09.04.1932
Neðri deild: 47. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (83)
1. mál, fjárlög 1933
Héðinn Valdimarsson:
Hæstv. fjmrh. sagði, að ófyrirgefanlegt væri að bera fram till. um fjárveitingar, án þess að sjá fyrir fé um leið. Því er til að svara, að hæstv. ráðh. og fjvn. hafa þegar séð fyrir fé í fjárlagafrv. og þeim brtt., er því fylgja. Það er ekki meira, þótt við berum fram okkar till. en hæstv. fjmrh. sínar, sem eru í öðru skyni.
Hæstv. fjmrh. gerði lítið úr neyðinni hér í Reykjavík sem annarsstaðar. Hann veit sjálfsagt betur en ég, hvernig ástandið er í hans kjördæmi, en mér finnst það bera vott um skort hér í Reykjavík, að um 200 manns skuli sækja daglega hinar óvinsælu matgjafir, sem hér hafa verið í vetur. Enda er það enginn furða þótt þröngt sé í búi hjá mörgum eftir allt atvinnuleysið í vetur.
Hæstv. ráðh. sagði, að hægt væri að verja fátækrastyrk til atvinnubóta. Þetta er rétt, en ég ætla, að hv. fjmrh. sé svo kunnugur hugsunarhætti sveitarstjórnanna í þessum efnum, að hann geri sér ekki í alvöru neina von um, að þetta „bjargrað“ komi að miklu haldi. Þá svaraði hv. fjmrh. hv. hm. Seyðf. út af tekjuskattinum á Englandi. Ég vil benda honum á, að ....1)