04.04.1932
Neðri deild: 42. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1298 í B-deild Alþingistíðinda. (906)

21. mál, geðveikrahæli

Pétur Ottesen:

Mér skildist, að hv. 2. þm. Skagf. bæri fram fyrirspurn til n. um það, hvort hún líti ekki svo á og vildi ekki gefa yfirlýsingu um það, að þótt þetta frv. verði samþ., þurfi þeir hreppar, sem þarna verða að hafa sjúklinga, ekki að borga meira með þeim en þeir þurfa nú almennt á öðrum spítölum. Hv. þm. Ísaf. hefir verið að tala um undirbúning sérstakrar löggjafar um geðveikrahæli, þar sem tekin væru upp ákvæði um meðgjöf með geðveikum sjúklingum. En hún liggur ekki fyrir þessu þingi, og það er ómögulegt að segja, hvernig því mundi reiða af. Það væri því gott að fá nú yfirlýsingu um það, að það væri þingvilji fyrir því, að ekki þurfi að sæta verri kjörum fyrir sjúklinga við þessa spítatla heldur en við aðra spítala landsins. Það gæti verið dálítil trygging, þar til ný löggjöf yrði sett, þar sem gjöldin yrðu ákveðin.