01.04.1932
Neðri deild: 40. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1003 í B-deild Alþingistíðinda. (540)

12. mál, vatnasvæði Þverár og Markarfljóts

Jón Ólafsson:

Ég þarf litlu við að bæta það, sem hv. samþm. minn sagði. Vil ég þó benda á það, að í 4. og 5. málsgr. 2. gr. er beinlínis fyrirskilra að jafna niður 1/8 af kostnaði við nauðsynlegar fyrirhleðslur á þessu vatnasvæði, en auk þess býst ég við, að margur geti fallizt á, að um leið og byggðir eru garðar fyrir sunnan og norðan Stóru Dímon, sé nauðsynlegt að hafa flóðgáttirnar til þess að ekki teppist umferð um vegi á þessu sviði, og að þær séu kostaðar af ríkissjóði. Er það óeðlilegt að ákveða að jafna þessu niður á hlutaðeigendur, sem vafalaust yrði slíkur kostnaður um megn. Sama er að segja um fyrirhleðslur fyrir Þverá, ef veita á henni í annan farveg, að ótækt er að jafna þeim kostnaði niður á fáar jarðir, sem njóta góðs af. En það er beinlínis tekið fram í liðnum, sem við viljum fella niður, að jafna skuli þessu niður, og myndi það ekki verða lítil kvöð á jarðir, sem búnar eru að þola miklar skemmdir af vatnagangi undanfarið. þessar jarðir, sem eru fáar og litlar að mati, eru ekki færar um að bera slíkan kostnað. Og ekki er gert ráð fyrir að bera undir eigendur þessara jarða, hvenær byrja skuli á verkinu eða spyrja þá, hvort þeir treysti sér til að bera slíkan kostnað. Sýnist mér því, að þessu athuguðu, alveg nóg, að atvmrh. hafi heimild til niðurjöfnunar allt að 1% kostnaðarins í samráði við og eftir till. sýslun. Er þá kominn nokkurskonar málsvari fyrir þessa menn.

Þá vil ég geta þess, að þeir eru heldur ekki tryggðir gegn því, að fyrirhleðsla kunni að bila, svo að ekkert gagn verði að henni og þeir standi uppi varnarlausir, því að það er skylda að jafna niður, hvort sem árangur verður eða ekki. Þessi brtt. er fram komin til að reyna að tryggja það, að jafnað verði niður að þessa bændur eins og þeir geta borið og verður ekki um megn. Vona ég, að hv. þdm. geti fallizt á þetta, og held ég, að þessi brtt. sé í samræmi við ýmsar þær breyt., sem n. hefir gert á frv.

Þarf ég svo ekki að fjölyrða um brtt. á þskj. 277, því að ég býst ekki við því, að ágreiningur geti orðið um hana. Þetta mál hefir fengið óvenjugóðar undirtektir í sýslunni frá því er fundur var kallaður saman 15. jan. og Sveinbjörn Högnason og Andrés Andrésson bóndi á Hemlu tóku að sér að gangast fyrir söfnuninni, með aðstoð hreppstjóra og oddvita héraðsins. Árangurinn hefir orðið svo glæslegur, að það myndu verða mikil vonbrigði fyrir þessa menn, ef ríkisábyrgð fengist ekki. Vona ég, að þetta mál gangi vel í gegnum Alþingi.