26.04.1932
Neðri deild: 60. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1274 í B-deild Alþingistíðinda. (873)

17. mál, bygging fyrir Háskóla Íslands

Magnús Guðmundsson:

Hæstv. dómsmrh. svaraði engu því, sem var aðalatriðið í ræðu minni, sem var það, að með 1. gr. frv. væri reyndar ekkert sagt. Það ræður af líkum, að það er þýðingarlaust að segja, að það megi byggja, þegar fé sé veitt til þess í fjárl. Það má segja, eins og hv. 4. þm. Reykv., að það geri ekkert til, þótt slíkt sé samþ. En það er margt, sem engu máli skiptir þótt samþ. sé, t. d., ef við gerðum samþykkt um það, að ef golfið í þessum sal væri að detta niður, þá skyldum við allir fara út! Það væri þýðingarlaust að gera samþykkt um þetta. Við færum út eins þótt engin samþykkt lægi fyrir, ef við kæmum því við.

Eins er um háskólann. Hann verður reistur, þegar fé er veitt til þess í fjárl., alveg eins þótt þetta frv. verði ekki samþ. þetta sýnir greinilega þýðingarleysi frv.

Sjálfstæðismálið kemur þessu ekkert við. Það hefir aldrei verið ákveðið að hafa sendiherra í London. Hæstv. ráðh. sagði, að ég hefði ekki getið um, hvort ég vildi fara lengra eða skemmra en frv. það er rétt, ég er ekki sá spámaður, að ég geti sagt fyrir, hvað gera. eigi á árunum 1934–1940. Ég get verið steindauður þá og fjárhagur ríkisins eins aumur og nú, svo að ekkert verði hægt að leggja af mörkum í þessu skyni.

Hæstv. dómsmrh. taldi það gefið, að ef ákveðið væri, að byggingin ætti að kosta 600 þús. kr., þá mundi hún kosta það. Þetta er náttúrlega hægt að segja. En hvaða trygging er fyrir því, að hún fari ekki fram úr áætlun? Það var líka sagt, að byggja mætti síldarbræðslustöðvar fyrir 1 millj. kr. Það var byggð ein; hún kostaði nær 2 millj. kr. Arnarhváll átti að kosta 250 þús. kr. ; hann komst upp í 360 þús. kr. Vinnuhælið á Litla-Hrauni mátti kosta 100 þús. Það kostaði undir 1/4 millj. kr. Það er ekki nóg að segja, að byggingin megi kosta þetta og þetta. Það verður líka að vera trygging fyrir því, að eftir því verði farið, og að unnt sé eftir því að fara.

Hæstv. ráðh. hélt, að ég hefði átt við landsspítalann, þegar ég talaði um byggingu, er við hefðum áður deilt nokkuð um. En ég átti alls ekki við landsspítalann, heldur heimavistarhús við menntaskólann, sem átti að kosta 150 þús. kr. Allt, sem hæstv. ráðh. sagði um þetta, er því út í hött.

Hæstv. ráðh. heldur því fram, að verði frv. samþ., sé það siðferðislega bindandi fyrir Alþingi að leggja fé fram til byggingarinnar. Ég lít ekki þannig á. Það er ómögulegt að binda þingið í þessu efni á neinn hátt, enda er svo losaralega gengið frá frv., að þar er sagt, að bygginguna skuli reisa, ef fé sé til hennar veitt í fjárl. Það er því hægt að hindra málið með því að taka þetta ekki í fjárl. Það væri líka alveg óforsvaranlegt að leggja nokkur slík bönd á þingið.

Það viðurkenna allir, að háskólann vanti hús. En mér heyrðist hæstv. ráðh. telja það lán, að það skyldi ekki hafa verið reist fyrir árið 1930. Ég held, að það hefði verið háskólans lán, ef hægt hefði verið að reisa bygginguna fyrr. Ég skil ekki, að það hafi nein ný vizka vaknað upp árið 1930.

Það er náttúrlega ekki rétt hjá hæstv. ráðh., að hann hafi ekki haft heimild til að semja við Rvíkurbæ og þurfi að fá þá heimild með þessu frv. hér er um það að ræða að taka við gjöf, stórri gjöf, sem bæjarfél. ætlar að láta af hendi til að styðja að því, að byggt verði yfir háskólann. Ég lít svo á, að hæstv. ráðh. hafi hina fyllstu heimild til að taka við slíkri gjöf. Mér finnst það í alla staði réttmætt, að Rvík láti af höndum stóra og góða lóð, því bærinn hefir talsverðar óbeinar tekjur af því, að háskólinn er hér, tekjur, sem fara vaxandi eftir því, sem háskólanum vex fiskur um hrygg.

Það er að vísu rétt, að háskólann vantar hús. En það er líka margt annað, sem vantar. Hæstv. ráðh. hefir ekki alltaf verið svona örlátur við háskólann. Það hefir einn af prófessorunum sagt mér, að hæstv. ráðh. hafi verið svo sparsamur, að háskólinn hafi ekki einu sinni fengið nægilega stóla hjá honum handa nemendum, svo þeir hafi sumir orðið að sitja úti í gluggakistunum í kennslustundum !