19.04.1932
Neðri deild: 55. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1224 í B-deild Alþingistíðinda. (813)

11. mál, skiptameðferð á búi Síldareinkasölu Íslands

Pétur Ottesen:

Það er ljóst af því, sem fram er komið í þessu máli, að meining skilanefndarinnar með því að skila frá sér reikningunum þannig, að þeir sýna aðeins úttekt, en ekkert innlegg, hefir verið sú, að halda opinni leið til þess að krefja inn það, sem einkasalan var búin að greiða út á síldina. Hitt hefir nú einnig komið fram, að skilanefndin mun nú sjá einhverja orðugleika á þessu, og jafnframt var það að heyra á hæstv. forsrh., að hann væri n. sammála hvað það snerti. En auk þess sem það væru fyrirsjáanlega miklir örðugleikar á slíkri innheimtu, og að það mundi ekki vera nema í örfáum tilfellum möguleikar á að fá þetta endurgreitt, þá verð ég að segja það, að svo hraklega væri gengið að verki, ef fara ætti að endurkrefja þessa litlu útborgun, þann litla árangur, sem menn fengu af öllum kostnaðinum og allri fyrirhöfninni við síldveiðarnar á síðastl. sumri, að slíkt getur alls ekki komið til mála. Hvað sem skilanefndin álítur og hvað sem hæstv. stj. kann að álíta í þessu efni, þá er þetta svo mikilvægt atr., að Alþingi verður að gera sér grein fyrir því og búa svo um hnútana, að girt sé fyrir, að farið verði inn á þessa braut. Ef ekki fæst nægileg trygging fyrir því hjá skilanefndinni og ríkisstj., að ekki verði reynt að endurkrefja útborgunina, þá verður Alþingi að taka til sinna ráða og gera ráðstafanir til þess að fyrirbyggja algerlega að að því ráði sé horfið. Og það er fyrst og fremst sjútvn., sem ganga á úr skugga um allar fyrirætlanir í þessu efni og gera till. um það til þingsins, að eigi verði farið að heimta af mönnum aftur, og þá e. t. v. með fjárnámi í eignum manna, þessa litlu upphæð, sem greidd hefir verið út á síldina.

Hvað hitt atr. snertir, hvort hefja á rannsókn út af stj. Síldareinkasölunnar, þá verð ég að líta svo á, að þó sett væru sérstök lög um uppgerð einkasölunnar, þá hljóti gjaldþrot hennar að heyra undir þau almennu ákvæði laga um gjaldþrotaskipti, að rannsókn skuli fram fara. Mér finnst það ekkert koma málinu við, hvað skilanefndin út af fyrir sig leggur til, að gert sé í þessu efni, heldur sé það beinlínis lagaskylda, að rannsókn fari fram. Þau lög, sem hér eru til umr., voru sett vegna þess, að gjaldþrot Síldareinkasölunnar er að sumu leyti nokkuð sérstaks eðlis að því leyti að það er alveg óvenjulega umfangsmikið, en lögin um gjaldþrotaskipti hljóta að taka til þessa gjaldþrots sem annara að því er fyrirskipaða lögreglurannsókn snertir.

Þriðja atr., sem hér hefir verið talað um, hvort skilanefndin hefir horfið að því ráði að taka harðsaltaða síld og afvatna hana og senda hana svo sem linsaltaða síld á þýzkan markað, virðist full ástæða til að taka til rækilegrar athugunar. Því það er nú svo, að þó oft hafi gengið illa síldarútvegurinn hér — að flestra dómi þó verst í tíð Síldareinkasölunnar — þá mun verða reynt að halda þeim atvinnurekstri áfram, og má því ekki gera neitt, sem teflt getur úr höndum okkar möguleikum til þess að afla vörunni markaðs erlendis. En nú stendur svo á, að því er ég ætla, að ekki er til neitt síldarmat í landinu. Það er því enginn til að dæma um það, hvort sú síld, sem nú er flutt á erlendan markað, er söluhæf eða ekki, hvort hún fullnægir þeim skilyrðum, sem Síldareinkasalan setti meðan hún sá um síldarmatið, og áður voru ákveðin með lögum. Það verður að taka fullt tillit til þess sérstaka ástands, sem hér er í þessu efni og gjalda varhuga við því, að gerðir séu þeir hlutir, sem geta valdið miklum erfiðleikum við síldarsölu í framtíðinni eða spillt sé þeim möguleikum, sem enn kunna að vera eftir til þess að selja íslenzka síld erlendis. Ég veit, að hv. sjútvn. er með frv. á prjónunum um síldarmat, sem sennilega verður að lögum. En það síldarmat, sem Síldareinkasölunni var falið að framkvæma, mun hafa fallið í gröfina með henni, og þess vegna er ekki um neitt löglegt síldarmat að ræða eins og sakir standa nú. (Forsrh.: Jú, það hafa verið gerðar bráðabirgðaráðstafanir).