05.04.1932
Neðri deild: 43. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1027 í B-deild Alþingistíðinda. (579)

13. mál, vegur frá Lækjarbotnum austur í Ölfus

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég tel hepplegt, að járnbrautarmálinu sé sem minnst blandað inn í þessar umr. Það liggur ekki fyrir hér. Að blanda járnbrautarmálinu í þetta á ekki við. Og það undrar mig, ef hv. 2. þm. Skagf. er tilbúinn að leggja allar þær mörgu millj. fram, sem járnbraut kostar. En tilboð um járnbraut, slíkt sem hann lýsti áðan, hefir mér vitanlega aldrei legið fyrir.