11.05.1932
Efri deild: 72. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 967 í B-deild Alþingistíðinda. (508)

7. mál, lax- og silungsveiði

Magnús Torfason:

Ég vil byrja með því að lýsa því yfir, að með orðum mínum um, að þessi lagabálkur væri ófullkominn, átti ég alls ekki við starfið, sem lagt hefði verið í þetta frv. Ég býst við, að það hafi verið vandað til þessa frv. eins og til flestra annara lagabálka. En hitt er annað mál, að það er sjálfsagt vandasamara að gera þessi l. vel úr garði en flest önnur l. Ég hélt, að ég hefði tekið það fram, að þetta er hagsmunamál mýmargra manna og þess vegna muni ekki vera unnt að setja þau l. til friðunar á laxi, sem menn vildu gjarnan vera láta. Ég vil benda á í þessu sambandi, að þetta eru ekki aðeins skipunarlog, heldur líka heimildarlög. Það á að mynda samkv. þessum lögum ýmiskonar félagsskap, fiskiræktarfélög, veiðifélög og félagsskap, sem á að standast kostnað við ýmsar ráðstafanir til þess að auka fiskigengd í ám. Þess vegna er ég hræddur um, að það tjái ekki að hafa þær almennu reglur miklu harðari en hér er gert. Mér þætti líklegt, að ef þessar reglur yrðu settar harðari, þá yrði það til þess, að þessi félagsskapur kæmist ekki á.

Það hefir verið sagt hér, að það væri betra að fresta frv. og bíða betri tíma, þangað til það skýrðist fyrir mönnum, hvað hér væri í húfi. Ég skil ekki, að þetta yrði gert á annan hátt en þann, að það væri farin einhverskonar laxaherferð um öll héruð, inn á hvert heimili þeirra manna, sem eiga land að veiðiám eða hafa von um það á sínum tíma að geta náð til einhverrar veiði. Ég fyrir mitt leyti lít svo á, að þetta mál sé svo mikils virði, að það væri vert að gera eitthvað í þessa átt. En mér skilst, að það sé nú samt ekki hægt eins og stendur að gera annað, sem fremur ýtir undir þetta, en að samþ. frv. með öllum þeim margháttaða félagsskap, sem þessum l. fylgja, og nærfærni þeirra manna, sem er ætlazt til í þessum l. að hafi umsjón með veiðinni og kynni sér veiðiárnar og göngu laxanna o. s. frv.; þá hélt ég að það væri einmitt undirbúin herferð í þessu efni, herferð, sem gerði það að verkum smátt og smátt að kynna mönnum málið, og þar á meðal að sýna mönnum fram á, að hér sé um virkilega auðsuppsprettu að ræða, en ekki aðeins lítilfjörleg búþægindi. Í því sambandi var þess getið, að sá maður, sem muni hafa ráðið mestu um frv., hafi að vísu haft tækifæri til þess að kynna sér nokkuð veiði í vötnum, en það hafi staðið svo á, að hans þekking náði aðeins til þannig lagaðrar veiði, sem fremur mætti virði til búþæginda.

Ég get lýst yfir því, að ég hefi oft átt tal við þennan mann um þessi efni og veit, að hann hefir fullan skilning á þessu máli, sem mikilsverðu atvinnumáli fyrir þjóðina. Ég get ekki hugsað mér, að hann sé eins og „karlinn í kassanum“, sem sér ekki út fyrir lokið, og það því síður, sem hann hefir ábúð á jörð, sem er leigð honum frá ári til árs og hann verður að fara frá hvenær sem nægilega hátt boð kemur í hana, en henni er haldið í svo þau verði, að ekki er fyrir nokkurn kristilegan bónda að kaupa hana, og er það þó hlálegt, þar sem um er að ræða okkar forna og fyrsta biskupssetur.

Ég hefi þá trú, að ekki verði komizt lengra í þessu máli eins og stendur og þýði því ekki að draga frv. á langinn.

Hv. 4. landsk. sagði, að hvorki þyrfti né væri rétt að samþ. þessi lög með þeim skilningi, að þau væru nokkurskonar tilraun, því að áhrifin væru þegar séð, að laxinn yrði tekinn alstaðar í ánum, þar sem til hans náðist. Ég get ekki fullhermt um þetta. Ég get fullyrt það eitt, að nú er laxinn tekinn þar, sem til hans næst. En ummæli hv. 4. landsk. um áhrif þessa frv., ef að lögum verður, eru aðeins spádómur, og þótt hv. 4. landsk. sé spámannlega vaxinn, verð ég að líta svo á, að minn spádómur, að ákvæði frv. verði til þess, að menn hætti við þá rányrkju, sem nú tíðkast, hafi við eins mikil rök að styðjast.

Í þessu frv. eru ýms friðunarákvæði bæði neðan og ofan við ár, og þó er það mikilsverðast, að nú er laxinn friðaður fyrir aðalóvininum, selnum. Ég get ekki hugsað mér annað en að þeir, sem búa ofar með ánum, sjái hvað fyrir þá er gert, og hafi þá mannsparta að vera þakklatir fyrir það og níðast ekki á lögunum. Með þessu frv. er vitnað til drengskapar manna, og eftir því sem ég þekki íslenzka bændur, er ég ekki í vafa um, að slíkt hefir mikil áhrif til góðs á hugsunarhátt manna í þessu efni.