09.04.1932
Neðri deild: 47. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 332 í B-deild Alþingistíðinda. (82)

1. mál, fjárlög 1933

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég kannast við það, að ég mun hafa farið um það hörðum orðum á sínum tíma, ef kröfum Hafnfirðinga hefði í engu verið sinnt. Vandræði og atvinnuleysi hefði orðið afleiðingin, ef það hefði ekki verið gert. Ég hefði að vísu kosið, að hjálpin hefði fremur verið veitt með öðrum hætti en raun varð á, og var það þá kleift að kostnaðar- og áhættulausu fyrir ríkissjóðinn. En það er með öllu óviðkomandi þessari gömlu viðureign, að ríkissjóði sé gert ókleift að veita nokkra hjálp, um leið og allt er af honum heimtað — en þetta er nú ráðlag ýmsra hv. dm.

Ég skal játa það, að áastandið er slæmt. En það er þó ekki svo slæmt sem till. jafnaðarmanna benda til. Þótt einstaka hörmuleg tilfelli hafi komið fram við matgjafirnar hér í bænum, þá er það ekki full sönnun. á slík tilfelli má alltaf benda, og það jafnvel í góðæri, í svo stórum bæ sem Reykjavík er. Það má líka benda á það, að aðsóknin að matgjöfunum varð miklu minni en við var búizt. (HG: 200 á dag).

Þær framkvæmdir, sem kynni að verða ráðizt í til að bæta úr ástandinu, þurfa ekki aðeins að vera þarfleg verk, heldur framkvæmdir, sem gefa arð og því hægt að fá lán til. Svo væri t. d. um þurrkví, að sennilegt er, að fé mundi fást að láni til að byggja hana. Slíkir möguleikar eru til, en þeir eru dálítið annað en milljónin þeirra jafnaðarmanna.

Hv. þm. Seyðf. spurði, hvort ég vildi heldur sveitarstyrk en atvinnubætur. Spurningin er næsta óþörf. Sveitastjórnum er heimilt, þegar því verður við komið, að láta vinna atvinnubótavinnu, í stað þess að veita sveitarstyrkinn, eins og oftlega er gert hér í Reykjavík, og vonir um, að svo verði framvegis, minnka ekki við það, að ríkissjóður greiðir 1/3 af atvinnubótastyrknum eins og nú er.

Hv. þm. gaf nokkra mynd af tekjuskattinum í Englandi. Hann kvað tekjuskattinn þar vera 50% af 600 þús. kr. tekjum, en almenna tekjuskattinn 20%. En samkv. síðustu útgáfu af Encyclopædia Britannica er hann sem hér segir: Af £ 600 hreinum tekjum er hinn „effectfvi“ skattur rúmlega 10%. Skatturinn verður ekki 25% fyrr en komið er upp í tekjur, sem nema £ 6000. Þá er „effectivi“ skatturinn orðinn 4 sh. 101/20 af hverju sterlingspundi eða tæplega 25%. Fyrst þá, er tekjurnar ná 20 þús. sterlingspundum, verður skatturinn 33%. Hinsvegar nær skatturinn því hvergi að verða full 50%.

Þetta hygg ég að nægi til að sanna. að hv. þm. fór ekki með allskostar rétt mál um þetta efni. Hv. þm. minnti mig á Mac Donald og þjóðstjórnina í Englandi, og sé ég ekki ástæðu til að amast við því. En samanburðurinn á ekki vel við, þegar að er gáð. Á Englandi sátu jafnaðarmenn við stjórn. Þeir þurftu að gera öflugar ráðstafanir til þess að verjast tekjuhalla. þá koma báðir hinir flokkarnir og bjóða aðstoð sína til að rétta við fjárhaginn. Þótt ráðherrarnir, Mac Donald og nú Snowden, fengju ekki flokk sinn til að fylgjast með sér, nema að litlu leyti, tóku þeir höndum saman við hina flokkana um hinar nauðsynlegu ráðstafanir og bjarga þar með fjárhag og sóma landsins. Ég er þess fullviss, að ef hv. 2. landsk. hefði verið hér í sporum Mac Donalds og hv. 3. þm. Reykv. í sporum Snowdens, og hinir flokkarnir hefðu komið og rétt þeim höndina til samvinnu til að bjarga fjárhag landsins, að þeir hefðu tekið því boði. Hvort hv. þm. Seyðf. hefði tekið að sér hlutverk Hendersons eða ekki, skal ég láta ósagt.

Nú er að vonum talað mikið um kreppu. En hvað gera andstöðuflokkar stjórnarinnar af því, sem nauðsyn þjóðarinnar krefur? Svo er að sjá, sem þeir kæri sig ekki um að hafa önnur áhrif á ástandið en gera illt verra. Því að það kalla ég að gera illt verra, ef á að neita ríkissjóði um tekjustofna og loks að fella fjárlög, eins og jafnaðarmenn hóta. Ef svo reynist, að stjórnmálalegur og félagslegur þroski okkar væri ekki meira en þetta, er ekkert sennilegra en erlendir lánardrottnar gengju að okkur, a. m. k. um allar lausar skuldir, og hvað liði atvinnunni þá, ef bankar missa það fé, sem nauðsynlegt er til rekstursins? Þetta er stærsta atvinnuleysishættan.

Hv. þm. Seyðf. sagði, að ekki kæmi til mála, að jafnaðarmenn léðu lið sitt til að samþykkja verðtollinn. Samt veit hann vel, að engin stjórn getur verið við völd án hans. Hvaða mannaskipti, sem verða í stjórninni, þarf hún á þeim tekjum að halda.

Ef þjóðstjórnarákæra hv. þm. Seyðf. er í því fólgin, að ég vilji bjarga þjóðinni frá þeim voða, sem yfir vofir, þá er hún réttmæt, en annars ekki. En sá er munurinn hér og í Englandi, að hér er það stjórnarflokkur, sem býður samvinnu til að bjarga þjóðinni út úr ógöngunum, en í Englandi voru það andstöðuflokkarnir, sem buðu sína hjálp. Ég lýsi yfir því, að ég er reiðubúinn til samstarfs við hvern þann flokk, sem er reiðubúinn til að forða frá vandræðum og fjárhagshruni.