16.04.1932
Neðri deild: 53. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í B-deild Alþingistíðinda. (493)
7. mál, lax- og silungsveiði
Jónas Þorbergsson:
Ég skal ekki lengja umr. mikið úr þessu. Ég leitaðist við í síðustu ræðu minni að skýra afstöðu mína til frv. og þeirra brtt., sem ég flyt. Ég sé ekki ástæðu til að leggja slíkt kapp á að koma fram löggjöf, sem tvímælis orkar í verulegum atriðum.
Mig furðar á þeim rökum, sem borin hafa verið fram móti till. mínum. Í öðru orðinu er því haldið fram, að veiðin við ósana muni ekkert rýrna, í hinu orðinu, að fiskgengdin í ánum muni stórum aukast þetta tvennt er ósamrímanlegt; annaðhvort hlýtur ósveiðin að minnka, ef laxinn á að fá greiðari göngu upp í árnar og veiðin að aukast þar, eða ósveiðin minnkar ekki, og getur veiðin eða fiskigengdin þá ekki aukizt upp um arnar. Ég tel það algerlega rangt að hraða þessu máli afram nú. Úr því að sleppa á öllu eftirliti og öllum styrk til fiskiræktar, þá tel ég, að verr sé af stað farið en heima setið, og að það muni ekki bæta úr núverandi ástandi, heldur færa það til enn verra horfs. Með frv. er verið að opna fiskinum leið upp í bergvatnsárnar, þar sem auðgengara er að honum og hann verður enn freklegar veiddur en nú er gert. Í stað þess, sem nú er veitt við ósana, og er markaðsvara, yrði gengið enn nær stofninum í bergvatnsánum, þar sem laxinn er ekki markaðsvara. Þessi yrði afleiðingin af frv. óbreyttu. Ég er fylgjandi þeirri aðalstefnu frv. að stuðla að fiskirækt, en úr því að þeim aðalatriðum frv., er lúta að stjórn veiðimála og eftirliti og styrk til fiskiræktar, á að skjóta á frest um óákveðinn tíma, þá tel ég varla tímabært eða ómaksins vert að setja þessi l., því að á meðan styðja þau ekki aðalhugsun frv., heldur auka aðeins á rányrkjuna í þessu efni.
Ég er svo óánægður yfir þessari afgreiðslu málsins sem mest má verða. Það er ekki vegna þess, að ég sé á móti því, sem á að vera aðaltilgangur frv; það er langt frá því. En ég er hræddur um, að það, sem næst með afgreiðslu frv. á þennan hátt, verði málinu til tjóns. Við eigum að keppa að því að stunda fiskirækt, en ekki auka rányrkjuna, eins og hér er stofnað til.