08.04.1932
Neðri deild: 46. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í B-deild Alþingistíðinda. (49)
1. mál, fjárlög 1933
Haraldur Guðmundsson:
Við þennan hluta umr. hefi ég fátt að segja. Mér þykir þó rétt að endurtaka það, sem ég sagði við 1. umr., að fjárlagafrv., eins og það var lagt fyrir þingið af hæstv. ríkisstj., er hreint niðurskurðarfrv. Borið saman við framkvæmdir síðustu ára á sama og ekkert að veita til nýrra verklegra framkvæmda, einar 400 þús. kr. samkv. frv. stj. Ég hefi lýst því yfir áður, að einmitt af því, að árferðið er eins og það er nú, tel ég þetta alveg óverjandi. Þegar dregur úr atvinnu hjá einstaklingsfyrirtækjum, verður ríkissjóður með einhverjum ráðum að halda að minnsta kosti framkvæmdum sínum í horfinu, og helzt að auka þær. Ég játa að vísu, að á því eru nokkrir örðugleikar, sérstaklega þar sem ekki hefir verið í gildi á undanförnum árum löggjöf í þá átt, sem gert er ráð fyrir í frv. okkar jafnaðarmanna um jöfnunarsjóð ríkisins.
Ég hygg, að tekjuáætlun hæstv. fjmrh. hafi mátt telja varlega. Ég held, að áætlunin sé komin ráð langt niður, að hún hljóti að standast, svo framarlega að ekki fari allt í kalda kol. Fyrir þá, sem gera ráð fyrir, að allt falli í rústir, er ómögulegt að gera tekjuáætlun, sem nokkurt vit er í. Ef tekjur ríkissjóðs fara niður úr því, sem hæstv. fjmrh. áætlar, þá má eins búast við, að þær falli svo langt niður, að ómögulegt er að gera sér grein fyrir, hvar það mundi lenda. Það er því ekki hægt að gera ráð fyrir, að tekjuáætlun hv. fjvn. sé neitt nær sanni en áætlun hæstv. fjmrh., og sé ég því enga ástæðu til að samþ. brtt. hennar um lækkun tekjuliða. Ég álít, að reynsla undanfarinna ára hafi sýnt það, að ef Alþingi vill ekki sleppa fjárveitingavaldinu úr höndum sér, þá sé sjálfsagt fyrir ráð að gera ekki leik til þess að áætla tekjurnar svo lágt, að fyrirsjáanlega verði miklar umframtekjur, sem stj. svo getur ráðstafað eftir eigin geðþótta.
Um aðrar brtt. hv. fjvn. skal ég lítið segja. Ég skal þó taka það fram, að ég er n. sammála um, að rétt sé að fella niður gengisviðaukann á konungsmötunni. En mér þótti hv. frsm. fjvn. of konunghollur, þegar hann fór að tala á móti þessari brtt., sem hann þó átti að mæla fyrir af hálfu n. Og mér skildist hann vera að gefa í skyn, að það væri ekki meiningin að lækka konungsmötuna, heldur væri aðeins um að ræða, að færa gengismuninn á annan lið. Ef svo er, sé ég ekki, að þessi till. hafi neina þýðingu.
Annars þykir mér rétt að benda á það innilega bræðralag og þá góðu samvinnu, sem er hjá hinum tveimur mögnuðu andstöðuflokkum í fjvn.
Það er meira ósamkomulagið eða hitt þó heldur í þessari n. milli flokkanna, sem alltaf lýsa hvor öðrum sem stórhættulegum þjóðinni, þegar þeir eru að tala við kjósendur, og fjallar hún þó um þau mál, sem talin eru þýðingarmest af störfum löggjafarþinga, sem sé fjármálin; þar virðist ekki ganga hnífurinn á milli. N. er sammála um nál. og sammála um brtt. Íhaldsmenn, sem þykjast vilja kreppa að hæstv. stj. og neita henni um fé til þess að gera henni ómögulegt að sitja við völd og hefta framgang stjórnarskrármálsins, þeir leita nú að hverri hugsanlegri smugu til þess að spara fyrir hana. (JAJ: Það er gert fyrir kjósendurna). Ég hélt, að það væri aðallega gert fyrir hæstv. ríkisstj., svo að hún gæti þó hangið áfram. Að hjálpa stj. til að létta af sér lögboðnum gjöldum er alveg það sama og útvega henni tekjur, og verður því lítið úr skrafi hv. sjálfstæðismanna um að neita ríkisstj. um tekjur. Af till. fjvn. sé ég, að íhaldsmenn eru sammála framsóknarmönnum um að létta hálfrar millj. kr. gjöldum af ríkissjóði. Og til viðbótar flytur svo hv. fjvn. sérstakt frv., þar sem um er að ræða að auka beint tekjur ríkisins til óbundinna útgjalda. Samkv. því á að taka tekjur af tóbakseinkasölunni af verkamannabústöðunum og byggingar- og landnámssjóði og leggja þær í ríkissjóð, taka skemmtanaskattinn af þjóðleikhúsinu og leggja hann í ríkissjóð, láta byggingar á prestsetrum niður falla og einnig hið árlega framlag til Landsbankans. Það virðist talsvert ósamræmi í þessum aðgerðum sjálfstæðismanna í fjvn. við það, hvernig þeir tala hér í hv. d. Þeir hrækja ekki eins hraustlega, þegar til verkanna kemur, eins og þeir gerðu hér við eldhúsdagsumr. Ég sé ekki, að það væri auðvelt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að greiða atkv. á móti fjárlögunum, eins og þeir eru að gera ráð fyrir, þegar þeirra menn í fjvn. hafa skrifað undir sameiginlegt nál. um þau með framsóknarmönnum og eru þeim sammála um allar brtt. Með því hafa þeir sýnt, að þeir eru sammála Framsókn um framgang fjárlaganna á þeim grundvelli, sem nál. gerir ráð fyrir.
Mér þótti rétt að henda á, hversu mjög rétta háttalag skýtur skökku við ýms ummæli, sem fallið hafa hér í hv. d. af hálfu íhaldsmanna.
Um brtt. einstakra þm. hefi ég lítið að segja. Ég á nokkrar brtt., en þær eru flestar við seinni hluta fjárlagafrv., og verð ég því að láta bíða að geta þeirra. Eina brtt. á ég þó við brtt. n., sem tilheyrir þessum kafla. Er hún við tölulið 12, þess efnis, að þar komi nýr liður, framlag til Fjarðarheiðarvegar, 15 þús. kr.
Þessi vegur hefir ekki átt upp á pallborðið hjá hæstv. ríkisstj. Það eru ýmsir aðrir vegspottar, sem fundið hafa náð fyrir augum hennar og hennar flokks. Ef ég man rétt, fóru fram fjórar atkvgr. um mismunandi há framlög til Fjarðarheiðarvegar á sumarþinginu, tvær hér í hv. d. og tvær í hv. Ed. Við þær allar greiddu allir framsóknarþm. atkv. á móti því að leggja fé til þessa vegar.
Nú er rétt að geta þess, að fyrsta áætlunin, sem var gerð um kostnaðinn við að leggja veg yfir Fjarðarheiði, var gerð með það fyrir augum, að lagður væri vegur, sem stæði upp úr snjó mestan hluta ársins, frá Seyðisfirði upp að Egilsstöðum, og átti hann að kosta um eða yfir 300 þús. kr. Nú mun aftur vera skoðun allra, sem til þekkja þarna fyrir austan, og ég hygg líka vegamálastjóra eftir þeim upplýsingum, sem hann gaf fjvn. á vetrarþinginu í fyrra, að ekki sé rétt að halda sér við þessa hugmynd, heldur eigi að ryðja bílfæran sumarveg yfir heiðina. Áætlar vegamálastjóri, að slíkur vegur mundi kosta 90 þús. kr. Ég hefi ástæðu til að ætla, að það sé óþarflega rífleg áætlun, því að aðrir kunnugir menn, sem þetta hafa athugað, álíta, að komast mætti af með 60 þús. kr. til að gera sæmilegan veg yfir heiðina þann tíma árs, sem snjór er ekki til fyrirstöðu.
Aðstaðan þarna eystra er sú, að Seyðisfjarðarkaupstaður hefir ekkert vegasamband við héraðið og er hann því algerlega skorinn frá bílveginum, sem liggur ofan við fjallgarðinn og niður á Reyðarfjörð og Eskifjörð. Í þessu sambandi má einnig benda á það, að Austfirðir eru ennþá ekki komnir í samband við aðalvegakerfi landsins. En eftir þeim till., sem fyrir lágu frá vegamálastjóra árið 1930, má telja víst, að fyrir 100–140 þús. kr. megi gera bílfært frá Húsavík við Skjálfanda yfir Reykjaheiði og Kelduhverfi, upp með Jökulsá, upp yfir Fjallasveit, austur yfir öræfin og niður Jökuldal að Jökulsarbrú og bílveginn þaðan. Væri svo ennfremur gerður vegur yfir Fjarðarheiði fyrir um 60 þús. kr., væri kominn nokkurn veginn óslitinn bílvegur frá vötnunum í Rangárvallasýslu eða þaðan, sem bílar komast lengst austur, vestur og norður um land alla leið austur til Seyðisfjarðar. Og þegar litið er á þær feiknafjárhæðir, sem lagðar hafa verið í vegagerðir á undanförnum árum, þá er furðulegt, að ekki skuli hafa verið varið þessari tiltölulega litlu fjárhæð, sem til þarf, til þess að tengja heilan landsfjórðung við aðalvegakerfi landsins.
Verði þessi fjárveiting til Fjarðarheiðarvegarins tekin upp í fjárlög, ber á það að líta með tvennt fyrir augum. Annað er nauðsyn kaupstaðarins og hlutaðeigandi héraðs, sem er mjög mikilsvert atriði, þar sem kaupstaðarbúum og héraðsbúum er hægt frá að hafa viðskipti hvorum við aðra til hins mesta skaða fyrir hvoratveggju, meðan ekki er gert bílfært yfir heiðina. Hitt er það, að skoða verður þetta sem spor í áttina til þess að tengja Austfirði við vegakerfi landsins. Að þessu athuguðu vænti ég, að hv. þdm. líti sanngjarnlega á málið og greiði brtt. minni atkv. Hér er ekki farið fram á nema 15 þús. kr. Ég geri mér í hugarlund, að ekki þyrfti þó að dragast í 4 ár að ljúka þessu verki. Er upphæðin tiltekin í þeirri von, að meira fáist seinna. Ef til vill væri ekki vonlaust um, að hægt væri að fá til bráðabirgða eitthvað af fé þar eystra til að flýta verkinu, ef tekin væri upp fjárveiting til þess á fjárlög, sem teljast yrði sem loforð um áframhaldandi framlag.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þessa brtt. mína; vænti ég, að hv. d. taki henni hið bezta.