15.04.1932
Neðri deild: 52. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 925 í B-deild Alþingistíðinda. (479)
7. mál, lax- og silungsveiði
Hannes Jónsson:
Það eru léleg rök hjá hv. þm. Dal., að hann hafi ekki getað borið fram brtt. sína af því, að hann hafi ekki séð frv. prentað fyrr en í gær. Hélt ég, að hann hefði fylgzt svo með afgreiðslu málsins við 2. umr., að hann vissi um innihald frv. Hefði hann þá getað gefið n. bendingar um það, hvaða efnisbreytingar hann vildi gera á frv., og hefði þá enginn vafi leikið á því nú, hvort n. gæti fallizt á þessa skoðun hans eða ekki þetta gerði hv. þm. ekki, og sýnist því afstaða hans benda til þess, að hann hafi hugsað sér að fleyga málið á síðustu stundu eða þá tefja fyrir framgangi þess.
Ég var ekki með neina hótun við hv. þm., en ég benti honum á, hverju væri hægt að svara honum, ef hann framkvæmdi hótun sína um málþóf. Og þó hv. þm. finnist ég vera mikill á lofti í þessu máli, þá vil ég segja honum það, að hann mun komast að raun um, að fleiri en ég muni standa í vegi hans í þessu máli, hversu mikið sem hann belgir sig.