04.04.1932
Neðri deild: 42. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í B-deild Alþingistíðinda. (9)
1. mál, fjárlög 1933
Magnús Guðmundsson:
Við fyrri hluta þessarar umr. gat ég þess, að mér þætti skýrsla hæstv. fjmrh. um afkomu ríkisssjóðs 1931 mjög dapurleg. Síðan hann gaf þá skýrslu hefi ég haft tækifæri til bæði að athuga þessa skýrslu betur og skoða niður í kjölinn áætlun hæstv. stjórnar um tekjur og gjöld 1933, og verð ég að gera þá játningu, að dapurleikinn yfir hag og framtíðarafkomu ríkissjóðs hefir ekki minnkað í huga mínum við þessa nánari athugun. Mér virðist útlitið ákaflega skuggalegt og mér sýnist allt benda til þess, að hæstv. stjórn hafi ekki nægan skilning á, hversu svart er framundan. Þessa ályktun dreg ég af hinni ægilegu fjáreyðslu hennar undanfarið, af áætlunum hennar fyrir árið 1933 og af hinum mikla fjölda nýrra skattafrumvarpa, sem komið hefir frá henni og hennar liðsmönnum á þessu þingi. Ég hefi ekki kastað tölu á þessi frv., en ég man, að ekki færri en 7 af þeim voru fyrir nokkru á dagskrá einn og sama daginn.
Í þessu sambandi get ég ekki látið vera að minna á, að á fyrsta þinginu (1928), sem núverandi stjórnarflokkur réð lögum og lofum hér á þingi, voru skattar hækkaðir svo, að nam 11/2 millj. kr. á ári. Þá var góðæri, og ég man ekki til þess, að síðan hafi neinir skattar verið lækkaðir. Nú er hin mesta kreppa, en samt vill hætv. stjórn og hennar flokkur hækka skatta enn stórlega. Nú spyr ég: Hvar lendir, ef alltaf á að hækka skatta, hvort sem vel árar eða illa? Hver getur ímyndað sér, að framleiðsla landsins þoli stöðugt auknar álögur? Með sama áframhaldi og verið hefir verða skattþegnarnir þrælar stórskuldugs ríkissjóðs, en ekki frjálsir menn í frjálsu landi.
Ég hefi orðið þess var, að blöð stjórnarinnar hafa nú að undanförnu minnzt á það, að árið 1924, þegar andstöðuflokkur núv. stjórnar tók við völdum, hafi skattarnir verið hækkaðir, þó að þá væri ekki gott í ári. Þess vegna hljóti okkur nú að þykja eðlilegt að hækka skattana. En náttúrlega geta stjórnarblöðin þess ekki, að 1926, þegar afkoma atvinnuveganna versnaði, var slakað verulega til á sköttunum, enda voru hinar auknu tekjur, sem af sköttunum leiddu, notaðar til að létta skuldabyrgðina á ríkissjóði. Í þessu kemur fram í stórum dráttum stefna Sjálfstæðisflokksins í fjármálum ríkisins. Flokkurinn játar og viðurkennir nauðsyn þess að leggja á landsmenn byrðar til þess að tryggja afkomu ríkissjóðs, ef ekki er eytt úr hófi fram. Hinsvegar neitar flokkurinn því afdráttarlaust að vinna að því að útvega tekjur til óhóflegrar eyðslu. Flokkurinn telur það bein svik við kjósendur sína, sem eru nærri helmingur allra kjósenda landsins, að stuðla að því, að fram úr hófi eyðslusöm stjórn hafi jafnan nægilegt fé til að ausa út, hvernig sem fer um hag landsmanna. Hæstv. stjórn getur því alls ekki búizt við því, að auknir skattar verði samþ. nú með atkvæðum sjálfstæðismanna, nema fullar tryggingar komi fyrir því, að skipt verði um í meðferð fjár ríkisins, og slík trygging næst ekki nema skipt verði um menn í stjórninni, a. m. k. að einhverju leyti.
Ég finn það vel, að í því, sem ég hefi sagt, liggur harður áfellisdómur um fjármeðferð hæstv. stj., og ég tel mér skylt að rökstyðja þetta. Ég mun gera það í eins stuttu máli og ég tel mér fært og mun ég sleppa öllum köpuryrðum, en láta tölur tala eins skýrt og rétt og mér er auðið.
Fyrst mun ég athuga fjárnotkun stj. undanfarin 4 ár, og styðst ég þar við fjárlög og landsreikninga árin 1928, 1929 og 1930, en við skýrslu hæstv. fjmth. að því er snertir árið 1931. Síðan mun ég athuga nokkuð, hvað hæstv. stj. aetlast fyrir um fjárnotkun 1932 og 1933.
Samkvæmt fjárlögum hafa tekjur ríkissjóðs verið áætlaðar af þinginu þannig, talið í hundruðum þúsunda:
1928 .......... kr. 10,5 millj.
1929 .......... — 10,9 –
1930 .......... — 11,9 –
1931 .......... — 12,8 –
Alls kr. 46,1 millj.
en tekjurnar reyndust:
1928 .......... kr. 14,3 millj.
1929 .......... — 16,3 –
Í930 ..........— 17,2 –
1931 .......... — 14,7 –
kr. 62,5 millj.
Tekjurnar þessi ár hafa því reynzt 16,4 millj. meiri en þingið áætlaði.
Þá er að líta á gjöldin, þau voru
áætluð:
1928 .......... kr. 10,5 millj.
1929 .......... — 10,8 –
1930 .......... — 11,9 –
1931 .......... — 12,8 –
Alls kr. 46,0 millj.
en urðu:
1928 .......... kr. 13,3 millj.
1929 .......... — 17,0 –
1930 .......... — 21,8 –
1931 .......... — 17,2 –
Alls kr. 69,3 millj.
Gjöldin þessi ár hafa því reynzt 23,3 millj. kr. meiri en þingið hafði áætlað.
Aðalniðurstöðurnar eru þá þær, að þessi 4 ár hafa tekjurnar farið 16,4 millj. kr. fram úr áætlun þingsins, en gjöldin 23,3 millj. kr.
En stj. hefir haft miklu meira fé úr að spila þessi ár en tekjur ríkissjóðs. Hún hefir líka tekið stórfelldari lán en nokkru sinni hefir þekkzt hér á landi.
Lánin, sem hún hefir tekið, eru þessi:
Hjá Hambros banka .. kr. 11961000,00
— sama (vixillan) ... — Í550500,00
— Marconifélaginu . — 620200,00
— L. M. Ericsson ... — 950500,00
— Ýmsum .......... ca.— 200000,00
kr. 15282200,00
Þessi 4 ár hefir stj. því haft til ráðstofunar:
Tekjur ........ kr. 62,5 millj.
Lán ........... — 15,3
kr. 7,8 millj.
Allt þetta fé hefir verið notað þessi 4 ár, — ekkert er eftir, og telst mér svo til, að til jafnaðar hafi verið greiddar um 53000 kr. á hverjum einasta degi þessi ar, að meðtöldum öllum helgidögum. Þetta svarar til um 50 au. á dag af hverju mannsbarni í landinu, og geri ég ráð fyrir, að fleirum muni ofbjóða þetta en mér.
Skylt er þó að geta þess, að sumt af þessu fé hefir verið afhent bönkunum, og telst mér svo til, að sú fjárhæð nemi um 8 millj. kr. Þá ber og að taka það fram, að á þessum árum hafa verið keypt strandferðaskip og ýmsar opinberar byggingar verið reistar, svo sem síldarbræðslustöðin á Siglufirði, útvarpsstöð, landssímastöð hér í bænum, skrifstofubyggingin Arnarhváll, Landsspítalinn fullgerður o. fl. o. fl., og hafa til alls þessa farið 4–5 millj. kr. Það má deila um þörf og nytsemi sums af þessu, og mun ég koma að því nokkuð síðar, en að frádregnu því, sem hér hefir verið talið, hefir féð gengið til ríkisrekstrarins með tiltölulega litlum undantekningum.
Eins og af líkum ræður eftir því, sem tekið hefir verið fram, hefir vaxtabyrði ríkissjóðs aukizt stórum í tíð núverandi stj. Samkv. LR. 1927 námu vextir af ríkisskuldum það ár um 700000 kr., en samkv. fjárlfrv. 1933 nema þeir talsvert á 2. millj. kr., og svipað er að segja um afborganir.
Um fjáreyðsluna þessi undanfarin ár sker árið 1930 sig úr. Þá var eyðslan svo gífurleg, að það er nærri ótrúlegt. LR. fyrir það ár, sem nú liggur fyrir þinginu til samþykktar eða synjunar, er að upphæð tæplega 25,8 millj. kr. Þar frá má þó draga vegna greiðslu lausaskulda og vegna aukinna innstæðna um 4 millj. kr., svo að gjöldin verða tæplega 22 millj. kr., eins og ég tók fram áður. Þar við er þó rétt að bæta kostnaði af að reisa útvarpsstöð og landssímastöð, rúmlega 11/2 millj. kr., því að þótt undarlegt sé frá að segja, er þessi upphæð ekki talin á LR. Gjöldin 1930 eru því ekki minna en 23,4 millj. kr. og eru þau langhæstu, sem nokkru sinni hafa orðið. Hæst hafa þau orðið áður um 17 millj. kr., 1929, hjá sömu stjórn. Til samanburðar má geta þess, að gjöldin 1921, þegar dýrtíðin var sem mest, voru um 12 millj. kr., og þá ætlaði hæstv. forsrh., sem þá var ritstjóri Tímans, að rifna af vandlætingasemi yfir eyslunni. Síðan hefir dýrtíðin minnkað stórkostlega, og samt eru gjöldin 1930 um það bil tvöfalt hærri en 1921.
Fjárausturinn undanfarið er mikið mein. Þeim, sem óhlutdrægt vilja líta á þetta mál, mun sýnast, að stj. hefði átt að nægja að fá til þarfa ríkissjóðsins á 4 árum yfir 16 millj. kr. meira en þingið áætlaði, svo að ekki hefði þurft að taka hin miklu lán. Sextán millj. kr. er mikil upphæð á okkar mælikvarða. Til samanburðar má geta þess, að allar jarðeignir og öll hús í öllum 23 sýslufélögum landsins eru eftir gildandi jarðamati metin á rúmlega 46 millj. kr. Tekjur ríkissjóðs hafa því verið þessi 4 ár yfir 16 millj. kr. meiri en matsverð allra jarða og allra húsa í öllum sveitum og kauptúnum landsins. Það er í rauninni stórmerkilegt, að þjóðin skuli hafa lyft því Grettistaki að inna af hendi öll þessi gjöld. Þó má það kannske kallast enn merkilegra, að ekki einu sinni þetta nægði stj., heldur varð hún að taka yfir 15 millj. kr. lán á þessum sömu árum.
Jafnan þegar stj. er og hefir verið vítt fyrir eyðsluna, hefir hún haft eitt og aðeins eitt svar. Hún kveðst hafa framkvæmt svo mikið. Hún kveðst hafa brynjað þjóðina gegn erfiðleikum kreppunnar, svo að nú sé miklu léttara að lifa og komast yfir erfiðleika núverandi verðhækkunar. Þetta var eitt verulegasta atriðið í nýársboðskap hæstv. forsrh. til hinnar ísl. þjóðar í byrjun þessa yfirstandandi árs. Nú get ég skotið þessu til þeirra, sem mál mitt heyra. Ég bið þá hvern um sig að stinga hendinni í sinn eigin barm og svara því, hvort þeim finnst hæstv. stj. hafa útvegað þeim þá brynju til kreppuvarna, sem stj. sjálf gumar af. Hver og einn getur svarað því fyrir sitt leyti, en ég get sagt það fyrir mitt leyti, að ég hefi ekki orðið brynjunnar var. Ég veit það að sönnu, að stj. hefir að undanförnum árum eytt millj. kr. í byggingar af ýmsu tagi. Ég veit, að hún hefir játið reisa símastöð hér í bænum fyrir nærri 2 millj. kr., ég veit, að hún hefir látið reisa síldarbræðslustöð á Siglufirði fyrir meira en 11/2 millj. kr., ég veit, að hún hefir látið reisa útvarpsstöð fyrir um 700 þús. kr., ég veit, að hún hefir látið fullgera Landsspíalann og varið til þess um 1 millj. kr., ég veit, að hún hefir látið reisa hér mikla skrifstofubyggingu fyrir um 360 þús. kr., ég veit, að hún hefir keypt strandferðaskip fyrir um 250 þús. kr., ég veit, að hun hefir sett á stofn 11 nýja skóla — ef trúa má Tímanum, sem ég þó tel mjög vafasamt; en margir eru þeir, það veit ég, ég veit, að hún hefir notað um 250 þús. kr. til vinnuhælisins á Litla-Hrauni, ég veit, að hún hefir notað yfir 130 þús. kr. til fjóss og hlöðu á Hvanneyri. — Já, í stuttu máli: ég veit svo margt um fjárnotkun hæstv. stj., að mér mundi ekki endast sú klukkustund, sem ég nú hefi til umráða, til að telja það allt upp. Ég verð að taka það stærsta, en láta það minna liggja.
Eins og ég tók fram áður, læt ég hvern og einn um það að meta brynjugildi þessara þygginga í heild á yfirstandandi krepputímum, en ekki get ég þó látið vera að benda á:
að ekki greiðir strandferðaskipið úr kreppunni, því að ríkið hefir ekki ráð að að gera það út, að ekki greiðir skrifstofuhöllin úr kreppunni, því að ríkissjóður verður að greiða miklu meira í húsaleigu fyrir skrifstofur í byggingu þessari en hann greiddi áður, og þó nægir húsaleigan ekki nema til að greiða vexti og kostnað af húsinu,
að ekki greiðir símastöðin úr kreppunni, því að þegar hún tekur til starfa, verður að hækka símagjöldin,
að ekki getur síldarbræðslustöðin á Siglufirði bætt úr kreppunni, nema þá fyrir tiltölulega fáa landsmenn, og svipað má segja um Hvanneyrarfjósið, letigarðinn og margt fleira.
Nei, það er svo langt fra, að stj. hafi brynjað landsmenn gegn kreppunni með því að eyða öllu, sem inn kom. Bezta brynjan, eina brynjan, sem dugir gegn kreppunni, er safn þeirra hluta, sem þurrð verður á, er kreppa kemur. Þetta hefir verið viðurkennt alla tíð frá dögum Gamla testamentisins, alla tíð frá því að Jósef réð draum Faraós og safnaði korni í hlöður til mögru áranna. Eina kreppuráðstöfunin, sem dugir, er að safna því, sem þarf til að halda sér uppi í vondum árum, og það er nú á dögum einkum peningar, en alls ekki óarðberandi byggingar. Hugsum oss, að hæstv. stj. hefði geymt þó ekki væri nema fjórðungur eða fimmtungur þess fjár, sem hún fékk inn, auk þess sem áætlað var. Það væru 3–4 millj. kr. Hvílíkur aðstöðumunur við það, sem nú er, þegar svo er komið, að ríkissjóður á mjög erfitt með að standa í skilum með skyldugreiðslur sínar.
Stj. hefir reynt að verja sig með því, að enginn geti vitað, hvenær kreppu sé von. En þetta er engin afsökun. Kreppur koma alltaf eftir góðæri. Það er lögmál, sem allar stj. verða að þekkja. Og sú kreppa, sem nú stendur yfir, kom sannarlega ekki að óvörum. Hún byrjaði Bandaríkjunum seint á árinu 1929 og var fyrirsjáanleg mestan hluta ársins 1930, enda þá komin víða um lönd, þótt ekki gætti verulega hér. En einmitt á árinu 1930 eyddi hæstv. stj. mestu, eins og ég hefi bent á, einmitt þa, þegar fyrirsjáanleg nauðsyn var á sparnaði.
Ég verð að segja eins og er um það, að ég tel, að hæstv. stj. hafi þungan syndabagga á baki í mörgum málum, en engan þeirra tel ég eins alvarlegan eins og meðferð fjármálanna undanfarin ár. Afleiðingar þess ná til allra núlifandi landsmanna og næstu kynslóðar.
Hin mikla fjárnotkun undanfarinna ára hefir þrátt fyrir hinar geysilegu tekjur valdið því, að nokkur tekjuhalli varð hjá ríkissjóði 1929, ef öll gjöld þess árs eru talin. Á árinu 1930 hefir orðið geysilegur tekjuhalli og 1931 hefir tekjuhallinn orðið yfir milljón. Enginn getur sagt með vissu um yfirstandandi ár, en barnaskapur væri að líta á það björtum augum. Það er fjarri mér að vilja spá hæstv. núv. fjmrh. neinum hrakspám, en ég get tæpast búizt við, að hann komist yfir árið hallalaust. Verði halli á yfirstandandi ári, er það 4. tekjuhallaárið í röð, og sjá allir, hvert stefnir með þessu lagi. Hver heilvita maður hlýtur að sjá, að verði þessi leið farin áfram, liggur hún beina leið til fullrar glötunar á fjárhagssjálfstæði voru, og með því er pólitískt sjálfstæði einnig jarðsungið. Gífurleg skuldasöfnun í góðum árum samfara notkun allra tekna þeirra sömu góðæra er svo stór pólitísk synd, að hún verður ekki fyrirgefin. Engin stj. getur útvegað sér mildan dóm fyrir slíkt brot með ummælum eins og þeim, sem hæstv. forsrh. viðhafði í nýársræðu sinni, að það væri síður að safna skuldum í góðærunum og borga þær í vondu árunum. Þessu trúir sem sé enginn. Hvernig hugsar hæstv . ráðh. sér t. d., að ríkissjóður geti grynnt verulega á skuldunum í ár? Ég get ekki ímyndað mér, að hann geri betur en að greiða samningsbundnar afborganir, og ég veit, að síðan á nýari hefir hann safnað talsverðri skuld. Þessa skaðlegu kenningu hæstv. forsrh. verður að slá niður harðri hendi. Hún er háskaleg villukenning, háskalegri en ég hefi tök á að lýsa. Hún sýnir svo mikla léttúð í fjármálum, að ekki er við unandi. Ég verð að viðurkenna, að hæstv. forsrh. hefir tekizt að fullnægja fyrri lið þessarar villukenningar. Honum hefir tekizt allt of vel að safna skuldum í góðærunum. En hann á eftir að sýna, að honum gangi eins vel að afborga á krepputímunum, og fáir munu hafa trú á að svo verði.
Ég verð að víkja nokkru nánar að hinum miklu greiðslum hæstv. stj. umfram heimildir fjárlaga. Þessar greiðslur sýna það mjög áberandi, að hún hefir algerlega virt að vettugi fjárveitingavald þingsins. Nú veit ég það vel og viðurkenni, að ýmsar upphæðir fjárlaga eru áætlunarupphæðir, og mér dettur ekki í hug að átelja umframgreiðslur á slíkum liðum, ef fullrar sparsemi er gætt. Verðsveiflur og skakkar áætlanir geta líka umturnað öllu, eins og t. d. um og eftir heimsstyrjöldina, en engri slíkri verðtruflun er til að dreifa á þessum árum. Á þeim árum, sem hér er um rætt, tók verðlagið engum stórbreytingum, sem réttlæti hinar gífurlega miklu umframgreiðslur.
Til sönnunar staðhæfingu minni um óheimilar greiðslur af hálfu stj. verð ég að nefna nokkur áberandi dæmi:
1. Á þinginu 1928 útvegaði stj. sér heimild til að mega verja allt að 1 millj. til stofnunar og starfrækslu síldarbræðslustöðvar á Norðurlandi og annarsstaðar, þar sem hentast þykir. Orðalag laganna, sem heimila þetta, sýnir, að tilgangurinn var, að 2 eða fleiri verksmiðjur yrðu reistar fyrir þessa milljdn. En þegar LR. 1930 kom, þá sást, að aðeins ein verksmiðja hafði verið reist á Siglufirði, og hún kostaði naerri 11/2 millj. kr. Hér hefir því stj. í algerðu heimildarleysi notað nærri 500000 kr. umfram það, sem þingið heimilaði frekast. Þetta er með öllu óhafandi. Með þessu er svo þverbrotinn vilji fjárveitingavaldsins, að það verður að áteljast eins harðlega og frekast er unnt. Ég mun síðar, ef tími vinnst til, víkja nánar að kostnaðinum af þessari síldarbræðslustoð.
Ég man eftir því, að við stjórnarandstæðingar kölluðum þingið 1928 „síldarþing“, því að þá var ráðgert að reisa þær síldarbræðsluverksmiðjur, sem ég nefndi, og þá var sett á stofn einkasala á síld. Þá var yfirleitt umturnað löggjöfinni um síld. Það er nú komið á daginn, að þetta nafn á þinginu 1928 hefir verið sorglegt réttnefni, því að auk hinnar rándýru síldarverksmiðju er nú komið í ljós, að ríkissjóður hlýtur stórkostlegt tjón af gjaldþroti síldareinkasölunnar. Það kveður nú við alstaðar hjá þeim mönnum, sem skyn bera á þessa hluti, að tjón ríkissjóðs af þessu fyrirtæki, sem var sett á stofn gegn hinum ákveðnustu andmælum sjálfstæðismanna, muni ekki verða undir 1 millj. kr. Ef nú svo fer — og betri verður niðurstaðan víst ekki — þá hefir stj. lagt fram til síldarinnar um 21/2 millj. kr.
Þessi stj. hefir oft kallað sig bændastjórn, en mér finnst, að hún ætti miklu heldur að kallast síldarstjórn, og dreg ég það nafn af örlæti hennar í síldarmálefnum. Það hefir verið mikið rætt um og mörgum hefir þótt hár styrkurinn til bænda eftir jarðræktarlögunum. Hann hefir þó ekki verið meiri en 2 millj. kr. árin 1928–1931. Miklu meira hefir því verið varið til síldarinnar en til bænda eftir jarðræktarlögunum, og er þó sannarlega ólíku saman að jafna. Að því er jarðræktarstyrkinn snertir hefir stj. lítið annað gert en borga út eftir lögum, sem voru til er hún tók við völdum, en um síldina fitjaði hún, á fyrsta þinginu, sem kom saman eftir að hún tók við völdum, upp á nýrri löggjöf, sem hefir kostað ríkissjóð þessi ár miklu meira en jarðræktarlögin. Ég er óviss um, að almenningur þessa lands hafi gert sér grein fyrir, að stj. hefir verið miklu örlátari við síldina en jarðræktina, og því hefir mér þótt rétt að benda á þetta, svo að hún sigli síður undir fölsku flaggi hér eftir en hingað til.
2. Annað dæmi, er sýnir hina fullkomnu lítilsvirðingu fyrir fjárveitingavaldi þingsins, vil ég nefna. Það eru framlögin til héraðsskóla árin 1929–1930. Í fjárlögum þessara ára voru í þessu skyni veittar bæði árin til samans 50000 kr., en notaðar rúmlega 400000 kr., eða meira en áttföld fjárveiting þingsins.
3. Sem þriðja daemi um þetta má nefna vinnuhælið á Litla-Hrauni. Stj. útvegaði sér með lögum frá 1928 heimild til að verja til hælisins allt að 100000 kr., en hefir á undanförnum 4 árum notað til hælisins 300000 kr., að meðtöldum rekstrarkostnaði, sem líklega er 10–15 þús. kr. á ári. Hitt hefir farið til húsabygginga og jarðakaupa, og er það meira en tvöfalt hámark þess, sem þingið ákvað.
4. Sem fjórða dæmi má nefna Reykjahælið í Ölfusi. Til þess hafa verið notaðar 270000 kr., að meðtöldu andvirði Reykjatorfunnar, en heimild þingsins er aðeins 150000 kr. Hér er rétt að geta þess, að um 50000 af þessum kostnaði var fært til gjalda á reikningum landsspítalans, og er ráð nattúrlega bein fölsun á reikningum hans.
Minn takmarkaði tími leyfir mér ekki að nefna fleiri daemi til sönnunar því, að í raun og veru hefir stj. í algerðu heimildarleysi tekið fjárveitingavaldið af þinginu og afhent það sjálfri sér. Fjárveitinganefndin, 7 manna nefnd, hefir undanfarinn mánuð setið yfir fjárlfrv. fyrir 1933 og verið að hnitmiða niður fjárveitingar með mestu nákvæmni. Ég get ekki neitað, að mér hefir oft dottið í hug, að það væri til lítils að vera að þessu, ef stj. virðir svo allt að vettugi eins og undanfarin ár. Þó er skylt að geta þess, að nýlega hefir verið skipt um fjármálaráðherra, og er enn óreynt, hversu hinn nýi ráðh. heldur á fjárlögunum.
Um árið, sem yfir stendur, er af minni hálfu lítið að segja, enda veit ég ekki, hvað hæstv. stj. ætlast fyrir um framkvæmdir. Hinsvegar lét ég það í ljós á þinginu í fyrra, er fjárlög yfirstandandi árs voru til meðferðar, að ég teldi mjög hæpið, að hægt væri að halda jöfnuði, ef það væri framkvæmt, sem fjárlög ráðgera. Og síðan hefir útlitið sannarlega ekki batnað.
Fjárlagafrv. Það fyrir 1933, sem hér er til meðferðar, gerir ráð fyrir hærri gjöldum en nokkurt annað fjárlagafrv., sem lagt hefir verið fyrir þingið fyrr eða síðar, og sýnist mér það bera vott um allt of mikið bjartsýni einmitt nú, þegar hrammur kreppunnar kreistir sem harðast. Þó verður að viðurkenna það, að talsverða viðleitni hefir hæstv. fjmrh. gert til niðurfærslu, þó að það að mínu áliti sé alls ekki nóg. Á það verður líka að líta, að langmestur hluti útgjaldanna er lögbundinn, svo að nægilegur niðurskurður mun ekki fást nema með breyttri löggjöf. Það er ein af hinum stóru fjármálasyndum undanfarinna ára, hversu miklum föstum, lögbundnum gjöldum hefir verið hlaðið á ríkissjóð. auk þess sem byrði vaxta og afborgana hefir þyngzt stórkostlega. Ég verð að segja, að ég sé ekki, hvernig búizt verður við, að á næsta ári komi inn tekjur til þess að borga öll þessi gjöld. Ég horfi með hinum mesta ugg og ótta fram á afkomuna 1933, og þó þyrfti sannarlega að reyna að fyrirbyggja tekjuhalla á því ári. En ég óttast mjög, að það verði 5. tekjuhallaárið í röð, og er í sjálfu sér ekkert við þvi að segja, ef ekki hefði verið líka tekjuhalli árin áður. Það er í rauninni ekki nema eðlilegt, þótt halli verði í hinum verstu árum, en þegar svo er komið, að tekjuhalli er orðinn arlegur gestur, jafnt í góðæri sem kreppu, þá verður að stinga við fótum og gera þær ráðstafanir, sem þarf til þess að rétta við, jafnvel þótt djúpt þurfi að skera og víða sviði. Ég veit, að hæstv. stj. er smeik um afkomuna 1933 og að hún hugsar sér að hjálpa sér áfram með nýjum sköttum, en ég býst við, að hún verði að gera það án aðstoðar Sjálfstæðisflokksins. Ég býst við, að hann líti svo á, að bæði hafi verið á síðastl. árum seilzt fulldjúpt í vasa skattþegnanna og eins, að það sé ekki fýsilegt að fá þeirri stj., sem að 2/3 er hin sama og á undanförnum árum, enn nýjar og nýjar tekjur til að bruðla. Það er lögmál lífsins, að skömm er óhófs æfi. Óhófsmaðurinn verður að gera sér að góðu að lifa við skort, þegar öllu er eytt. Í þriðja lagi má benda á það, að það er ekki nóg að samþykkja skattafrv., ef þeir, sem eiga að borga skattana, hafa ekkert til að borga með. Atvinnuvegirnir eru á heljarþröm, og að síðustu eru það þó þeir, sem eiga að halda öllu uppi. En hvernig geta þeir það, þegar þeir eru sjálfir komnir á kné vegna ofurþunga skatta og vinnulauna?
Því miður verð ég ekki var við neina verulega sparnaðarviðleitni hjá hæstv. stj. Enn er hún að festa fé í nýjum, alóþörfum fyrirtækjum, eins og t. d. brauðgerðarhúsi, og er til þess engin heimild. Enn er hún að búa til ný og alóþörf embætti. Alveg nýlega hefir t. d. verið búið til embætti handa manni til þess að hafa á hendi löggaezlu á vegttm hér austur yfir fjall. Enn er haldið áfram með alóþarfan starfsmannafjölda. Meðan svo er, erum við sjálfstæðismenn ekki fúsir til viðtals um skattahækkun. Við heimtum fyrst þá niðurfærslu gjaldanna, sem er kleif. Síðan þær breytingar á gjaldalöggjöf, sem fært er að gera. Þegar þetta er gert, þá og þá fyrst erum við til viðtals um frekari aðgerðir, þó að því tilskildu, að sinnt sé því réttlætismáli, sem nú er harðast barizt um.
Stjórnin hefir stofnað 15 eða 16 ný löggæzlumannaembætti. Vill hún afnema þau og spara með því 70–80 þús. kr. á ári?
Hún hefir stofnað 2 eða 3 embætti við bifreiðaeftirlit, með 6000 kr. launum hvert. Vill hún afnema þau og fara eftir þar að lútandi lögum?
Hún hefir stofnað embætti á Þingvöllum til eftirlits þar. Vill hún afnema það starf þess manns er sama og ekkert.
Hún hefir búið til mörg ný embætti í stjórnarraðinu, ég held 7–8. Vill hún fækka þeim, svo að lækki launagreiðslurnar í stjórnarraðinu? hað mundi ekki af veita, því að sá kostnaður hækkaði 1930 um rúmlega 34000 kr., eða nærri 30%.
Vill stjórnin afnema kennsluprófastsstörfin?
Vill stjórnin láta Lárus H. Bjarnason fá aftur embætti sitt í hæstarétti, sem hún svipti hann að ástæðulausu? Með því má spara 9–10 þús. kr. á ári.
Vill stj. hætta að greiða sumum embættismönnum miklu hærri laun en lögákveðið er?
Vill stj. selja eitthvað af bifreiðunum, sem hún hefir verið að kaupa undanfarið, og hætta að kaupa nýjar?
Vill stj. yfirleitt draga úr starfsmannahaldinu ?
Vill hún hætta að gefa út rándýr skrumrit um sjálfa sig og níðrit um andstæðingana, hvorttveggja á ríkisins kostnað?
Vill stj. hætta að greiða stórar fjárfúlgur í heimildarleysi?
Vill stj. hætta að gefa af fé ríkisins eins og átti sér stað um 8000 kr. af björgunarlaunum fyrir togarann „Ohm“?
Vilj stj. hætta að veita fylgismönnum bitlinga úr ríkissjóði?
Vill stj. hætta hinum illræmdu nefndarskipunum, sem á síðustu árum hafa kostað ríkissjóð mikið á 2. hundrað þús. kr.?
Vill forsætisráðherra hætta að taka sérstaka borgun úr ríkisjóði fyrir nefndarstörf ofan á embætislaun sín, risnufé, ókeypis húsnæði, ljós, hita og meira að segja gas til eldunar á mat ofan í sig og sína?
Vill stj. hætta snatti varðskipanna, þar með töldum fiskiveiðum?
Vill stj. hætta að nota bifreiðar ríkisins í eigin og flokksþágu?
Svona gæti ég haldið lengi áfram að spyrja, en meðan engin svör koma og ekki sést á neinu, að sparnaður eigi að ríkja, þá er ekki von, að vel sé tekið kröfum um aukna skatta. Fjárveitinganefnd og einstakir þm. hafa borið fram ýmsar sparnaðartillögur, og er fróðlegt að sjá, hvernig viðtökur þær tillögur yfirleitt fá?
Gengi hinnar ísl. krónu féll mikið nokkru fyrir síðustu áramót, og af því hlýtur að leiða hækkandi verðlag og hækkandi dýrtíðaruppbót. Þetta kemur niður á ríkissjóði á fjölmörgum sviðum. Laun embættismanna hækka og rekstur allra opinberra stofnana verður dýrari. Allar áætlanir gildandi fjárlaga og frv. þess, sem hér liggur fyrir, eru byggðar á lægra verðlagi en nú er og verður 1933, ef krónan hækkar ekki, sem ég geri tæpast ráð fyrir. Það er því hætt við, að ýmsar aaetlanir reynist of lagar, og eykur það á um hið óglæsilega útlit yfirleitt fyrir ríkissjóðinn.
Tilgangur minn með því, sem ég hefi sagt hér, hefir verið að reyna að sýna fram á, að stjórnarfar eins og hefir verið undanfarið leiðir til beinnar glötunar, þó að ekkert sé litið á annað en fjárhaginn. Eftir LR. 1927 voru þær skuldir, sem ríkissjóðurinn átti að standa straum af, um 11 millj. kr., en eftir LR. 1930 eru þær 16,5 millj. tæplega, og þess utan 71/2 millj. kr., sem ríkissjóður verður að greiða afborganir af og vexti, a. m. k. 41/2 millj. kr. Þær skuldir, sem ríkissjóður verður nú að afborga, eru þá 24 millj. kr., í stað 11 millj. 1927, og 21 millj. verður hann að ávaxta, í stað 11 millj. kr. 1927. Þetta þýðir það, að skuldirnar hafa meira en tvöfaldazt á þessu tímabili. Til skýringar því, að upphæðin, sem ríkissjóður á að afborga, er 3 millj. kr. hærri en sú upphæð, sem hann á að greiða vexti af, vil ég geta þess, að ráð, sem mismuninn gerir, er framlagið til Landsbankans, 3 millj. kr. Af því á bankinn sjálfur að borga vextina.
Þessar tölur, sem ég hefi hér nefnt, eru teknar eftir LR. 1927 og 1930. Báðir þessir reikningar eru samdir af Framsóknarstj., svo af hennar hálfu getur ekki verið von á andmælum gegn þessu. Auk þessa hafa stundum verið taldar til skulda ríkissjóðs rúmlega 16 millj., sem aðrar stofnanir en ríkissjóður eiga að sja um að öllu leyti, en þeim sleppi ég alveg í þessu sambandi, þótt þær stundum hafi verið taldar til hinna eiginlegu ríkissjóðsskulda, því að það er alveg rangt.
Á þennan hátt hefir hað verið fengið fram, að skuldir ríkissjóðs væru um 40 millj. kr.
Á árinu 1931 hefir verið borgað af skuldum ríkissjóðs eftir samningum, en síðan í árslok 1930 hefir fallið á ríkissjóð ábyrgð fyrir h/f „Kára“, tæp 200000 kr., sem mun vera ógreidd. Í þá ábyrgð gekk Framsóknarstj. 1922 eða 1923. Síðan í árslok 1930 hefir einnig komið í ljós tapið mikla á síldareinkasölunni, svo að þrátt fyrir afborganir ríkissjóðs 1931 eru skuldir hans líklega heldur hærri nú en í árslok 1930.
Þessar tölur um ríkisskuldirnar hefi ég, eins og ég tók fram aðan, tekið eftir LR. Þetta hefði verið óþarft að taka fram, hefði ekki þeirri fáránlegu kenningu verið haldið á lofti, að ríkisskuldirnar hefðu eiginlega ekki vaxið í tíð núv. stj. Ég man meira að segja eftir, að ég hefi séð það í aðalstjórnarblaðinu alveg nýlega, að ísl. ríkið væri sama sem skuldlaust. Væri þetta hlægilegt mál, mundi maður brosa yfir þessu og spyrja, hvers vegna væri verið að borga á aðra millj. kr. í vexti á ári, ef sama og engar væru skuldirnar. Nei, því miður er ríkissjóður sokkinn í skuldir.
Það mun láta nærri, að þær skuldir, sem voru 1927, séu nú vegna afborgana komnar niður í 8 millj. kr. Ef engin lán hefðu verið tekin síðan, sem ríkissjóður ætti að standa straum af, og hefði bara helmingurinn af því, sem á undanförnum 4 árum hefir komið í ríkissjóðinn auk þess, sem þingið ráðgerði, verið notaður til skuldagreiðslu, þyrfti ríkissjóður nú ekki að standa straum af neinum skuldum. Hvílíkur óendanlegur munur. Þá hefðum við haft til ráðstöfunar núna á 3. millj. kr. árlega til framfara, sem nú fer allt til vaxta og afborganagreiðslu. Þó að skuldirnar hefðu allar verið borgaðar, þá hefði stj. samt haft 8 millj. kr. til umráða á 4 árum, eða 2 millj. kr. á ári, umfram það, sem þing heimilaði, og sýnist það í rauninni vera talsvert. Þetta átak um skuldagreiðslur hefði ekki verið meira en það, sem gert var í tíð fyrrv. stj., svo að hér er alls ekki um að ræða neina ómögulega hluti. Það, sem var gert á árunum 1924–1927, var hægt að gera 1928–1930, og hað var meira að segja miklu hægara á síðara tímabilinu, því að tekjur ríkissjóðs voru þá miklu meiri. En ég veit, að til þess þurfti sjálfsafneitun, manndóm og kjark. Ég veit, að hefði átt að ná þessu marki, þá þurfti að láta margt á móti sér. Þá mátti ekki fjölga embættum eins og gert hefir verið. Það mátti ekki ausa bitlingum á báðar hliðar. Það mátti engu eyða til mannakaupa. Það hefði orðið að fresta sumum stórbyggingunum. Það hefði ekki mátt kaupa strandferðaskip, sem árlega þarf 2–3 hundruð þús. til rekstrarkostnaðar. Það hefði ekki mátt setja á stofn síldareinkasölu til þess að þóknast jafnaðarmönnum. Það hefði ekki mátt kaupa hverja lúxus-bifreiðina á fætur annari. Það hefði ekki mátt hafa strandvarnarskipin í snatti eða um lengri tíma til eigin þarfa eins ráðherrans í kosningabardaga. Það hefði ekki mátt setja á stofn 14 nýja skóla. Það hefði ekki mátt nota stórfe til þess að flytja að þarflausu byggingar úr stað. Það hefði ekki mátt kaupa bændur úr einhverri beztu fjársveit landsins til að hætta fjárrækt. Það hefði ekki mátt gefa út flokkshagsmunarit fyrir tugi þúsunda króna. Það hefði ekki mátt gefa beinar gjafir úr ríkissjóði. Það hefði ekki mátt gefa útlendum sökudólgum eins og skipstjóranum á Tervani upp sakir. Já, það er svo margt, sem ekki hefði mátt, ef hefði átt að ná því marki að ganga nú út í kreppuna með skuldlausan ríkissjóð. En um það dugir ekki að fást, enda hefði mátt á milli vera að greiða skuldirnar að fullu eða meira en tvöfalda þær, eins og núv. stj. hefir gert.
Í þeim athugasemdum, sem ég hefi gert hér að framan, hefi ég einkum dvalið við hin stærri atriði, þau, sem verulega þýðingu hafa fyrir fjárhaginn, en af því að ég á dálítið eftir af þeim tíma, sem mér er ætlaður, vil ég drepa á nokkur atriði til að sýna, að hæstv. stj. hefir ekki heldur verið spör á hinum smærri upphæðum. Það, sem stj. hefir eytt á þennan hátt, mundi verða ótrúlega há upphæð, væri allt komið í eitt. Ég mun nefna nokkur dæmi, sem sýna, hversu ósart stj. hefir verið um skildinga ríkissjóðs.
1. Rekstrarkostnaður bifreiða hefir orðið árin 1928–1930 um 41000 kr. Hver hann var 1931 veit ég ekki. Meira en helmingur af þessu hefir verið greiddur úr landhelgissjóði, og er það gott sýnishorn af meðferð þess sjóðs, sem átti í peningum og innistæðum um 1,4 millj. kr. þegar núv. stj. tók við völdum, en er nú nærri gereyddur.
2. Þá hefir stj. og byggt 2 hús yfir bifreiðar, annað hjá stjórnarráðshúsinu, að því er ég held, og kostaði það 2000 kr., en hitt hjá Arnarhváli, og kostaði það 20000 kr.
3. Stj. virðist eftir reikningum landhelgissjóðs hafa keypt handa honum 3 bifreiðar, og þess utan 2 eða 3 handa sér og bifreiðaeftirlitinu. Hvað margar af þeim hafa verið seldar aftur og hve margar eru eftir óseldar, veit ég ekki, en hitt veit ég, að við endurskoðun LR. hefi ég hvergi rekið mig á neinar borganir fyrir seldar bifreiðar.
4. Til bifreiðaeftirlits hefir stj. notað 1929 og 1930 (um 1931 veit ég ekki) tæpar 30000 kr. umfram það, sem inn hefir komið fyrir eftirlitið, og er það beint brot á lögum um þetta efni, því að tilartlun þingsins var, að eftirlitið kostaði ríkissjóð ekkert.
Það eru því engar smáupphæðir, sem stj. hefir greitt vegna bifreiða, enda er hað kunnugt um einn ráðherrann, að hann er á sifelldu ferðalagi í bifreiðum, allt á ríkisins kostnað.
5. Fyrir hestahald hefir stj. greitt úr landhelgissjóði árin 1928–1930 kr. 14568,75. Hvað borgað hefir verið 1931, veit ég ekki.
6. Til risnu hefir verið greitt úr landhelgissjóði árin 1929 og 1930 kr. 19262,69. Hvað borgað hefir verið 1931, er mér ókunnugt um. Þetta er lítill forsmekkur af meðferð fjár landhelgissjóðs, en miklu meira hefir hann þó blætt vegna snattferða varðskipanna og vitanlega ríkissjóður líka, sem hefir borgað helming af strandgaezlunni.
7. Við endurskoðun LR. 1930 kom í ljós, að einum héraðslækni landsins höfðu verið greiddar nærri 2000 kr. umfram hámark launa þess héraðs. Þetta atriði mun koma til meðferðar hér á þinginu síðar og mun ég gefa þessari háttv. deild kost á að skera úr, hvort slíkar gjafir til þess manns, sem hér á í hlut, skuli eiga sér stað framvegis.
8. Við endurskoðun LR. 1930 kom það líka í ljós, að stj. hefir á því ári greitt einum hæstlaunaða embættismanni landsins uppbót á laun hans undanfarin ár.
Uppbót þessi nam yfir 10000 kr. og fyrir henni hefi ég ekki getað fundið neina heimild.
9. Starfrækslukostnaður við embætti tollstjóra, lögmanns og lögreglustjóra í Reykjavík hefir 1930 orðið undir 260000 kr. Til samanburðar má geta þess, að skrifstofukostnaður allra sýslumanna og bæjarfógeta á landinu er um 100000 kr.
10. Ég nefndi áður síldarbræðslustöðina á Siglufirði og gat þess, að hún hefði kostað ríkissjóð um 11/2 millj. kr. En þar með er ekki allur kostnaður talinn. Hún kostaði miklu meira. Auk þess, sem ríkissjóður lagði fram, lagði Siglufjarðarkaupstaður til lóð og eitthvað af húsum og bryggjum, sem þó biluðu fljótt. Það, sem Siglufjarðarkaupstaður lagði fram, var metið á 200000 kr., svo að 1 millj. og 700000 kr. hefir þetta allt kostað, og er það nokkuð meira en verð allra húsa og allra jarða eftir gildandi fasteignamati í einni af beztu sýslum landsins, Austur-Húnavatnssýslu. Hér er því ekki klipið við nögl um kostnaðinn, og eiginlega er það ótrúlegt, bæði að hægt skuli hafa verið að gera kostnaðinn svo gífurlegan sem raun hefir á orðið, og eins, að hæstv. stj. skuli hafa séð fært að leggja fram til þessa eina fyrirtarkis eins mikið og nemur öllu fasteignamatsverði í heilli sýslu. Á hverju ári þarf 100–150 þús. kr. ágóða af síldarbræðslunni einungis til að borga vexti af því fé, sem fram hefir verið lagt. Ég gæti trúað, að það biði nokkuð, að hægt væri að greiða það, sem lögin um verksmiðjuna ákveða.
Til þess að gefa dálítið bragð af því, hvort hér hafi verið sparað eða ekki, vil ég benda á, að fyrir að meta til verðs það, sem Siglufjarðarkaupstaður lagði fram til verksmiðjunnar, voru 2 matsmönnum borgaðar 4000 kr., segi og skrifa fjögur þúsund krónur. Nú var það, sem Siglufjörður lagði fram, aðallega lóð undir byggingarnar, en svo er það merkilega, að ríkissjóður á allar lóðirnar á Siglufirði, svo að hér gat aðeins verið um mat á leiguréttindum að ræða.
Það eru náttúrlega smámunir, sem litið skiptir máli, að þegar þetta mikla fyrirtæki var vígt, hélt dómsmálaráðherra veizlu, sem kostaði eins og lítil bújörð í sveit, en á ráð má líta eins og litla rúsínu í endanum á geysistórum blóðmörskepp.
Þessi dæmi verða að nægja. Þau ber að skoða sem spegil hins gegndarlausa og heimildarlausa fjárausturs undanfarinna ára.
Hæstv. forseti! Minn tími er nú á enda eftir útvarpsreglunum. Ég læt því máli mínu lokið, en fæ væntanlega einhvern tíma síðar til frekari athugasemda.