11.05.1932
Efri deild: 72. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 973 í B-deild Alþingistíðinda. (512)

7. mál, lax- og silungsveiði

Frsm. meiri hl. (Jón Jónsson):

Hv. frsm. minni hl. hélt því fram, að ég hefði rangfært ummæli sín. Hafi ég gert það, er víst, að ég hefi ekki gert það viljandi, því að til þess hafði ég enga löngun.

Ég get tekið undir það með hv. 2. þm. Árn., að vel geti svo farið, að jarðir byggist ekki, ef veiðirétturinn er frá þeim tekinn. Tel ég því röksemdafærslu hv. 4. landsk. um þetta atriði mjög orka tvímælis.

Þá vildi hv. 4. landsk. halda því fram, að þau ákvæði frv. þessa, sem ganga í þá átt að flytja veiðina til í ánum, auka hana fyrir þá, sem ofar búa, væri skemmd á laxveiðalögunum. En þetta er ekki rétt. Veiðin á að skiptast sem jafnast milli þeirra manna, er veiðirétt eiga, en jafnframt á að setja ákvæði um það, hvernig stunda beri veiðina, svo að hún verði sem arðvænlegust fyrir alla, er hennar eiga að njóta.

Hitt atriðið, sem hann hélt fram, að æskilegt væri að banna í sumum tilfellum alla veiði í ám, nema stangarveiði, þá er opin leið til þess samkv. 18. gr. Þar er ráðh. heimilað að banna alla veiði aðra en stangarveiði, í samráði við veiðimálastjóra, ef þess telst brýn þörf, svo að það atriði er einnig stórbót frá núgildandi löggjöf.

Mér skildist hv. þm. helzt gera „grín“ að því að veiða í soðið, eins og hann kallaði það. En það geri ég ekki. Mér finnst nefnil. fullmikið að því gert að flytja beztu afurðirnar frá búunum til kaupstaðanna, og nota aftur ódýrari fæðutegundir. Nýmetið er engu síður nauðsynlegt fyrir sveitafólkið en kaupstaðabúana.

Þá vildi hv. þm. halda því fram, að afleiðingin af því, ef leiguliði fengi skilmálalaust yfirráðin yfir veiðiréttinum, en landeigandi engin, gæti orðið sú, að í mörgum tilfellum yrði veiðin ekki eins arðsöm, því að landeigandi hefði oft betri tök á að hagnýta hana en leiguliði. Þetta getur vel verið rétt, eins og nú standa sakir, í einstöku tilfellum. En ég býst við, að það breytist, því að þegar veiðin fer að aukast, myndast eðlilega sölufélög til þess að koma veiðinni í verð.

Læt ég svo útrætt um þetta mál í bili.

Frsm. meiri hl. (Jón Jónsson): Hv. frsm. minni hl. hélt því fram, að ég hefði rangfært ummæli sín. Hafi ég gert það, er víst, að ég hefi ekki gert það viljandi, því að til þess hafði ég enga löngun.