01.04.1932
Neðri deild: 40. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1006 í B-deild Alþingistíðinda. (545)
12. mál, vatnasvæði Þverár og Markarfljóts
Frsm. (Sveinbjörn Högnason):
Það má vel vera, að rétt sé hjá hv. þm. N.-Ísf., að ég hafi ekki sýnt honum brtt. á þskj. 277 áður en hún fór í prentun, þótt ég geti ekki betur munað en ég hafi gert það. En hafi svo verið, sem ég efa, þá hefir það áreiðanlega stafað af því, að hann hefir ekki verið viðstaddur, en till. bar ég undir þá nm., er ég náði í, og þeir, sem sáu hana, voru samþykkir henni. Það var meining mín með brtt., að í henni fælist almenn heimild, líkt og er í brúalögunum. En ef það má ekki standa í þessum l., þá væri máske rétt, að þessar brýr væru teknar inn í brúalögin, og kæmi það í sama stað niður. Ef illa gengur fyrir ríkinu að afla fjár til þessara mannvirkja, en Rangæingar eða aðrir, sem hlut eiga að máli og áhuga hafa, hinsvegar hefðu magn til þess að afla fjár áfram, því má þá ekki ríkið taka lán hjá heim, svo sem nú er áformað að gera? Í brtt. er ekki farið fram á neitt annað né meira en nú er gildandi í hinum almennu brúalögum. En ég skal þó ekki gera þetta að neinu kappsmáli. Ég vil þá heldur fá hinar brýrnar inn í brúal. þau, sem nú liggja fyrir þinginu; er þá hinum sama tilgangi náð.
Það er ekki rétt hjá hv. þm. N.-Ísf., að það sé meining okkar þm. Rang. með brtt. á þskj. 283 að koma öllum kostnaðinum á ríkissjóðinn. Þar er atvmrh. einmitt veitt heimild til að láta jafna niður allt að 1/8 hluta kostnaðarins, að fengnum till. sýslun. Rang. Það er allt annað að gera eitthvað að fengnum till., ellegar að samþykki þurfi til. Hæstv. forsrh. áleit, að við gætum með brtt. okkar stofnað frv. í hættu. Hann áleit, að þm., sem víst allir bera góðan hug til þessa þarfa máls og vilja styðja það, gæti snúizt hugur, ef við þm. Rang. héldum fast fram till. okkar. Ég get nú varla álitið, að hér sé öðru né meira en till. sjálfri stofnað í hættu, því að vitanlega geta hv. þm. fellt hana, ef þeim sýnist svo, en sýnt eftir sem áður góðan hug til frv. Og ég vil vona, að svo fari, enda þótt þeir sjái sér ekki fært að samþ. brtt. okkar. Í þessu frv. er í raun og veru ekki um annað að ræða en lausn samgöngumálsins. Þær fyrirhleðslur, sem frv. ráðgerir, eru ekki aðrar en þær, sem nauðsynlegar eru vegna samgangnanna. Fljótshlíðarmegin eru þær liðir í því að veita vatninu austur eftir, til að ná þeim undir framtíðarbrúna á Markarfljóti, sem á að verða sú eina varanlega brú á vötnunum, og Eyjafjallamegin eru þær nauðsynlegar til varna vegna þess aukna vatnsmagns, sem af þeim aðgerðum leiðir. Eyjafjallamegin þarf áreiðanlega að auka varnirnar við það, að vatninu verður þannig veitt austur á. Það er nauðsynlegt vegna aukins vatnsmagns af fyrirhleðslum. Þarf þá og að styrkja og endurbæta Seljalandsgarðinn. Allar þessar fyrirhleðslur og önnur mannvirki, sem um er getið, eru því ábyggilega liðir í sjálfum samgöngubótunum, sem áformaðar eru.
Ég hefi veitt því eftirtekt, að í umr. um vatnamálin á þinginu 1917 var það skoðun þó nokkurra þm., að greiða bæri úr ríkissjóði eingöngu kostnað við þau mannvirki, þótt um engar samgöngubætur væri að ræða, en eingöngu landvarnir. Ég skal, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp ummæli eftir Bjarna heitinn Jónsson frá Vogi, þessu til sönnunar. Hann segir svo (Alþt. 1917, B. 796):
„Þetta er björgunarfyrirtæki, vörn fyrir voða, er sækir á eitt hérað í hjarta landsins“. Og ennfremur segir hann: „Það er sama hver voðinn er, hvort heldur Markarfljót, brim, eldgos eða sandfok. Hver myndi heimta verðhækkunarskatt af löndum, sem varin eru gegn sandfoki? Það er skylda alþjóðar að verja einstaka landshluta og einstaklinga þeim hættum, er ógna og þeir fá ekki rönd reist við“.
Þetta segir nú einn þm., sem ekki er þm. Rang., heldur Dal. Og í það sinn var eingöngu talað um þetta sem landvarnir, en ekki sem samgöngubætur fyrir bæði Rangárvallasýslu og Skaftafellssýslu, eins og nú er gert. Það er því eðlilegt og í samræmi við aðra löggjöf um samgöngubætur, að ríkissjóður kosti þessa. Fram á rétta hefi ég viljað sýna. Og ég vænti þess, að hv. þdm. sjái enga ósanngirni í þessari kröfu.