11.04.1932
Efri deild: 48. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1347 í C-deild Alþingistíðinda. (4522)
225. mál, mjólk og mjókurafurðir
Jón Þorláksson [óyfirl.]:
Hv. 2. þm. Árn. vísaði til fiskiveiðasamþykkta til samanburðar við ákvæði 1. gr. þessa frv., en það er alls ekki hliðstætt. Fiskiveiðasamþykktir hafa svip af samþykktum um vatnamál, og ganga þó enn minna inn á réttarsvið einstaklingsins, því að vitanlega er fiskurinn einskis manns eign á meðan hann er óveiddur, og samþykktirnar fela ekki í sér ráðstöfunarrétt á neinu, sem orðið er eign einhvers einstaklings.
Ég hefði ekkert haft að athuga við það, sem ákveðið er í 1. gr. þessa frv., ef það væri aðeins takmarkað við þá mjólkurframleiðendur, sem eru í mjólkurbúum, því að vitanlega geta þeir sett sjálfum sér reglur eftir geðþótta. En hv. 2. landsk. hefir ekki lesið 1. gr. frv. með nægilegri athygli, því að þar stendur, að þegar 3/4 hlutar fulltrúa þeirra framleiðenda, er að mjólkurbúunum standa, hafa komið sér saman um skipulag á sölu afurða sinna á framleiðslusvæðinu, þá skal kalla saman almennan fulltrúafund allra mjólkurframleiðenda á sölusvæðinu, og má þar vera 1 fulltrúi fyrir hverja 25 framleiðendur. Og það, sem 34 fulltrúanna samþ. á þeim fundi, verða allir mjólkurframleiðendur á sölusvæðinu að beygja sig undir. Og þá er gert ráð fyrir samlagsstofnun allra mjólkurframleiðenda, ef fullur ¼ hluti fulltrúanna er því ekki mótfallinn. En þó að ¼ hluti þeirra sé á móti því, þá eru þeir lögþvingaðir til þess að vera í félagsskapnum.
Ég veit ekki, hvað margir mjólkurframleiðendur eru taldir í lögsagnarumdæmi Rvíkur, en ég get hugsað, að þeir verði minni hl. mjólkurframleiðenda í nærsveitum bæjarins, og þess vegna yrðu þeir neyddir til þess að vera í slíkum félagsskap. Það er þetta, sem ég á við, þegar ég segist ekki muna eftir neinu hliðstæðu í löggöfinni. Með jafnmiklum rétti mætti lögheimila ¾ hlutum búenda í sýslufélagi, t. d. ef þeir vildu stofna með sér kaupfélag, að knýja hina, ¼ hluta, til þess að ganga inn í félagið og beygja sig undir reglur þess: Samkv. þessu mega ¾ hlutar gera yfirleitt hverskonar ráðstafanir á eignum manna, sem þeim sýnist og atvmrn. samþ. Ég vona, að hv. þdm. hafi skilið, hvað í 1. gr. frv. felst; ég hygg, að þar sé farið út fyrir þau takmörk, sem sett eru samkv. almennum lögum, en ég tek það fram, að ég hefi ekki enn rannsakað það sérstaklega. Það dæmi, sem hv. 2. þm. Árn. nefndi, á ekki við um þetta, og ég man ekki eftir neinu í löggjöfinni, sem er hliðstætt þessu ákvæði 1. gr., en ég skal ekki fortaka, að það kunni að eiga sér stað. Mer finnst þetta alls ekki vera samrýmanlegt friðhelgi eignarréttarins.
Annað, sem ég vildi segja um þetta mal, getur beðið síðari umr.