28.04.1932
Efri deild: 62. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1076 í B-deild Alþingistíðinda. (677)
9. mál, brúargerðir
Frsm. (Páll Hermannsson):
Ég skil það vel, að þessir hv. þm., sem hér hafa talað, vilji halda fram brtt. sínum sem áður. Það er ekki nema fullkomlega eðlilegt frá þeirra sjónarmiði. En ég vildi leiðrétta misskilning, sem kom fram í ræðu hv. þm. Snæf. Ég sagði, að þessi d. væri búin á 3 þingum að samþ. Þessa breyt. Ég held því, að þetta sé misgáningur hjá hv. þm. Mig minnir það, að þegar brúarlögin lágu fyrir vetrarþinginu í fyrra, þá færi frv. gegnum þessa d. án þess að nokkur breyt. væri samþ. við það og án þess að nokkur brtt. væri borin fram. Ég vildi aðeins benda á, að d. hlýtur á þeim tíma að hafa hallazt að því að láta frv. fara gegnum þingið án þess að þessi till. stæði þar. Hv. þm. sagðist ekki sjá, að frv. væri neinn voði búinn, þó það færi aftur til Nd. og till. samþ. þar, ef ekki yrði um fleiri samþ. till. að ræða. En ég er hræddur um, að hættan í Nd. stafi af því, að ef þessi till. verður samþ., þá hlyti Nd. líka að samþ. fjölda margar aðrar till. (MT: Í minni till. felst engin viðbót). Nei, en það er vafasamt, hvort till. er ekki jafnhættuleg fyrir það. Frv. er nú gengið gegnum Nd. og kjördæmi hv. 2. þm. Árn., og það er líka fulltrúi í Nd., sem er áhrifamaður þar, og lítur út fyrir, að hann vilji hafa frv. eins og það er, en hv. 2. þm. Árn. vill breyta því. Annars vil ég ekkert þrátta um þetta. Þetta liggur opið fyrir hv. dm. og þeir munu átta sig á því, hvort þeir vilja samþ. það eða ekki. En ég endurtek það, að þeir, sem vilja frv. í heild vel, eiga nokkuð á hættu. ef þeir samþ. þessa brtt. nú.