06.04.1932
Neðri deild: 44. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1261 í C-deild Alþingistíðinda. (4432)

162. mál, sala þjóðjarða og kirkjugarða

Sveinn Ólafsson:

Mér finnst ég verða að segja hér nokkur orð, úr því að umr. er haldið áfram.

Ég hjó eftir því í ræðu hv. 2. þm. Skagf., að hann minntist á tvo Haralda, sem verið hefðu uppi með næstum 1100 ára millibili, sem sé Harald hárfagra og Harald Guðmundsson. Fannst hv. þm. mikill munur vera á þeim nöfnum. Mér finnst aftur á móti munurinn ekki jafnmikill. Báðir hafa þeir nafnar reynt að koma umráðum jarðanna undir ríkisvaldið og aftra því, að þær væru undir umráðum einstaklinga. Vér þekkjum afleiðingarnar af því, að hinn fyrri Haraldur fékk vilja sínum framgengt: Niðurstaðan varð sú, að fjöldi af efnilegustu óðalsbændum Noregs flýði land. Ég skal ekkert um það fullyrða, hvernig fara mundi nú, ef jarðir kæmust almennt undir yfirrað sveitarfélaganna, eftir kommúnistiskri fyrirmynd, en ekki þætti mér ólíklegt, að af því leiddi nýjan flotta héðan vestur um haf.

Her hefir verið deilt um kosti og galla þjóðjarðasölunnar, og má auðvitað segja ýmislegt með henni og móti. En mín reynsla er yfirleitt sú, að við það, að jarðeignir þessar hafa flutzt í einstakra manna hendur, hefir margt niðurnítt kot orðið að byggilegu og álitlegu sveitabýli. Og eigi nú að taka fyrir þjóðjarðasölu með öllu, er það grunur minn, að margir, sem hafa hug á að fá jörð til að beita við kröftum sínum til landræktar, en eiga þess ekki kost, hverfi til sjávarþorpanna, þar sem horfurnar geta ekki talizt, glæsilegar eða lífvænlegar eins og stendur.

Einn hv. ræðumaður sagði, að þjóðjarðasalan ætti sök á útstreyminu úr sveitunum. Mig furðaði á þessu, af því að ég er sannfærður um af eigin reynslu, að þjóðjarðasalan hefir einmitt heft þann straum að talsverðu leyti.

Þá hefir og verið sagt, að þjóðjarðasalan hafi ekki leitt til þeirrar sjálfsábúðar, sem til var ætlazt. Ég held, að of fljótt sé að kveða upp dóm um það mál. Síðan þjóðjarðasalan hófst er ekki liðinn fullur mannsaldur og mest verið selt á síðustu 15 árum. Ég hygg, að óhætt sé að treysta því, að eftir 15–20 ár verði mestur hluti þessara jarða í ábúð fyrstu eigenda eða niðja þeirra. Þótt nokkrar jarðir hafi horfið úr sjálfsábúð, eru það engar röksemdir gegn sölu þjóðjarða. Eigendur hafa sumir fallið frá og niðjar ekki getað tekið við búi. Og lætur þá að líkum, að jarðirnar verða leigðar eða seldar. Annars er mér kunnugt um það austanlands, þar sem ég hefi verið milligöngumaður um sölu jarðanna, að af um 30 jörðum, sem seldar hafa verið af hálfu hins opinbera, eru allar nema ein eða tvær í sjálfsábúð ennþá. Ég tel ekki rétt né kurteislegt að meina þessu máli að fara til n., en er hinsvegar reiðubúinn að greiða atkv. gegn því, er ráð kemur úr n., ef það tekur ekki heim stakkaskiptum, sem mér geðjast að, sem ég reyndar tel ólíklegt að verði.