12.03.1932
Efri deild: 27. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1293 í B-deild Alþingistíðinda. (895)
21. mál, geðveikrahæli
Frsm. (Jón Jónsson):
Ég skal aðeins geta þess, út af aths., sem fram komu við 2. umr. frá hv. þm. Hafnf., að allshn. hefir talað sig saman um málið á ný, en sér ekki ástæðu til að koma með nýjar brtt. við það, en treystir hinsvegar því, að þegar ákveðin verða daggjöld sjúklinga, þá verði tekið tillit til þess, hvort þeir dvelji þar langvistum eða einungis um skemmri tíma. Ennfremur er þess að vænta, eftir samtali við landlækni að dæma, að bráðlega verði hafizt handa um undirbúning heildarlöggjafar fyrir sjúkrahús landsins.