16.03.1932
Efri deild: 30. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1127 í B-deild Alþingistíðinda. (746)
11. mál, skiptameðferð á búi Síldareinkasölu Íslands
Jón Þorláksson:
Mér þykir rétt að láta það koma fram, út af tilorðningu bráðabirgðalaganna um Síldareinkasöluna, að áður en þau voru samin, sneri hæstv. atvmrh. sér til miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins og lagði fyrir hana tvær spurningar, í fyrsta lagi um það, hvort flokkurinn vildi, að lögin um Síldareinkasöluna yrðu felld úr gildi með bráðabirgðalögum og var því svarað játandi, og í öðru lagi, hvort flokkurinn væri því samþykkur, að bú Síldareinkasölunnar yrði tekið til skiptameðferðar, og með því að flokkurinn taldi sig ekki hafa nægilegar upplýsingar í því efni, var því látið ósvarað.