23.03.1932
Neðri deild: 36. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1179 í B-deild Alþingistíðinda. (779)

11. mál, skiptameðferð á búi Síldareinkasölu Íslands

Jóhann Jósefsson:

Hæstv. forsrh. talaði um, að töp bankanna undanfarin ár væru að nokkru leyti afleiðing af því, hversu illa hefir gengið hjá ýmsum atvinnurekstri. Vildi hann sýna, að töp einstakra fyrirtækja lentu líka á þjóðinni, eins og tap Síldareinkasölunnar á ríkissjóði. Vil ég ekki andmæla því, að töp bankanna verða að miklu leyti töp þjóðarinnar, en það kemur þó öðruvísi út en töp Síldareinkasölunnar. Get ég bent á það, að töp banka hafa stafað af óvarlegum fiskkaupum. Hefir það komið fyrir, að fiskkaupmenn hafa sett of mikið í áhættu, svo að þeir hafa ekki getað staðið við skuldbindingar sínar. En oftast nær hafa viðskiptavinir þessara stórspekúlanta ekki orðið fyrir tapi. Svo var áður um þá, sem seldu Copland fisk, að þeir fengu sitt, þótt bankarnir töpuðu á honum. Þessi töp lenda ekki eins hrapallega á sjómönnum og verkamönnum og töp Síldareinkasölunnar gerðu síðastl. ár. — Er þessi kenning hæstv. forsrh. algeng hjá Tímamönnum og sócíalistum, þegar ráðast skal á einstaklingsframtakið.

Þegar maður á sjálfur að þola súrt og sætt fyrir afkomu atvinnurekstrar síns, þá verður það honum hvöt til þess að neyta allra krafta. En manneðlið er breyskt, og við opinberar stofnanir er ábyrgðartilfinningin aldrei eins mikil, eins og bezt hefir sezt á Síldareinkasölunni, því að þeir menn, sem fyrir þeim standa, vita, að töp þessara stofnana lenda ekki beint á þeim, eins og þar sem um einkafyrirtæki er að ræða. þetta gildir jafnvel, þótt góðæri sé og þótt góðir menn séu við fyrirtækin, en því fremur á vondum árum og þegar val forstjóranna fer eftir pólitískum áhrifum, en ekki hæfileikum. En það er venjulegast, að menn, sem standa fyrir einkasölufyrirtækjum, eru skipaðir af pólitískum flokkum og litið gætt að hæfileikum til starfsins.

Viðvíkjandi Spánarsendimanninum þarf ég að vísu ekki að árétta orð hv. þm. G.-K. en vil þó enn benda á, að maður sá, sem stj. sendir til Spánar á þessum hættulegu tímum, hefir engin skilyrði til starfs síns umfram fólk flest. Er það misráðið að gera slíkt á svo erfiðum tímum sem nú standa yfir, sérstaklega þegar þess er gætt, að embættið er launað með 30000 kr. Er það ólíklegt, að stj. hafi ekki getað fengið hæfari mann til þess að setjast í sæti Helga Guðmundssonar, sem því miður varð að hverfa frá Spáni. Hafði hann mikla þekkingu á starfinu, bæði frá störfum sínum á Ísafirði og Reykjavík við fiskkaup og þessháttar, og svo þá, sem hann var búinn að afla sér þar suður frá.

Hv. 3. þm. Reykv. talaði hér langt og hart mál. Fannst honum ekki sitja á mér að vera að minnast á stj. Síldareinkasölunnar, af því að Vestmannaeyjar hafi tapað á útveginum síðastl. ár og af því að afkoma bænda sé slæm. Rétt er það, að Vestmannaeyjar hafa átt erfitt með útflutning á afurðum sínum og að bændum hefir gengið illa að koma út sínum vörum. En þetta er engin röksemd í málinu. Okkar gagnrýni gekk í þá átt að sýna, hve óheppileg áhrif flokkur hv. þm. hefði haft á Síldareinkasöluna. Hann réðst á kommúnista af miklu afli fyrir það, að þeir hafi ráðið þar lögum og lofum og kvað það þeim að kenna, að allt hafi farið norður og niður. Þótti mér vera annað hljóð í hv. þm. á síðasta þingi, þegar ég talaði um mistök þau, sem orðið hefðu á Síldareinkasölunni, og víti Einar Olgeirsson fyrir það, að hann hefði staðið mest fyrir heim mistökum. Þá vildi hv. þm. verja Einar, og getur það stafað af því, að hann stóð þá á áheyrendapöllum og hlustaði á, en nú mun hann vera allfjarri.

Hv. þm. gaf þær upplýsingar, að hæstv. dómsmrh. hafi ráðið lögum og lofum um stj. Síldareinkasölunnar og hafi það verið sameiginleg ráð hans og kommúnista, sem komu henni í koll. Hefir þessu ekki verið haldið fram áður opinberlega, svo að ég viti til, en það skýrir þó þau fyrirbæri, sem áttu sér hér stað á þingi 1928 og 29 og raunar síðar, sem sé, að flokkur dómsmrh. virtist ganga blindandi inn á allar kröfur um skipun stj. Síldareinkasölunnar, sem auðséð var að voru runnar undan rifjum kommúnista. Fór það saman, að Einar skrifaði grein í „Rétt“, þar sem hann talar um ágalla Síldareinkasölunnar og að breyt. var gerð á lögum hennar í það horf, sem nauðsynlegt var talið frá sjónarmiði kommúnista. Var ég hissa á því þá, að hyggnir þingbændur skyldu samþ. slíkt, en leggja alúð við það að koma fyrir kattarnef öllum till. okkar sjálfstæðismanna. En það vitnast nú við yfirlýsingu hv. 3. þm. Reykv., að hæstv. dómsmrh. hafi farið til Akureyrar og samið við kommúnistaforingjana um fyrirkomulag og völdin yfir Síldareinkasölunni og að þræðir hafi ávallt legið milli þessara manna, dómsmrh. og Einars Olgeirssonar. Tel ég það mikils vert fyrir hv. d., ekki síður fylgjendur hæstv. dómsmrh. en aðra, að þetta er nú upplýst í málinu frá einum af aðalmönnum sócíalista, þegar málið er komið á það stig, að séð er, að einkasölunni hafa verið búin banaráð og síldarútveginum á kné komið af þessum samherjum, dómsmrh. og kommúnistaforingjanum Einari Olgeirssyni. Mega framsóknarbændur nú sjá, hvers erindi þeir hafa hér rekið.

Ég skal ekkert blanda mér inn í þær deilur, sem orðið hafa milli hæstv. forsrh. og hv. 3. þm. Reykv. Hér skildist á orðum hæstv. forsrh., að hv. 3. þm. Reykv. ætti, ásamt flokki sínum, sinn drjúga skerf í hví, hvernig þessum málum er farið. En ég skal ekki gera upp á milli þeirra í þessu máli. Mér skildist svo á ræðu hv. 3. hm. Reykv. og jafnvel fleiri, sem um þetta hafa talað, að hann teldi, að við, sem höfum barizt gegn stj. og fyrirkomulagi Síldareinkasölu Íslands, vegna þess að við höfum ekki talið rétt að halda heim atvinnuvegi í slíkum viðjum, með óhæfri stj., mér skildist, að við, sem höfum andmælt öllu þess, gerðum það af því að við værum móti allri „skipulagningu“, eins og það er orðað. Ég fyrir mitt leyti get lýst yfir því, að ég er á móti slíkri skipulagning, sem gengur út á það eitt, að sem allra minnst ábyrgð hvíli á forstöðumönnum fyrirtækja, en sem mest á ríkissjóði, og að í stj. slíkra fyrirtækja séu valdir óhæfir menn. En það er eins og það sé slíkt fyrirkomulag, sem hv. 3. þm. Reykv. og flokksbræður hans telja hið eina, er talizt geti skipulag í þessum málum. Óhæft fyrirkomulag, eins og var á Síldareinkasölunni, er hv. eina, sem þeir skilja við það orð. Ég fyrir mitt leyti legg nú víðtækari merkingu í þetta orð. Og ég get vel hugsað mér skipulag og í sambandi við það löggjöf um síldaröflun og síldarútflutning, aðeins ekki einkasölu. En vegna þess að atvinnuvegur þessi er nú kominn í kaldakol og Síldareinkasalan er búin að lama alla þá, sem þessa atvinnu hafa stundað, þá er meira en trúlegt, að þessi atvinnuvegur gefi lítið í aðra hönd næsta sumar, þegar líka kreppan leggst á sömu sveif. En þótt svo verði, þá er sannarlega ekki úr háum söðli að detta, því síðastl. sumar gaf einungis mikil töp og ekkert annað. Það er því mikið verkefni, að vinna þennan atvinnuveg upp og gera hann arðbæran, og kemur þá til álíta, hvernig beri að skipuleggja hann. Ég get í þessu sambandi bent á, að síldarútgerðin hér hefir aldrei verið rekin með því fyrirkomulagi, sem þekkist í stóru löndunum. Í Skotlandi er t. d. fyrirkomulagið það, að síldin er daglega, jafnótt og veiðist, seld á opnum markaði. Er þá hverjum frjálst að kaupa hana og flytja út undir eftirliti af hálfu löggjafarvaldsins. Eitthvað líkt þessu ætti fyrirkomulagið að vera hér í framtíðinni, svo að þeim, sett geta náð í sambönd erlendis, sé ekki hægt frá því að geta notfært sér þau. En löggjafar er þörf vegna eftirlits með atvinnuveginum og til að tryggja það, að ríkið fái sínar tekjur af síldinni, sambærilegar við tekjur af öðrum útflutningsvörum. Ég hefi að vísu haldið langa ræðu um þetta mál, en þó væri enn hægt að halda margra klt. ræðu um þá ágalla Síldareinkasölunnar, sem enn hefir eigi verið drepið á. Ég vil þó að sinni eigi telja þá upp. Það hefir verið gert að nokkru í blöðunum og þegar til alls þess er litið, þá er sannast sagt, að stj., átti ekki annars úrkost en að leggja Síldareinkasöluna niður. Þar var sannarlega búið að sigla öllu í strand fjárhagslega.

Því hefir verið lýst svo af kunnugum manni um allt það, sem við kemur Síldareinkasölunni, að þar hafi vantað 1 millj. til þess að hún ætti fyrir skuldum, enda þótt framleiðendur hafi borið sama sem ekkert úr býtum síðastl. sumar. Þá hafi vöruvöndun verið mjög áfátt, tunnurnar ónýtar, saltið skemmt og matsmennirnir þekkingarlausir. Auk þess vantaði bæði salt og tunnur á sjálfum veiðitímanum, en hvorutveggja var dyngt að, þegar veiðitíminn var úti, og það í stórum stíl. Kostnaður við fyrirtækið óhóflegur, en greiðslur mjög hlutdrægar. Sumir fengu stórar fúlgur, en aðrir ekkert. þetta allt sýnir, hvernig ástandið var. Ég verð því að segja, að stj. gerði hið eina, sem hægt var að gera. Fyrirtækið var orðið meira en félaust og óstjórnin því svo mikil, að hún gat ekki annað gert en hún gerði.