19.04.1932
Neðri deild: 55. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1066 í B-deild Alþingistíðinda. (661)

9. mál, brúargerðir

Sveinbjörn Högnason:

Hv. frsm. segir að ekki hafi verið farið á bak við mig um afgreiðslu málsins. Það getur hann sízt allra manna sagt, eða a. m. k. að ætlazt hafi verið til þess. Mér var ekki einu sinni sýnt nál. áður en það fór í prentsmiðjuna, og hefi ég þó vanizt, að svo væri gert, ef einhver nm. er fjarverandi á fundi, er slík ákvörðun er tekin. Þetta út af fyrir sig sýnir, að mótmæli hv. þm. koma í bága við raunveruleikann. Þá sagði hann, að mig hefði oftar vantað á fund en í þetta skipti. Við skulum þar láta fundarbækurnar tala sínu máli.

Hv. frsm. kvað nafnið á einni ánni hafa misritazt. En var það ekki skylda n. að sjá um, að ekki væri misritun í frv., sem hún var að afgreiða?

Ég sagði aldrei, að engin brú væri áætluð í mínu kjördæmi, heldur að þeim væri hrúgað á sama vatnsfallið annarsstaðar, en engin brú í III kafla væri í Rangárvallasýslu.

Ég vil spyrja hv. frsm., hvort honum finnist þetta í raun og veru sæmileg áætlun fyrir hin næstu ár. Ég veit, að alstaðar er þörf fyrir brýrnar, en þegar slík áætlun er gerð, á þingið að líta víðar en í einn eða tvo staði. Hv. frsm. sagðist ekki vilja fella kaflann niður, en þó væru þær brýr, sem þar væru, engu betur komnar en hinar. Þegar þetta bætist nú við það ranglæti, sem í kaflanum felst, hika ég ekki við að leggja til, að hann verði felldur niður.