22.03.1932
Neðri deild: 35. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1150 í B-deild Alþingistíðinda. (770)

11. mál, skiptameðferð á búi Síldareinkasölu Íslands

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil geta þess, út af fyrirspurn hv. þm. Seyðf., að fyrir þinginu núna liggur, auk þessa skiptafrv., frv. til l. um breyt. á lögum síldarbræðslunnar, sem borið er fram í samráði við ríkisstj. Ennfremur er þegar fullsamið og verður lagt fyrir Alþingi núna einhvern næstu daga frv. um síldarmat. En stj. hefir ekki gert ráð fyrir að leggja fram frv. um skipulag síldarsölunnar. Hvaða undirtektir slíkar till. mundu fá hjá mínum flokki, vil ég ekkert fullyrða um fyrirfram.