19.04.1932
Neðri deild: 55. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1227 í B-deild Alþingistíðinda. (815)

11. mál, skiptameðferð á búi Síldareinkasölu Íslands

Einar Arnórsson:

Ég geri ráð fyrir, að það orki ekki tvímælis, að hér sé um raunverulegt gjaldþrot að ræða. Í inngangsorðum bráðabirgðalaganna er talað um, að ef ekki væru gerðar neinar sérstakar ráðstafanir, mundi ekki annað verða uppi en þetta fyrirtæki yrði tekið til gjaldþrotaskipta samkv. gjaldþrotalögunum. Hygg ég því, að ekki geti verið neinn vafi um viðhorf málsins að þessu leyti. Afbrigðin frá hinu vanalega eru því þau, að í stað þess að einhver af lánardrottnunum heimti gjaldþrotaskipti, gefur fyrirtækið sig sjálft upp til skiptameðferðar. Því í raun og veru er það sjálfsuppgjöf, þegar stj. ákveður, að ríkisstofnun skuli tekin til skiptameðferðar, slíkrar sem hér greinir. En ef það orkar ekki tvímælis, að þetta sé venjulegt gjaldþrotabú með nokkrum afbrigðum um skiptameðferðina sjálfa þá orkar ekki heldur tvímælis, að ákvæði 1. nr. 25 frá 1929 um rannsókn gjaldþrota eiga að koma hér til framkvæmda. Þar segir, að hver maður, sem úrskurðaður er gjaldþrota, skuli tafarlaust leiddur fyrir lögreglurétt, og á hann þar að gefa skýringar um tildrögin til þess, að svo er komið. Og í síðari málsgr. 7. gr. 1. nr. 25 frá 1929 segir svo: „Sé um félag eða firma að ræða, er gjaldþrota hefir orðið, skal framkvæmdarstjóri þess, forráðamenn eða stjórnendur, svo og endurskoðendur reikninga þess, mæta fyrir lögreglurétti og gera grein fyrir ástæðunum til gjaldþrotanna“. Í 8. gr. segir. „Dómara ber að rannsaka fyrir lögregluréttinum, að hætti almennra lögreglumála, hvort þrotamaður hafi með framferði sínu gert sig sekan um brot á lögum þessum eða öðrum lagaákvæðum, sem sett eru til verndar almennu lánstrausti“. Svo er haldið áfram að setja ákvæði um það, hvað skuli gera eftir því hver árangur eða úrslit rannsóknarinnar hefir orðið.

Í sjálfum bráðabirgðalögunum, sem gefin voru út 9. des. síðastl., er ekkert, sem bendir á, að öðruvísi eigi að fara um stjórnendur Síldareinkasölunnar en aðra, sem í gjaldþroti lenda. Þar er þvert á móti tekið fram, að „öðrum ákvæðum skiptalaganna og laganna um gjaldþrotaskipti, þeim er eigi lúta að sjálfri skiptaaðferðnni, skuli beitt eftir því sem unnt er“. Þessi ákvæði um rannsókn á hendur forstjórunum lúta áreiðanlega ekki að sjálfri skiptameðferðinni. Ég hefi því getað búzt við, að rannsókn þessi stæði nú yfir eða væri jafnvel búin. Það er lítið jafnrétti að setja venjulega smágjaldþrota menn fyrir lögreglurétt jafnskjótt og bú þeirra er tekið til skipta, ef þessir menn eiga alveg að sleppa. Margir munu líta svo á, að þar sé gamla reglan á ferðinni, að láta smámennin fá sín makleg málagjöld, en þá stærri sleppa. Það er yfirleitt kynlegt að þurfa að ræða um það, hvort forráðamenn þessa stóra fyrirtækis eigi að inna af höndum þær skýrslur, er aðrir gjaldþrota menn verða að gera. Það er vanræksla, ef það er látið undir höfuð leggjast, og er reyndar þegar orðin vanræksla, því þetta átti að gera strax.