19.02.1932
Neðri deild: 5. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1045 í B-deild Alþingistíðinda. (615)
18. mál, próf leikfimi- og íþróttakennara
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Frv. þetta er fram komið sökum þess, að flestir þeir menn, er leikfimi kenna hér á landi, hafa lært sína mennt í erlendum skólum og eftir mismunandi aðferðum. Hingað til hefir ríkið viðurkennt þessa menn, eftir að þeir hafa lokið námi sínu, með því að láta þá fá kennslustörf eftirlitslaust, en þetta er ekki gott, því að oft getur verið töluverður misbrestur á því, að slíkir menn hafi nægilega þekkingu í uppeldisfræði, heilsufræði og æfingar við að kenna. Til þess að ráða bot á þessu er frv. þetta fram komið, og fer það fram að að hér eftir verði þeir íþróttakennarar, sem ætla að starfa í þjónustu landsins, að inna af hendi prófraun í landinu sjálfu, er sýni, að þeir séu færir um að hafa þessa kennslu á hendi. Undir prófið er ekki ætlazt til, að aðrir gangi en þeir, sem hér eftir vilja fá slíka kennslu. Þeir, sem þegar hafa fengið hana, eru undanþegnir. Ég vona, að hv. þm. sjái, að þetta er réttmæt ráðstöfun. Að umr. lokinni óska ég frv. vísað til 2. umr. og menntmn.