09.04.1932
Neðri deild: 47. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 336 í B-deild Alþingistíðinda. (87)

1. mál, fjárlög 1933

Héðinn Valdimarsson:

Ég sé, að hæstv. fjmrh. muni vilja hafa síðast orðið og hann hefir enn tækifæri til þess. Ég vil aðeins mótmæla því, að við höfum stutt stj. í þrjú ár. Hæstv. fjmrh. veit, að þar var eingöngu um hlutleysi að ræða. Og ég fyrir mitt leyti hefi aldrei undirskrifað neitt hlutleysi við Framsóknarstj., hvorki fyrr né síðar. Það er svo fjarri sanni, að við höfum fengið allan okkar vilja fram, því að fjárlagafrv. stj. ganga í þveröfuga átt við stefnu okkar jafnaðarmanna. Það er ekki um neitt að tala, sem gert sé í okkar anda, og á kreppunni er alls ekki snert. En eftir skoðunum hæstv. fjmrh. er hún víst eins og vindurinn, sem enginn veit hvaðan kemur eða hvert fer og enginn fær við ráðið.