08.04.1932
Neðri deild: 46. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í B-deild Alþingistíðinda. (45)
1. mál, fjárlög 1933
Steingrímur Steinþórsson:
Ég þarf ekki að flytja langa ræðu. Ég er meðflm. að einni brtt. við þennan kafla fjárl. Er það VI. brtt. á þskj. 334. Hún er um það, að vegatillagið til Vatnsskarðsvegar lækki úr 15 þús. niður í 10 þús. kr., en að þeim 5 þús. kr., er þannig sparast, verði varið til Hofsósvegar. — Ég vildi lítillega gera grein fyrir þessari brtt. og get þá tekið undir með hv. 1. þm. N.-M., sem komst í ræðu sinni inn á tvennskonar stefnur í vegamálunum. Ég ætla nú ekki beinlínis að fara að gera upp á milli þessara stefna. Ég get vel skilið það, að vegamálastjóri leggi aðaláherzluna á það, að teygja langlínunetið á milli landsfjórðunga. Á þann hátt sýnist vegakerfið í fljótu bragði sýna mesta ávexti. En ég get nú, þegar svo mjög er klipið af öllum fjárframlögum til verklegra framkvæmda, tekið undir með hv. 1. þm. N.- M. um það, að ekki nái nokkurri átt að nota nærfellt allt vegafeð til brautabygginga á heiðum uppi, þegar almenn þörf er á aðgerðum niður í byggð. Því er svo háttað með Hofsósveg, að hann er nýtekinn í þjóðvegatölu, og var fyrst gerður, að heita ætti bílfær á síðastliðnu sumri. En svo verður þá ekki áfram, nema hann fái aðgerð. Með nokkru fjárframlagi mætti gera svo við versta kaflann, að hann yrði fær. Þetta er þeim sveitum, sem vegur þessi liggur um, hið mesta nauðsynjamál. Vatnsskarðsvegurinn, sem tekinn er frá Bólstaðarhlíð, verður lagður annarsstaðar en sá vegur, sem nú er farinn. Hann kemur því ekki að notum fyrr en hann er fulllagður. Þessar 15 þús. kr., sem til hans eru ætlaðar, koma því ekki að neinum notum fyrr en margar 15 þús. kr. hafa verið til hans lagðar og hann er fullgerr. Er því varhugavert, og ekki nauðsynlegt að leggja þessar 15 þús. kr. í hann, eins og nú hagar, enda er sama, hvort fram eru lagðar 15 eða 10 hús. í þann veg. Hann er jafnlítilsvirði fyrir samgöngurnar unz meira er í hann lagt. þessi lækkun gerir því hvorki til eða frá um Vatnsskarðsveginn. En séu þessar 5 þúsundir notaðar í Hofsósveg, þá kemur hann þegar að notum fyrir sveitirnar þar í kring.
Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þessa brtt. meira. Ég vænti þess, að hv. deild geti fallizt á hana, vegna þeirra upplýsinga, er ég hefi nú gefið.