04.03.1932
Efri deild: 20. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1053 í B-deild Alþingistíðinda. (637)

9. mál, brúargerðir

Magnús Torfason:

Ég hefi leyft mér að bera fram till. við 2. gr. A.I.d. um, að það verði bætt einni brú við í frv. Ég skal geta þess, að það er komin fram brtt. við frv. til breyt. á vegal. í Nd., þar sem farið er fram á, að vegur frá Flóabrautinni á svokallaða Reykjabraut, sem hefir verið lögð að nokkru leyti upp um Hvítá hjá Klébergi og að Minni-Borg, verði tekin í þjóðvegatölu. Samkv. þessu hefi ég gert brtt. við þennan lið frv.

Það er allgamalt mál hér um að ræða. þegar Sogsbrúin var til meðferðar hér á þingi fyrir fullum 30 árum, voru allskiptar skoðanir um það, bæði í Grímsnesi og í Biskupstungum, hvort fyrst ætti að halla sér að því að fá brú á Sogið eða á Hvítá. Brúin á Sogið tengir hin stóru og góðu héruð „Grímsnesið góða“ og Biskupstungur við Reykjavík. En þessi brú tengir þessar góðu sveitir við niðursýsluna; hún tengir þær við Flóann, ég er nokkurskonar hafnarvegur til Eyrarbakka og Stokkseyrar fyrir þessar sveitir. —

Það mun hafa verið mælt fyrir þessari brú eftir 1916, á stríðsárunum, og við lauslega áætlun gert ráð fyrir, að brú þarna myndi kosta nálægt 40 þús. kr. En það hefir ekki orðið úr því, að þessu væri framfylgt, af ýmsum ástæðum, sem ekki er hér þörf að greina, m. a. þeirri ástæðu, að verzlunin úr þessum sveitum hefir á þessum árum fallið meira til Rvíkur en til sjávarþorpanna í Árnessýslu. Ég get þó getið þess, að þær tíðu breytingar, sem orðið hafa á öllu verðlagi, hafa orðið þess valdandi, að verzlun við Rvík jókst. Það er ekki kleift að fá vörur eystra nema að sumarlagi. En það, sem sérstaklega hefir ýtt undir þetta, er annarsvegar það, að verzlunarfélagsskapur sá, sem menn hafa haft með höndum í Grímsnesi og Biskupstungum, er nú lagður niður, en hinsvegar það, að nú er stofnað til mikils verzlunarrekstrar á Selfossi, sem hefir sína aðalhöfn á Eyrarbakka. Ennfremur það, að eftir að Flóaáveitan komst á sjá menn, að nauðsynin á þessu hefir vaxið stórkostlega. Í þessum sveitum eru yfirleitt rytjuslægjur, mýrar og flóar innan um bithaga, sem vilja verða misbrestasamar í lökum grasárum og þurrkasumrum, og fengu menn af því illar búsifjar síðastl. sumar. Milli Grímsness og Flóa er ferjuvatn, en þegar kemur niður í Flóa, er ágæt mýri með kafagrasi. Til þeirra þurfa þessar uppsveitir að ná og bæta þar með beitarlönd sin og auka skilyrði sín til ræktunar.

Í út-Grímsnesinu eru ræktunarskjlvrði hinsvegar lakari, en fjárræktarskilyrðin að sama skapi geysimikil, en þaðan er þriggja tíma leið að mjólkurbíl Flóamanna og yfir hraun og örðugan veg að sækja. Af þessum ástæðum og af því, að hér er um óvenjulega miklar og allsendis óhjákvæmilegar samgöngubætur að ræða, þá hefi ég leyft mér að flytja þessa brtt. Af sérstökum ástæðum hefi ég ekki getað fengið umsögn vegamálastjóra um þetta, en vil leyfa mér að vænta þess, að hv. n. taki brtt. mína til góðfúslegrar yfirvegunar, og þess vegna og í því trausti mun og taka hana aftur til 3. umr., samkv. bendingu frá einum hv. nefndarmanni.