08.04.1932
Neðri deild: 46. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í B-deild Alþingistíðinda. (52)
1. mál, fjárlög 1933
Sveinbjörn Högnason:
Hv. samþm. minn gerði grein fyrir brtt. okkar við fjárl., svo að mér hefði verið óþarfi að tala sérstaklega fyrir heim, ef hv. frsm. fjvn. hefði ekki gefið mér ástæðu til þess.
Fyrst er brtt. okkar á þskj. 334, um styrk til frú Sigríðar Kjartansdóttur í Holti. Veit ég, að allar styrkveitingar eru nú heldur illa séðar, eins og auðséð er af því, hvernig öllu er í hóf stillt á fjárl. Þess vegna höfum við þm. Rang. ekki farið fram á aðra styrki en þá, sem við höfum verið knúðir til að sækja um. Er ég sannfærður um það, að þótt styrkveitingar séu illa séðar nú, þá muni það ekki eiga við um þessa, því að það myndi einmitt vera illa séð af öllum, sem til þekkja, ef Alþingi synjaði um þennan styrk, enda bendir til þess sú eindregna ósk, sem hv. samþm. minn skýrði frá, að fram hefði komið í prestakalli sr. Jakobs Lárussonar um það, að skora á Alþingi að veita honum þennan styrk. Séra Jakob hefir nú verið veikur hátt á annað ar, en allar líkur benda til, að bati sé nú ekki langt undan. Er því mikils virði, að þessi styrkur fáist, að nú virðist vera að rofa til um það, að styrkurinn geti komið að gagni. Þekki ég góðan hug margra hv. þdm. til þessa máls og treysti ég svo skilningi þeirra og drengskap, að ég held mig ekki þurfa að ræða frekar um þetta mál.
Þá vil ég sérstaklega minnast á brtt. okkar, XI., þar sem við förum fram á 10 þús. kr. til Fjallbaksvegarins í Landsveit. Hefi ég orðið var við, að sumir hv. þdm. skilja þetta svo sem verið sé að fara fram á styrk til fjallvegar þess, sem liggur úr Landsveit austur í Skaftartungu, en svo er ekki. Vegur sá, sem liggur frá Suðurlandsvegi upp í Landsveit er einnig kallaður Fjallbaksvegur. Er hér farið fram á styrk, til þess að hægt sé að gera hann færan alla tíma árs, því að þessi sveit er svo stödd, að hún kemst ekki með afurðir sínar frá sér til markaðsstaðar oft og einatt að vetrinum, nema gert sé við hann. T. d. jafn-snjóléttan vetur og nú er, hefir vegurinn verið ófær lengi. Lítum við svo á, að þar sem í fjárl. eru veittar aðeins la0 þús. kr. til nýrra akvega, þá sé sjálfsagt að veita þetta fé til vega, þar sem það getur komið að fullum notum strax. Þykir okkur ekki rétt að taka mikinn hluta þess til vega, sem ekki koma strax að gagni um flutning afurða á markað. Höfum við því lagt til, að þessi fjárveiting til Fjallabaksvegar verði tekin sem lækkun á fénu til Holtavörðuheiðarvegar. Finnst okkur sem aðallega þurfi að gæta tvenns við úthlutun þessa fjár: Fyrst þess, að það, sem lagt er fram, komi að notum strax, þannig, að það létti undir um vöruflutninga og afurða, og svo hins, að það komi nokkurnveginn jafnt niður á héruðin. Þá tel ég þess beri að gæta, að jafnframt og þetta fé kæmi að notum sem samgöngubót, myndi verða að því talsverð atvinnubót á þessum erfiðu tímum. Er því ekki rétt að verja öllu akvegafé í einstöku landshlutum aðeins, þar sem það kemur ekki heldur að fullu gagni. Hv. frsm. sagði, að ef teknar væru 20 þús. kr. af Holtavörðuheiðarvegi, þá kæmu þær 30 hús. kr., sem eftir væru, ekki að neinum notum. En ég verð að segja, að mér þykir það hart, að tekinn sé 1/3 hluti til eins vegar, þegar aðeins eru veittar 150 þús. kr. alls. Það er vitanlegt, að Holtavörðuheiðarvegur er fær á sumrum fyrir bíla, og er þar aðeins um fólksflutning að ræða. Er ekki hægt að sjá, að bjargrað séu í því á þessum erfiðu tímum að ráðstafa fénu svona, þar sem hér er ekki um vöruflutninga eða afurða að ræða þessa leið. Hitt sjá allir, að það er nauðsyn hverri sveit að komast í vegasamband við umheiminn á veturna, þegar hún getur með því skapað sér aðstöðu til afurðasölu, eins og Landsveit myndi geta, ef hún ætti þess kost að koma mjólk til markaðsstaða.
Þessar 10 þús. kr., sem við förum hér fram á til vegabóta, myndu koma því til leiðar, að hægt yrði að gera veginn færan allan veturinn, nema alveg sérstaklega illa stæði á. Vegamálastjóri hefir sagt mér, að til þess að gera veginn færan allan veturinn á þessu þriggja km. svæði, þurfi helminga hærri upphæð, en fyrir það fé væri þá líka hægt að gera veginn fullfæran alltaf. En þótt ekki fáist nú nema þessar 10 þús. kr., þá má ganga út frá því vísu, að fyrir þær má gera aðalbót á þessum stað, sem nægði í bráðina. Vona ég, að hv. þdm. sjái, hvílík nauðsyn þessari sveit ber til að fá þetta vegasamband til flutninga á afurðum sínum.