25.04.1932
Efri deild: 59. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (824)
14. mál, útflutningur hrossa
Jón Jónsson:
Samkv. því, sem ég gat um við 2. umr., þá flyt ég nú lítilsháttar brtt. við þetta frv. Sú fyrsta er um að gera það mögulegt, ef ástæða þykir til, að útflutningur hrossa geti átt sér stað á tímabilinu frá 15, okt. til 1. marz. Eftir frv. eins og það nú liggur fyrir er þetta ekki heimilt, og eftir minni brtt. á þetta ekki heldur að vera heimilt, nema eftir sérstöku leyfi í hvert skipti. En ef það verður samþ., ætti leyfi atvmrh. að vera nóg hamla á útflutninginn á þessu tímabili, nema nauðsyn bæri til. Hinsvegar er það illt að loka alveg fyrir hann, jafn mikil þörf sem er á markaði fyrir íslenzk hross, ef slíkir möguleikar skyldu opnast, sem litil von er þó um, því að yfirleitt eru lakar horfur um sölu á hrossum. Þó hefir sagt mér kunnugur maður, að ekki sé örvænt um, að þetta sé nokkuð að breytast, því á menn séu á snúast í þá átt í Danmörku á fara aftur að nota hross í stað véla, vegna kreppunnar og jafnvel í Englandi líka.
Um leið hefi ég, samkv. ósk og ábendingu forstjóra útflutningsdeildar Sambandsins, flutt brtt. við 3. gr., um að skoðun samkv. 3. málsgr. sé ekki skylt að framkvæma, nema útflytjandi óski þess. Hann benti á, að það væri allmikill kostnaðarauki að skoða og tölusetja hvert hross, ef stór hópur væri fluttur út, en fyrir sölu almennt hefði það ekki neitt að segja, en þó gæti það skipt dálitlu fyrir söluna í einstökum tilfellum, að þetta væri gert, og því þykir mér rétt, að það sé lagt á vald útflytjanda sjálfs, hvort það skuli gert, í samræmi við þetta og í framhaldi af því hefi ég orðað upp 7. gr. frv., þannig, að útflytjandi eigi kost á að fá hrossin skoðuð og tölusett.
Ég vona, að hv. d. geti fallizt á þessar brtt., því að hér er ekki um neinar stórfelldar breyt. að ræða.
Úr því að ég stóð upp, vil ég leyfa mér að benda á eina villu í frv. Ég var hálfvegis að hugsa um að flytja fjórðu brtt., til þess að leiðrétta þessa villu, sem er í l. gr. frv. Þar stendur í seinni málsl. orðið „tvævetur“, en n samkv. brtt., sem n. flutti og var samþ., að standa „þrevetur“. Vona ég, að þetta verði leiðrétt.
Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þessar brtt., sem ég vona, að ekki sæti neinum andmælum.