum ekki að selja þær litlu leifar, sem eftir eru af þjóðjörðum, nema að tryggja það jafnframt, að þær lendi ekki aftur í leiguábúð eða í sölubrask til einstakra manna.

Hv. þm. S.-Þ. talaði um það, hvernig þjóðjarðirnar mundu hafa litið út nú, ef þær hefðu verið eign ríkisins, og gerði ráð fyrir þeim niðurníddum. En hvað synir reynslan? Ég veit ekki betur en að jarðir ríkisins séu margar vel setnar, einkum síðan ríkið fór að búa betur að ábúendum jarðanna. Ég held það muni litlu á því, hvernig þær eru setnar eða jarðir í sjálfsábúð. Í mínu kjördæmi þekki ég vel til þess, að sú jörð, sem þar er bezt setin í einni sveit, er þjóðjörð, en vera má, að það stafi af því, að ábúandinn er einstakur hugsjóna- og dugnaðarmaður.

Sami hv. þm. var að tala um umboðsmann þjóðjarða, sem hefði komið illa fram við landseta. Ég efast ekki um, að þetta sé satt. En hve margar slíkar sögur skyldi eigi mega segja af einstökum landsdrottnum og framkomu þeirra?

En hv. þm. virðist vilja, að þjóðjarðir verði seldar eins og áður, án þess að nokkuð sé gert til að tryggja, að þær lendi ekki í leiguábúð aftur, ef til vill innan árs frá því að salan fór fram.

Það hefir verið minnzt á, að verðhækkun hafi orðið á þessum jörðum við eigandaskipti, og hv. 1. þm. Skagf. hefir bent á, að ríkið hafi þannig orðið fyrir tapi. Hv. þm. Borgf. sagði, að þetta fé hefði ekki tapazt, heldur hefði verðhækkunin orðið kyrr í þjóðfélaginu sjálfu. Þetta getur nú verið, en vafalaust hefir samt eitthvað af því farið til útlanda. Og víst er um það, eins og hv. 1. þm. Skagf. gat um, að mjög mikið af þannig fengnu fé hefir horfið úr sveitum landsins til kaupstaðanna, vegna flutnings efnaðra manna þangað. Ég get bent á eitt dæmi, sem mér er kunnugt, og sakar ekki, þótt ég nefni það. Landseti á opinberri eign keypti hana fyrir 4500 kr. og seldi 5 árum síðar fyrir 41000 kr. og flutti síðan burt. (EA: Var það Hrafnagil? — PO: Síra Þorsteinn Briem?). Já, það var Hrafnagil, og ég segi þetta manni þeim, er í hlut á, hvorki til hross né hnjóðs. Hvað var eðlilegra en að hann keypti jörðina fyrir það, sem hann gat fengið hana fyrir, og seldi hana fyrir það verð, sem honum var liðið? þetta er mannlegt, og ég býst við, að þeir hv. þm., sem voru að gripa fram í, hefðu gert það sama, ef þeim hefði gefizt tækifæri til þess.

Ég þykist hafa sýnt með mínum till., að ég sé ekki á móti sjálfsábúð, en ég er á móti því, að ríkissjóður sé að selja þessar leifar af eignum sínum, án þess að trygging sé fyrir því, að þessar jarðir lendi ekki aftur í leiguábúð. En þetta tryggja þjóðjarðasölulögin ekki á nokkurn háatt, enda hefir fjöldi þjóðjarða, sem í fyrstu voru seldar ábúanda, lent aftur í leiguábúð.

Hv. þm. Borgf. sagði, að einstakir menn væru hættir að sækjast eftir jarðagóssi nú orðið. Það má vera, að svo sé þar, sem hann þekkir til, en mér er kunnugt um menn, sem einmitt sækjast eftir að kaupa jarðir til þess að leigja þær fyrir okurleigu. Ég þekki t. d. dæmi þess, að 2 einstakir menn hafa eigi alls fyrir löngu keypt upp næstum heilan hrepp, og þar á meðal jarðir, sem áður voru þjóðjarðir og kirkjujarðir, og veit, að það hefir ekki orðið til neinna þrifa fyrir hreppinn. (PO: Hvaða hreppur er það?). Ég mun eigi geta þess her, en skal segja hv. þm. Borgf. Það seinna. Einstakir menn í kaupstöðum og jafnvel kaupstaðirnir sjálfir eru einnig farnir að sækjast eftir jörðum í nágrannasveitum, til að setja þar niður fátæklinga, svo þeir verði þar sveitfastir, og mér er kunnugt um, að þjóðjarðir hafa verið notaðar í þessum göfuga tilgangi, og býst ég við, að aðrir þdm. þekki einnig dæmi þess.

Ég hefi þá gert grein fyrir því, að þótt ég vilji, að mál þetta gangi til n., er siður en svo, að ég sé á móti sjálfsábúð. En eins og ég hefi synt fram á, hafa þjóðjarðasölulögin alls ekki náð þeim tilgangi að tryggja hana. Til þess að þau hefðu komið að tilætluðum notum hefði jafnframt þurft að setja sæmileg ábúðarlög, sem hefðu gert það lítið fýsilegt að sækjast eftir jörðum til að leigja þær öðrum. En slík lög voru ekki sett. Vilji nú þingið fallast á það ábúðarlagafrv., sem fyrir því liggur, þá má að mínu áliti gjarnan selja þær fáu jarðir, sem enn eru í eigu þess opinbera. En fáist ekki sæmileg ábúðarlög, þá tel ég ekki rétt að halda áfram með sölu þjóðjarðanna og hefi þá ekki á móti því, að frv. þetta verði að lögum.