20.02.1932
Neðri deild: 6. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (5)
1. mál, fjárlög 1933
Héðinn Valdimarsson:
Alþýðuflokkurinn mun ekki taka annan þátt í umr um þetta mál nú en þau fáu orð, sem ég læt nú falla. Við höfum ekki fengið að vita, að almennar umr. ættu að fara fram um frv. nú og höfum því ekki haft tíma til að búa okkur undir umr. eftir að hafa nú aðeins heyrt ræðu hæstv. fjmrh.
Myndir þær, sem hann málaði hér, voru að vísu ekki glæsilegar, en flestir munu þó sammála um það, að ástandið er enn dekkra en hann hefir hér sýnt.
Ráð þau, er hann kom með gegn því fjármálaástandi, sem hér ríkir nú, voru fá og óglögg, og víst er um það, að ef eitthvað á að ráða fram úr, þá verður að ganga hér skörulegar að verki. Við munum taka upp þetta mál við framhald 1. umr. og koma þá með aðfinnslur við fjármálaræðuna og fjármálastjórn landsins og ríkisstj. eins og venja er til við eldhúsdagsumr.