07.04.1932
Neðri deild: 45. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 870 í B-deild Alþingistíðinda. (455)

7. mál, lax- og silungsveiði

Pétur Ottesen:

Ég á hér nokkrar brtt. við þetta frv., og er þær að finna á þskj. 338. Ég get lýst því yfir nú þegar, að ég er fullkomlega sammála því, sem hv. frsm. hefir sagt um þær brtt., sem n. flytur sameiginlega við frv. Þær brtt. eru allar til bóta; með þeim eru sniðnir af frv. að miklu eða öllu leyti ýmsir auðsjáanlegir verksmiðjugallar, sem á því voru. En að mínum dómi er það svo um þetta frv., að þó að þær brtt., sem n. öll hefir komið sér saman um að flytja, séu til mikilla bóta, þá er samt sem áður æðimargt eftir í frv., sem lagfæringar þarf og breytinga. Og ég er þess fullviss, að þótt mínar brtt. væru einnig samþ., þá væri samt margt eftir í frv., sem reynslan mun sýna, þegar til framkvæmdanna kemur, að sjá hefði þurft við og breyta. Það er ekki nema eðlilegt, þar sem laxveiðalöggjöfin er orðin mjög gömul, að fram fari endurskoðun á henni. Þessi löggjöf hefir verið mjög merkileg á sínum tíma og vel til hennar vandað, enda hefir verið að henni búið hátt á fimmta tug ára. Hv. frsm. 1. þm. Skagf., sagði, að laxveiðin hefði mjög gengið úr sér síðustu áratugina og að höfuðmarkmiðið með þessu frv. væri aukin friðun. Það er alveg rétt að því er snertir laxveiði í árósum og ármynnum, að þá er hún ýmist bönnuð alveg eða þá mjög takmörkuð, en þetta er ekki einhlítt til að friða laxinn og vernda viðkomuna, því þótt ádráttarveiðin — sem tvímælalaust er hættulegasta veiðiaðferðin — sé nokkuð takmörkuð uppi í ánum, þá er samt heimild í frv. til ádrattárveiða, sem nota má þannig í hinum vatnsminni bergvatnsam, að þar sé hægt að draga upp nálega hverja bröndu. Það getur því, ætla ég, brugðizt til beggja vona með það, þótt frv. verði samþ., að þá leiði af því sú friðun eða öryggi fyrir viðkomu og aukningu laxveiðinnar, sem ráð er fyrir gert. Það má vel vera, að því sé svo háttað sumstaðar, að laxveiði hafi mjög rýrnað í seinni tíð. Á öðrum stöðum eru mjög áhöld um laxveiðina nú og áður, þegar miðað er við meðalveiði um nokkurt árabil. En reynslan sýnir það, að laxveiðin er mjög misjöfn frá ári til ars. En það er svo með laxveiðarnar og laxagöngurnar eins og með fiskigöngur yfirleitt, að það eru mjög mikil áraskipti að þeim; laxinn gengur misjafnlega mikið upp í árnar. Hann mun háður sama lögmáli og aðrar fisktegundir, að göngur hans og mergð fer eftir því, hvernig tekst til um klakið árlega, en það er aftur bundið ýmsum skilyrðum, eftir því sem fiskifræðingar segja, t. d. hvað fiskinn snertir, hreyfingum sjávarins, hitastigi o. s. frv. Sérstaklega mun margt koma til greina við það, hvernig tekst um laxaklakið, því að miklum og margvíslegum hættum er það undirorpið í ánum.

Fyrsta brtt. af þeim, sem ég flyt hér á þskj. 338, er við 2. gr. frv. Í þeirri gr. er ákveðið, að ekki megi skilja veiðiréttindi frá jörðum, þ. e. a. s., að ekki megi selja veiðirétt eða leigja hann öðrum en heim, sem á jörðinni býr, með einni undantekningu, sem þó er háð samþykki veiðimálastjóra, veiðimálan. og ráðherra. Þessir þrír aðilar mega nefnilega samkv. frvgr. veita leyfi til að leigja rétt til stangarveiða tiltekið tímabil, allt að 10 árum. Mér finnst það hljóti að vera svo, þegar um er að ræða laxveiði, eins og önnur jarðarafnot, að fyrst og fremst beri að líta á það, að sem mest not verði að þeim hlunnindum, vitanlega þó innan þeirra takmarka, sem lög setja á hverjum tíma. Nú er það, eins og kunnugt er, mjög mismunandi, hvað mönnum er sýnt um að hagnýta hin ýmsu náttúrugæði bæði til lands og sjávar, og á það ekki sízt við um veiði í ám og vötnum. Sumum er mjög sýnt um slíka hluti, en aðrir virðast litla hæfileika hafa til þess að færa sér slík hlunnindi í nyt. Það er því engan veginn víst , að sá, sem á veiðijörð býr í hvert skipti, sé hinn líklegasti til þess að hafa mikið upp úr veiðinni, sjálfum sér og um leið þjóðinni í heild til hagsbóta, heldur getur það verið mikið hagkvæmara, að öðrum sé falið að fara með þessi hlunnindi jarðarinnar. Virðist mér varhugavert að setja slíkar hömlur sem þessar og einskorða þetta við handleiðslu þess manns, sem á jörðinni býr í hvert skipti, eða einskorða þetta eins og gert er í frv.

Þá hefi ég og lagt til, að gerð verði lítil orðabreyt. á 2. gr., að 1. málsgr. orðist svo: Landeigandi hefir einn umráð veiði í vötnum í landi sínu. Er þetta eðlilegra orðalag en það, sem í frv stendur.

Þá hefi ég lagt til, að 3. gr. falli niður. Viðurkenni ég, að brtt. landbn. við þá gr. sé til bóta, því að gr. er óframbærileg eins og hún er í frv. Eru þar lagðar ósæmilegar kvaðir á báða aðila. Held ég, að það stappi svo nærri stjskr., að ómögulegt sé að samþ. En með till. landbn. er a. m. k. að nokkru leyti siglt framhjá því stjórnarskrárbroti. Ég verð að líta svo á, sem frjálst samkomulag eigi að vera undirstaða samninga milli aðila um það, hvernig æskilegast væri, að eignarrétti þessara veiðivatna væri háttað, og væri æskilegast, að eignarrétturinn hyrfi aftur undir þær jarðir, sem áður hafa haft hann. Stendur ekkert fyrir því af hálfu þeirra laga, sem nú eru, að slíkt samkomulag gæti orðið. — Fer ég svo ekki fleiri orðum um þessar brtt. mínar.

Þá vil ég minnast á 6. gr. þessa frv., sem n. hefir gert brtt. við og hv. frsm. gert grein fyrir. Bendi ég á þessa gr. sem dæmi þess, hve margt er vanhugsað í frv. og flausturslegt. Stendur í 6. gr., að undir öllum kringumstæðum eigi þeir, sem land eiga að veiðivatni, veiði út frá sínu landi, en megi jafnframt draga vað að landi hins. nú er það alkunnugt, að sérstakar jarðir eigi veiði á ákveðnum svæðum í ám, t. d. alla veiði í ákveðnum hyljum eða fljótum. Í flestum tilfellum mun þetta þannig til komið, að kirkjur hafa eignazt þessi réttindi sem gjöf frá mönnum á dánardægri. Efast ég ekki um, að þeir menn, sem setið hafa yfir samningu þessa frv. og kynnt sér gögn málsins, hljóti að vita, að einstakar jarðir eiga ákveðin veiðisvæði í ám og vötnum. Býst ég ekki við, að þeir ætli að afnema algerlega þann rétt, en eins og gr. er orðuð, er það því líkast, því að þar stendur, að hver maður eigi skilyrðislausan og ótvíræðan veiðirétt út frá sínu landi. nú hefir n. séð, hvað þetta rekur sig skýlaust á eignarréttinn, og hefir hún því, til þess að gera það samrímanlegra, skotið inn í orðunum: „enda eigi landeigandi veiði í vatninu“. Sýnir þetta, hversu margt er þarna vanhugsað og flausturslegt, því að vitanlega er ekki hægt að upphefja skýlausan rétt, sem til er í þessu efni.

Þá kem ég að brtt. við 16. gr. Með ákvæðunum í 16. gr. er gerð sú höfuðbreyt. frá því, sem nú er, að því er slegið föstu með lögum, að á sama degi skuli byrja veiði hvar sem er á landinu, og á sama degi hætta. N. gefur þarna með till. sínum að vísu ofurlítið svigrúm, en svo lítið, að segja má, að þessu sé slegið föstu fyrir allt landið. Nú hafa þeir skýru menn, sem sömdu laxveiðil. frá 1886, miðað sína lagasetningu við það, að laxinn hagar göngu sinni ákaflega misjafnlega á ýmsum stöðum landsins. Þegar þessi lög voru samin, var fylgt þeirri reglu að láta héraðsstjórn hvers staðar ákveða þetta. En með ákvæði frv. um þetta, er gengið í berhögg við þessa sjálfsögðu reglu. Er mér kunnugt um það af viðtali við menn víðsvegar um land, t. d. alþekktan dugnaðarmann á sviði laxaklaks og veiðiskapar, Árna bónda Jónsson á Alviðru í Árnessýslu. Átti hann tal við n. og lagði áherzlu á það, að því ákvæði eldri l. væri haldið, að það væri á valdi héraðsstjórna í hverjum stað, hvenær veiði skuli byrja og hvenær henni skuli hætta.

Ég hefi nú með brtt. mínum við 16. og 17. gr. viljað færa þessi ákvæði frv. í svipað horf og er í gildandi l. Ætla ég, að með því sé málinu bezt borgið og mest trygging fyrir haganlegu fyrirkomulagi í hinum ýmsu héruðum. Í brtt. mínum er ekki gert ráð fyrir því, að veiða megi lax nema 3 mánuði ársins, en í frv. er þetta rýmra; er þar gert ráð fyrir 31/2 mánuði, þegar um er að ræða stangaveiði. N. flytur brtt. um það, að veiðitíminn mætti byrja fyrr en frv. gerir ráð fyrir, eða 20. maí, í stað 1. júní. Er þetta miðað við það, að í Hvíta í Borgarfirði er nú byrjað að veiða 20. maí. Getur verið, að svo hagi til víðar á landinu, þótt mér sé það ekki kunnugt. Þó að þetta falli saman við þau ákvæði, sem nú gilda um það, hvenær veiði byrji í þessari tilteknu á, þá er þessi heimild ekki skilyrðislaus, því að það er lagt á vald atvmrh., veiðimálastjóra og veiðimálanefnda að ákveða, hvenær veiði skuli byrja og hvenær hún skuli enda, innan þeirra takmarka, sem sett eru. Geta þessir aðilar því ákveðið t. d., að veiði byrji 1/2 mánuði síðar en hið setta takmark bendir til, og kæmi það vitanlega hart niður á þeim mönnum, sem veiðirétt eiga í þeim ám, sem nú er heimilað, að veiði byrji 20. maí. Þegar lax gengur snemma — en það er mjög breytilegt, hvað snemma hann gengur —, þá er það sögn kunnugra manna, að laxinn sé allmikið genginn í Hvítá og þær ár, er í hana renna, þegar veiði hefst. Það er því skýrt af því, sem ég nú hefi sagt, að það er ekki tryggt, að menn fái afram að búa við heppileg ákvæði í þessu efni, sem þrautreynd eru orðin, þó að brtt. n. yrði samþ. Því flyt ég brtt. mína um það, að það skuli vera áfram á valdi héraðsstjórna, hvenær veiði byrji á hverjum stað og hvenær henni skuli hætt. Ætla ég að varla sé hægt um það að deila, að á þann hátt sé bezt um búið, að láta þá aðila, sem kunnugastir eru, hafa vald til að ákveða þetta.

Þá er í frv. öll silungsveiði í ám bönnuð eftir 15. sept. Gildir sama tímalengd fyrir laxveiði og göngusilungsveiði í ám. Hér er ekki einasta skertur veiðiréttur manna, heldur jafnvel alveg af þeim tekinn sumstaðar, t. d. að því er snertir Hvítá, Grímsá og Norðurá, því að göngusilungsveiði er þar eingöngu um að ræða að haustinu til, og helzt hún venjulega fram í miðjan desember. Held ég, að mörgum muni þykja hart að láta taka af sér þennan möguleika til sjálfsbjargar. Er þessi göngusilungsveiði drjúgur búhnykkur fyrir þá, sem geta notfært sér hana. Við þessu væri ekkert að segja, ef þess væri þörf, til þess að fyrirbyggja of mikla ánauð af laxveiði, en því er ekki fyrir að fara, því að þessi silungsveiði fer fram á öðrum tíma en laxveiðin, og er þá lax að mestu genginn út til sjávar, og þó að eitthvað væri eftir, eru þessi silungsnet svo smáriðin, að lax getur ekki ánetjazt í þeim, enda engin dæmi til þess, að lax hafi veiðzt nokkurntíma í þessi silunganet. Þá segja mér kunnugir menn, að laxaseiðum stafi hætta af göngusilungnum, sem sé mjög gráðugur í þau. Fer að þessu leyti saman álit kunnugra manna þar efra og Englendinga þeirra, er veiði hafa stundað í Grímsá, því að þeir hafa lagt ríkt á við bændur að ganga vel fram í því að veiða silunginn, því að laxveiðinni stæði hætta af honum, sökum þess, hve gráðugur hann sé í laxaseiðin. Ef byggja má á þessu, þá er þarna verið að stuðla að ófriðun á laxi, með því að leggja hömlur á silungsveiðina. N. var ljóst, að hér var of langt gengið, og flytur því brtt., en sá er hængur á, að það er það samþykki ráðh. og veiðimálastjóra, hvort heimil sé veiði silungs á þeim tíma, sem hann veiðist, svo að ekki er fyrir það girt, að lagður verði steinn í götu manna að færa sér þessa veiði í nyt.

Þá eru brtt. mínar við 17. gr., og eru þær í samræmi við brtt. við 16. gr. og í framhaldi af þeim. Munurinn á brtt. mínum og brtt. n. við þessa gr. er þó ekki ýkjamikill. Ég geri með brtt. minni um þann tíma, sem öll net skulu vera í landi, ráð fyrir 48 stunda friðun, og er ég þar sammála meiri hl. n. um, að það sé ekki rétt að ganga lengra í þessari friðun en það, að lengja þennan tíma úr 36 stundum, sem hann nú er í gildandi lögum, í 48 stundir á viku, en samkv. frv. er öll veiði bönnuð í 60 klst. á viku hverri. Og ég sé nú, að öðrum eða einum af þrem höf. þessa frv. hefir ekki þótt nógu langt gengið í þessu efni, þegar hann samdi frv., því að nú flytur hann brtt. um, að friðunartíminn skuli vera ekki 60, heldur 72 stundir á viku hverri. Ég ætla nú, að menn muni geta fallizt á það, þegar litið er á allar kringumstæður, að ekki sé ástæða til að lengja þessa friðun meira, en landbn. leggur til, og ég nú í þessari minni till.

Í sambandi við þetta vil ég benda á, að þar sem um er að ræða stórar ár, eins og um Hvítá í Borgarfirði og Ölfusá, er það ekki, miðað við breidd ánna, tiltölulega stuttur spotti undan landi, sem heimilt er að leggja lagnetin á, og auk þess mega ekki samkv. ákvæðum frv. vera minna en hundrað metrar milli lagna. Virðist þá, að t. d. Hvítá í Borgarfirði og öðrum slíkum stórvötnum muni vera nógu rúmur gangur fyrir laxinn til þess að komast leiðar sinnar upp árnar, þar sem svo langt er á milli lagna, svo að það sé ekki ástæða til að ganga lengra í þessum takmörkunum en að banna alla veiði 2 daga í viku, eða 48 klukkustundir. Enda er með því friðunin aukin um 1/3 frá því, sem er í gildandi lögum.

Ég vil ennfremur benda á það í þessu samhandi, og í sambandi við þýðingu, og þá sérstaklega hið fjárhagslega gildi laxveiðanna, að sá lax, sem veiðist neðarlega í ám og snemma á veiðitímanum, er miklu verðmætari vara heldur en sá lax, sem veiðist ofarlega í ám og seint á veiðitímanum, því að það er ekki einungis svo, að sá lax, sem veiðist seint, sé engin vara á erlendum markaði — en þar er mikið af laxinum selt —, heldur er beinlinis bannað þar að selja hann lax, sem farinn er að dökkna við það að liggja lengi í ánum, þar sem hann fær litla fæðu og megrast því tiltölulega fljótt.

N. var öll sammála um að breyta ákvæði frv. um þann tíma, sem ádráttur mætti fara fram á á hverjum sólarhring. Það virðist nokkuð með undarlegum hætti, að mþn. eða höf. þessa frv. skyldi gera breyt. á þessu frá því, sem er í gildandi l., í þessa átt, þó það sé alviðurkennt af öllum, sem vit hafa á þeim hlutum, að það stafi mest hætta af ádráttarveiðunum einmitt þegar farið er að dimma af nóttu. Fyrir laxinn og silunginn er mest hættan af því að draga á í hyljum, þar sem hann safnast saman, þegar dimma tekur af nóttu. Mér þótti því undarlega við bregða, og mörgum öðrum, sem talað hafa um það við mig, þegar ég sá, að nú átti að leyfa að draga á til miðnættis, í stað náttmála, sem nú er, og sem er það síðasta, sem leyfa má áadrátt fram eftir kvöldi. Það er því mjög undarlegt, að mþn. skuli hafa farið að breyta þessu og færa einmitt leyfið yfir á þann tíma, sem laxinum og silunginum stafar mesta hætta af ádrættinum. Mér hefir verið sagt það af mönnum, sem mikinn kunnugleika hafa á því, hvernig laxinn hagar sér í ánum, að á daginn haldi hann sig mest á grynningunum, í straumnum og í hrotum, en dregur sig svo aftur ofan í hyljina, þegar fer að dimma og safnast þar saman í torfur. Með þessu ákvæði er vitanlega stórum aukin sú hætta, sem laxinum stafar af ádráttarveiðinni.

þetta eru nm. allir sammála um að færa til betri vegar og í það skynsamlega horf, sem það nú er í, í gildandi lögum.

Í raun og veru er á brtt. minni og n. ekki mikill munur að öðru leyti en því, að miðað við ákvæði 16. gr. frv., um það, hvernig hagað skuli ákvörðun um það, hvenær veiðitíminn skuli byrja og enda. innan þess tíma, sem þar er til tekinn, þá geri ég ráð fyrir, að þetta sé lagt í vald héraðsstjórnanna á hverjum stað.

Ég vil benda á það, að ég geri ráð fyrir, að það megi draga á 5 daga í hverri viku, en nú má samkv. gildandi 1. draga á alla virka daga. Í frv. er gert ráð fyrir, að ekki megi draga á nema 4 daga í viku, en þó er ráðh. heimilt að veita undanþágu frá þessu, eftir till. veiðimálastjóra, svo að í þeim tilfellum, þegar um slíkt leyfi væri að ræða, er enginn munur á minni brtt. og frv.

Næst hefi ég þá leyft mér að koma með brtt. við 28. gr. Það er nú svo í þessu frv., að möskvastærð þeirra netja, sem nota má til laxveiði, er minnkuð frá því, sem hún er í núgildandi l. Í núgildandi l. er svo ákveðið, að möskvar megi eigi vera minni ummáls en 9 þumlungar að gömlu máli, en það mun jafngilda liðugum 23 cm. En samkv. ákvæðum frv. má möskvastærðin ekki vera minni en 41/2 cm. leggurinn, en með þessu ákvæði er möskvastærðin minnkuð allmikið. Þegar hún er miðuð við eldri ákvæði um þetta. Ef reiknað væri með sama hætti og í frv. er gert, er möskvaleggurinn samkv. núgildandi ákvæðum 5–6 cm., nákvæmlega reiknað 51/2 cm. eða kannske rúmlega það. Ég sé nú ekki, af hvaða ástæðu það er gert, að minnka möskvastærðina; ég hélt, að það væri frekar til óhagræðis og spillis fyrir veiðarnar heldur en hitt. Vitanlega er mest verðmæti í stóra laxinum og því ávinningur að veiða ekki laxinn fyrr en hann hefir náð fullum þroska, og er þá nær sanni, að ég ætla, að halda þeirri möskvastærð, sem nú er, því að hún mun vera meira miðuð við það, að ekki beri að leggja gildrur fyrir smálax, heldur bíða eftir að hann taki fullum þroska. Það er sagt um laxinn, að hann sé hagspakur og sæki upp í þær ár, sem hann er uppalinn í. Virðist mér því, að þetta stefni hjá n. til þess, sem miður sé, sem sé til þess að draga úr veiði stórlaxa með því að drepa laxinn á ungum aldri. Enda var vanur laxveiðamaður, sem talaði við mig um þetta, og enda fleiri mjög hneykslaðir yfir þessu ákvæði og töldu hiklaust, að það færi í þá áttina, sem miður er. Og ég sé, að Halldór Vilhjálmsson á Hvanneyri og Sigurður Fjeldsted hafa skrifað Alþingi um þetta mál og vekja athygli þess á þessu ákvæði, sem þeir telja fara alveg í öfuga átt, og leggja þeir mjög á móti, að það verði lögleitt. Þeir álíta, að vel gæti komið til mála að stækka riðilinn, en alls ekki að minnka hann. Og í viðtali, sem ég átti við Halldór á Hvanneyri í dag, sagði hann mér, að hann hefði kynnt sér norska löggjöf um þetta efni, og segir, að í nýjustu norskri löggjöf um þetta efni, frá 1930, sé gengið út frá sömu möskvastærð og er hjá okkur nú í gildandi lögum. Ég hefi því borið fram brtt. við þær 3 gr. frv., sem þetta er tekið fram í, að það skuli vera sömu ákvæði um þetta áfram og eru í núgildandi 1., nefnilega, að ummál möskvanna verði 23 cm., en það samgildir sem allra næst 9 þumlungum eftir gamla málinu.

Þá hefi ég borið fram við 29. gr. brtt. um, að 4. málsgr. falli niður. Þar er svo ákveðið, að eigi megi hafa ádrátt í á nær fastri veiðivél en 200 metra. Mér er kunnugt um, að með þessu ákvæði er algerlega tekinn laxveiðirétturinn af sumum jörðum, sem nú hafa mjög mikil laxveiðaafnot, og að þau verðmæti þessara jarða hverfa, sem byggjast á þessum laxveiðum og metin hafa verið til dýrleika ásamt jörðunum og tekið tillit til þessa verðgildis við kaup og sölu á þeim. Hér er því gengið mjög freklega til verks í því að skerða viðurkenndan eignarrétt manna, eins og reyndar á fleiri sviðum í þessu frv. Þess vegna hefi ég leyft mér að bera fram brtt. um, að þetta ákvæði falli niður.

Í öðru lagi hefi ég flutt brtt. við sömu gr. um, að þar sem ákveðið er í 2. og 3. málsgr., að eigi megi draga ádráttarnet yfir meira en 2/3 hluta af breidd ár í senn og að fyrirstöðunet eða annað, er tálmar undankomu fiskjar, megi eigi nota við ádrátt í ám, þá geti ráðh., eftir till. veiðimálastjóra, veitt undanþágu frá þessum ákvæðum, og ætla ég, að þessi ákvæði geti eigi síður heyrt undir undanþáguákvæði frv. en ýmislegt annað samkv. ýmsum gr. þessa frv.

Þá er það brtt. við 31. gr. frv., og er það síðasta brtt., sem ég flyt að þessu sinni við frv. Þar er svo ákveðið í 2, mgr. 31. gr., að ekki megi vera skemmra en 100 metrar á milli lagna. Nú er það svo, að það hagar mjög misjafnlega til um það á hinum ýmsu stöðum, hvort hægt er að koma við slíkum lögnum. Nú getur það verið, að svo hagi til, að mjög langt sé á milli lagna, að það sé ekki hægt með kleifum kostnaði að koma lögn við þar, sem hún má vera, en að aftur á móti sé á öðrum stöðum hægt að koma mörgum lögnum við á stuttu bili. Getur þetta 100 metra haf því orðið til þess að eyðileggja lagnir, sem nú eru notaðar, án þess að hægt sé að koma við öðrum lögnum með því millibili, sem gert er ráð fyrir í þessu frv. Því hefi ég lagt til, að ráðh. geti, að fengnum till. veiðimálastjóra, veitt undanþágu frá þessu ákvæði. Nú er í gildandi lögum svo ákveðið, að á milli lagna séu 30 faðmar, svo að munurinn er allverulegur. Ég legg því til, að þetta verði eitt af undanþáguskilyrðum frv., því mér skilst, að það sé varla rétt að láta þetta ákvæði gilda skilyrðislaust.

Ég hefi þá rakið þær brtt., sem ég á við þetta frv., og get ég því látið hér staðar numið um það, en ég vænti, að allir hv. dm. sjái, að með þeim er málið fært inn á betra, eðlilegra og heppilegra svið, sérstaklega 16. og 17. gr. frv., og að þeir því geti orðið mér sammála um að samþ. þessar brtt. mínar. Enda er það svo, að þær ganga að engu þeyti í áttina til að draga úr öryggi frv., heldur til þess að samríma eins og hægt er einstakar kringumstæður við ákvæði frv. yfirleitt.

Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta. En fyrirvari minn miðast við það, eins og brtt. mínar sýna, að ég tel ekki að með brtt. n., þótt þær séu allar til bóta yfirleitt, sé komið á nauðsynlegri lagfæringu á frv. Og ég geng þess heldur ekki dulinn, að þótt brtt. mínar verði samþ., þá komi síðar ýmislegt fram, sem reynslan sýnir, að betur fari á annan veg. Og þá er það Alþingis síðar að verða við þeirri nauðsyn, sem menn sjá á því að breyta l. og gera á þeim þær bætur, sem ákjósanlegar eru, og reynslan sýnir, að rétt er og nauðsynlegt að gera.