19.04.1932
Neðri deild: 55. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1223 í B-deild Alþingistíðinda. (812)
11. mál, skiptameðferð á búi Síldareinkasölu Íslands
Fors- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Ég hefi síðan 2. umr. fór fram ekki getað náð tali af nema öðrum skilanefndarmanni síldareinkasölunnar. En út frá því viðtali held ég að mér sé óhætt að fullyrða, að skilanefndinni sé mjög óIjúft að hefja rekistefnu til þess að ganga eftir þessum tveimur krónum, sem útgerðarmenn fengu útborgaðar á hverja tunnu. Það er rétt, sem hv. þm. Vestm. gat um, að komið hefir fram krafa um það frá útlendum kröfueigendum á hendur Síldareinkasölunni, að innheimta aftur það, sem búið var að greiða upp í síldina, en skilanefndin telur það alveg óframkvæmanlegt. Ég fyrir mitt leyti lét þá skoðun í ljós, að það væri alveg ómögulegt að fara inn á þá braut að reyna að krefja þetta inn, því sennilega hefði það ekkert upp á sig, og svo væri útkoman yfirleitt þannig, að ekki væri fært að bæta því ofan á allt hitt að fara að stofna til þess málarekstrar og gauragangs, sem af slíkri innheimtu mundi leiða. Ég mun halda fast við það, að þetta spor á ekki að stíga, og það er óhætt að segja, að skilanefndin er á sömu skoðun.
Hv. þm. Vestm. var að spyrjast fyrir um það, hvort stj. ætlaði að gera eitthvað í því að hefja sérstaka rannsókn út af stj. Síldareinkasölunnar. Um það hefi ég ekkert annað að segja en það, sem ég sagði við 2. umr. þessa máls út af ummælum hv. þm. Borgf. þá. Ég tel mér skylt að fara eftir þeim till., sem skilanefndin gerir á sínum tíma. Fyrirtækið og þau mál, sem það snerta, eru nú í hennar höndum og ég geri ráð fyrir, að þetta atr. komi til athugunar, þegar nefndin skilar af sér sínum störfum.
Um þriðja atr., sem hv. þm. Vestm. talaði um, á hvaða hátt skilanefndin reynir að koma síldarbirgðum einkasölunnar í eitthvert verð, hvort hún kemur henni á einhvern hátt á þýzkan markað, um það get ég ekki gefið neinar upplýsingar. Ég hefi ekki fylgzt með því í einstökum atr., með hvaða hætti skilanefndarmennirnir reyna að koma þessum vöruleifum í peninga; þeir hafa betri þekkingu á þeim efnum heldur en ég. Og hv. þm. Vestm., sem á sæti í sjútvn., hefði eflaust getað fengið upplýsingar um þetta atr. hjá heim skilanefndarmanninum, sem tal átti við sjútvn. um þetta mal. Hinsvegar get ég eftir ósk hv. þm. spurzt fyrir um það, hvort síldarleifarnar eru seldar á þann hátt, að það gæti að einhverju leyti spillt sölumöguleikum í framtíðinni. En hv. þm. Vestm. mun vera það ljóst, að það er skylda skilanefndarinnar að hafa eins mikið og hægt er upp úr þessum vöruleifum. Og ég fyrir mitt leyti óttast það ekki að óreyndu, að hún geri neitt, sem spillir fyrir okkur í framtíðinni.